Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 2
Veður
Norðaustankaldi í dag og dá-
lítil rigning norðan og austan til, en
annars léttskýjað. Heldur kólnandi
veður. sjá síðu 28
Skoðuðu græjurnar og geiminn
Áhugamenn um himingeiminn og þá hnetti sem þar er að finna komu saman í Valhúsaskóla í gær. Þar fór fram kynningarfundur nýliða í Stjörnu-
skoðunarfélagi Seltjarnarness. Félagar gátu komið með tæki og tól og boðið þau til sölu eða skipt á þeim fyrir aðrar græjur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
stjórnmál Flokkur heimilanna
hefur ekki skilað fullnægjandi árs-
reikningi til Ríkisendurskoðunar
rúmu ári eftir að skilafrestur rann
út. Flokkurinn fékk 29,4 milljónir
króna úr ríkissjóði og eru átta mán-
uðir liðnir síðan stofnunin óskaði
eftir frekari gögnum um rekst-
ur hans á árinu 2015.
Flokkurinn hlaut rétt ríflega þrjú
prósent atkvæða í alþingiskosning-
unum 2013. Samkvæmt lögum eiga
allir flokkar sem fá yfir 2,5 prósenta
fylgi rétt á greiðslum úr ríkissjóði.
Kosningaárið fékk hann því þrjár
milljónir og síðan á bilinu átta til
tæpar 9,2 milljónir á ári út 2016. Ef
ekki hefði verið kosið til Alþingis í
októberlok í fyrra hefði flokkurinn
fengið um níu milljónir króna til
viðbótar vegna ársins 2017.
Samkvæmt svari Ríkisendurskoð-
unar við fyrirspurn Fréttablaðsins
skilaði Flokkur heimilanna inn árs-
reikningi fyrir 2015 í febrúar á þessu
ári. Reikningurinn var aftur á móti
óendurskoðaður og óskaði stofnun-
in þá eftir frekari gögnum og öðrum
skýringum varðandi reksturinn. Þau
hafa ekki borist þrátt fyrir ítrekanir
en flokkurinn hefur áður skilað eldri
ársreikningum eftir að skilafrestur
rann út. Í desember 2015 munaði
minnstu að Ríkisendurskoðun
kærði vanskil á ársreikningi 2014
til lögreglu.
„Við erum ekki lengur á neinum
fjárlögum ríkisins,“ sagði Kristján
Snorri Ingólfsson, formaður flokks-
ins, í samtali við blaðamann áður en
hann baðst undan viðtali.
Kristján Snorri og Eyjólfur Vest-
mann Ingólfsson, bróðir hans og
framkvæmdastjóri Flokks heimil-
anna, hafa séð um reksturinn síðan
2013. Sá fyrrnefndi tapaði í febrúar
í fyrra meiðyrðamáli gegn Pétri
Gunnlaugssyni, útvarpsmanni á
Útvarpi sögu. Pétur kom að stofn-
un stjórnmálaaflsins en Kristján
stefndi honum vegna ummæla um
að Kristján hefði ekki greitt skuldir
flokksins og þess í stað farið á HM í
fótbolta í Brasilíu árið 2014.
Í dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur kom fram að flokkurinn hefði
borgað einkafyrirtæki formanns-
ins, einkahlutafélaginu Helstirni,
og bróður hans 5,3 milljónir króna
úr sjóðum flokksins þegar Pétur lét
ummælin falla í júlí 2014.
haraldur@frettabladid.is
Vill svör frá flokki sem
fékk 29 milljónir króna
Ríkisendurskoðun hefur krafið forsvarsmenn Flokks heimilanna um frekari
gögn varðandi rekstur flokksins sem fengið hefur 29 milljónir úr ríkissjóði.
Rúmt ár síðan skilafrestur ársreiknings rann út en greiðslum var hætt í fyrra.
Skrifstofa Flokks heimilanna var í Vallarstræti 4 í miðborg Reykjavíkur. Starf-
semi hans var afar umsvifalítil eftir kosningarnar 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við erum ekki
lengur á neinum
fjárlögum ríkisins.
Kristján Snorri Ing-
ólfsson, formaður
Flokks heimilanna
Rafvirkjar
Kerfisloftalampar
www.olafsson.is
Endursöluaðilar um land allt
Snjöll lýsing!
OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið
að þínum þörfum með Appi
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
olafsson.is
jAFnrÉttIsmál Óleiðréttur launa-
munur kynjanna var 16,1 prósent
árið 2016 en hafði verið slétt sautján
prósent árið áður. Launamunurinn
var talsvert minni hjá sveitarfélög-
um heldur en á almennum vinnu-
markaði og hjá hinu opinbera.
Í tölum frá Hagstofunni kemur
fram að á síðasta ári hafi um fimmta
hver kona verið með heildarlaun
undir 400 þúsund krónum á ári
samanborið við fjórtánda hvern
karl. Þá eru fimmtán prósent karla
með yfir milljón á mánuði en aðeins
sex prósent kvenna.
Tekið er fram að vinnutími skýri
að hluta til hærri heildarlaun
karla en karlar í fullu starfi vinni
að meðal tali tíu stundum lengur
á mánuði heldur en konur. Þá eru
störf innan starfsstétta ólík og
vinnumarkaðurinn enn kynskiptur.
Algengast var að konur í sérfræði-
störfum væru grunnskólakennarar
en karlar sérfræðingar í viðskipta-
geiranum.
Í gær undirritaði Þorsteinn Víg-
lundsson félagsmálaráðherra sam-
starfssamning við Félag kvenna í
atvinnurekstri (FKA) um þróun
Jafnvægisvogarinnar, mælitækis
á sviði jafnréttismála. FKA mun
þróa vogina með stjórnvöldum og
atvinnulífinu. Voginni er ætlað að
safna tölulegum upplýsingum um
hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja,
standa fyrir fræðslu um mikilvægi
fjölbreytileika í stjórnum og veita
fyrirtækjum viðurkenningar sem
náð hafa markmiðum Jafnvægis-
vogarinnar. Samstarfssamningur-
inn er til eins árs og felur í sér fimm
milljóna króna fjárstuðning. - jóe
Óleiðréttur
launamunur sé
16 prósent
6%
kvenna eru með yfir milljón
krónur í laun á mánuði
stjórnmál Vinstri græn mælast
langstærst í Reykjavíkurkjördæm-
unum samkvæmt könnunum frétta-
stofu 365. Flokkurinn fengi rúm 30
prósent atkvæða.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist næst-
stærstur með tæp nítján og Píratar
og Samfylkingin jafn stór með rúm
þrettán prósent. Miðflokkur mælist
með rúm sjö og Viðreisn og Flokkur
fólksins fá 5,4 prósent hvor flokkur.
Framsóknarflokkur og Björt framtíð
mælast bæði án manna í kjördæm-
unum, fyrri flokkurinn með 3,6 pró-
sent en sá síðarnefndi með rúm tvö.
Önnur framboð mælast samanlagt
með tæpt eitt prósent atkvæða.
Könnun á fylgi flokkanna í
Reykjavíkurkjördæmunum birtist
í kjördæmaþætti Stöðvar 2 í gær.
Niðurstöðurnar byggja á þremur
könnunum fréttastofu sem gerðar
voru dagana 10., 16. og 23. október.
– jóe
VG langstærst
í Reykjavík
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 7 m I ð V I k u D A G u r2 F r É t t I r ∙ F r É t t A b l A ð I ð
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
D
-B
E
6
0
1
E
0
D
-B
D
2
4
1
E
0
D
-B
B
E
8
1
E
0
D
-B
A
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K