Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 27
Te frá English Tea Shop er lífrænt hágæða te fyrir te-unnendur sem og þá sem eru að drekka sína fyrstu tebolla. ETS býður nefnilega upp á alls kyns óhefðbundnar teblöndur sem ýmist innihalda svart te, grænt te, hvítt te eða eingöngu jurtir,“ segir Guðrún Hún- fjörð, markaðsstjóri hjá Innnesi heildverslun. „Það sem einkennir ETS te eru silkimjúku pýra- mídarnir sem innihalda mjög gróft malað te og jurtir sem þenjast út í heitu vatni og gera tebollann svo girnilegan. Til eru fjölmargar tegundir frá ETS á íslenskum markaði og er Well- ness-línan einstaklega skemmtileg. Í henni eru lífrænar jurtablöndur með mismunandi eiginleika. Detox Me hjálpar líkamanum að hreinsa sig, Sleepy Me stuðlar að betri svefni, Slim Me inniheldur Auk strangs gæða- eftirlits með hrá- efninu sjálfu er gengið úr skugga um að allir birgjar tileinki sér sjálfbæra framleiðsluhætti og stuðli þannig í samvinnu við ETS að verndun jarðar- innar. Guðrún Húnfjörð Sigurbjörg Ágústsdóttir lítur svo á að gott mataræði og hreyfing séu frumforsendur vellíðunar. mynd/culiacan Til eru fjölmargar tegundir frá ETS á íslenskum markaði. Lífrænt lífsstílste frá English Tea Shop English Tea Shop framleiðir lífrænt te í hæsta gæðaflokki. Fjölbreytt úrval tegunda er að finna í hillum verslana. brennsluörvandi jurtir, Energize Me gefur góða orku án þess að vera með örvandi efni, Sensual Me örvar skynfærin og Youthful Me inniheldur andoxandi jurtir.“ 100% rekjanleiki frá laufi í bolla ETS leggur metnað sinn í að fram- leiða te í allra hæsta gæðaflokki ásamt því að vernda umhverfið eins og mögulegt er. Allt te frá þeim er pakkað í þeirra eigin verksmiðju í Srí Lanka sem státar af gæðavottun, öryggisvottun, líf- rænni vottun og fairtrade vottun. „Auk strangs gæðaeftirlits með hráefninu sjálfu er gengið úr skugga um að allir birgjar tileinki sér sjálfbæra framleiðsluhætti og stuðli þannig í samvinnu við ETS að verndun jarðarinnar. Öll hrá- efnin eru 100% rekjanleg frá laufi í bolla,“ segir Guðrún. ETS Wellness línan fæst í Nettó, Fjarðarkaupum, Heilsuhúsinu, Heilsuhorninu Blómavali, Blá- horninu, Hverfisbúðinni, Vöruvali Vestmannaeyjum, Smáulind Pat- reksfirði, Kaupfélagi Steingríms- fjarðar Hólmavík og Kjörbúðinni Bolungarvík. Rétturinn er fullur af næringu og víta-mínum en laus við glúten, mjólkur-vörur og auðvitað sykur. Hreint mataræði er hugmyndafræðin á bak við réttinn og gengur út á að borða sem ferskasta fæðu, sleppa glút eni, sykri og mjólkurvörum. „Ástæðan er sú að ég sem þjálfari veit hvað næringin skiptir miklu máli. Og þess vegna er gefandi fyrir mig að vinna með fólki eins og stelpunum á Culiacan því þær hlusta á viðskiptavininn og eru með puttann á púls- inum. Þær hafa reyndar alltaf lagt áherslu á gott hráefni og rétta samsetningu en eru sífellt að leita leiða til að gera enn betur. Mér finnst mjög gaman að þróa með þeim betra bensín á kroppinn, hreinni og minna unninn mat.“ Burritoskálarnar eru samsettar í góðum hlutföllum af prótíni, kolvetni og fitu. Kjúklingurinn er grillaður og græn- metið er ferskt. Eins og flestir vita er svo fitan úr avókadóinu holl og næringarrík. „Ég hef starfað við þjálfun hjá World Class síðan 1992 . Eftirspurn eftir þjálfun hefur breyst töluvert síðustu áratugi og viðhorf til þjálfunar orðið annað. Fólk er í miklu meiri mæli tilbúið að fjárfesta í heilsunni með þessum hætti. Þjálfun er lífsstíll en ekki síður forvörn og þannig velur fólk að fjár- festa í sjálfu sér. Líkamsræktin verður svo oft útundan í miklu annríki en ef þú skuld- bindur þig með þjálfarann seturðu sjálfan þig ofar á forgangslistann.“ En það er ekki bara þjálfunin sem skiptir máli þegar kemur að betri líðan og heilsu. „Næring skiptir líka mjög miklu máli. Líkam- inn er svo fullkominn, alveg eins og vél og eldsneytið getur skipt sköpum. Og líkaminn lætur okkur vita hvernig næringu við erum að fá og þess vegna er mikilvægt að hlusta á kroppinn, ef þér líður vel af matnum þá er hann góður fyrir þig.“ Hún segir að í dagsins önn týni fólk því niður að þekkja viðbrögð líkamans við því sem við látum ofan í okkur. „Líkaminn veit hvað er gott fyrir okkur og hann verðlaunar góða næringu með vellíðan og góðum afköstum og meiri lífsgleði. Matur sem er mikið unninn er ekki bensín sem stendur með okkur, hann er næringarlaus og gefur lítið.“ Culiacan er til húsa á Suður- landsbraut 4 og býður einnig upp á að taka matinn með. Allar umbúðir eru umhverf- isvænar enda eru einkunn- arorð staðarins: Hrein fæða, hrein samviska. Sú stefna endurspeglast í allri starfseminni. Allar burritoskálarnar verða á sérstöku kynn- ingartilboði til mánaða- móta eða 1.490 kr. Líkaminn lætur þig vita Sigurbjörg Ágústsdóttir hefur starfað sem þjálfari síðastliðin 25 ár hjá World Class. Hún hefur brennandi áhuga á heilsu og næringu og lítur svo á að gott mataræði og hreyfing séu frumfor- sendur vellíðunar. Hún gerði nýjan rétt með Culiacan sem heitir CLEAN EATING BURRITO SKÁL. Hreint mataræði er hugmyndafræðin á bak við nýja réttinn frá Culiacan. KYNNINGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 4 . O K Tó B E R 2 0 1 7 BETRA Líf 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 A -A F C 8 1 E 0 A -A E 8 C 1 E 0 A -A D 5 0 1 E 0 A -A C 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.