Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 36
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is 4 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . o K tó B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U RhReINLætIsvöRuR EFNALAUSNIR EFNALAUSNIR Efnalausnir ehf. • Kjalarvogur 5 • 104 Reykjavík • S:5520022 • indridi@efnalausnir.is • www.efnalausnir.is Gæða hreinsiefni fyrir matvælaiðnaðinn Alvöru kísilhreinsir sem virkar! Frábær á asturtugler abaðkör avaska akeramikhelluborð aog margt fleira. Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur • Sími: 660 1942 Við erum á Facebook sigrún er með gott skipulag á þrifunum hjá sér. Ég er oft spurð hvernig ég nái að gera þrif spennandi en það er kannski vegna þess að ég hef alltaf haft gaman af því að þrífa og hafa fínt í kringum mig. Ég hef líka unnið við þrif af og til í gegnum tíðina, svo þetta er ekki bara áhugamál,“ segir Sigrún Sigurpálsdóttir, sem hefur verið með opið Snapchat í tæp tvö ár, og er með þúsundir fylgjenda. „Ég tók fljótt eftir því að allt sem ég sýndi varðandi þrif vakti mikla athygli. Ég fæ fjölda fyrir- spurna frá fólki varðandi þrif, eins og hvernig sé best að þrífa teppi í bílum, ná kertavaxi úr fötum eða blettum úr sófum. Oftast get ég svarað fólki strax en ef ekki, finn ég út úr því og svara eins fljótt og ég get,“ segir Sigrún. Spurð hvar hún fái allan þennan hagnýta fróðleik segist Sigrún einna helst skoða Pinter- est en þar sé hafsjór af alls konar upplýsingum sem koma að góðu gagni. „Ég er ekki að finna þetta upp sjálf en ég hef komið mér Gerir þrif að spennandi verki Sigrún Sigurpálsdóttir er mörgum að góðu kunn fyrir skemmtilegt Snapchat þar sem hún leyfir fólki að skyggnast inn í sitt daglega líf. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir gott skipulag á heimilinu og ekki síst hversu ráðagóð hún er varðandi þrif. Sigrún notar eigin hreinsilög við þrifin. upp ágætri rútínu varðandi þrif og þvott sem hentar mér vel.“ Fer ekki að sofa með húsið í rúst Sigrún segist ekki vera með stíft plan varðandi þrif heldur taka þau eftir hendinni en þó sé regla að skipta um á öllum rúmum á föstu- dögum. „Mér finnst lykil atriði að ganga vel frá öllu á kvöldin og fer ekki að sofa með allt húsið í rúst. Ég geng t.d. frá öllu lauslegu dóti og set á sinn stað og enda síðan daginn á að strjúka yfir eld- húsborðin og vaskinn því það er einfaldlega skemmtilegra að fá sér morgunmat í hreinu umhverfi,“ segir hún. Þvottar og þrif Um klukkutími fer í þrif og þvotta daglega, en eins og stendur er Sigrún í fæðingarorlofi. Hún býr á Egilsstöðum, ásamt eiginmanni og fjórum börnum. „Ég þvæ að lágmarki tvær vélar á dag. Mér finnst best að brjóta saman allan hreinan þvott um leið og ég tek hann af snúrunum og geng svo strax frá honum. Ég passa vel upp á að safna ekki hreinum þvotti í hrúgu því hann krumpast við það og það dregst oft enn lengur að ganga frá þvottinum.“ Sigrún notar helst hreinsilög sem hún býr til sjálf við þrifin. „Ég blanda einum hluta af spritti á móti tveimur hlutum af köldu vatni og set í spreybrúsa. Mér finnst þessi blanda mjög góð og nota við nær öll þrif. Hún leysir vel upp öll óhreinindi. Í eldhúsinu nota ég blöndu af uppþvottalegi og vatni. Svo finnst mér mikil- vægt að eiga alltaf hreinsikrem sem heitir Pink-stuff. Það er besta hreinsikrem sem ég hef prófað. Það er gott á alla vaska og er líka fínt í klósettskálina. Tuskurnar sem ég nota eru frá Blindrastof- unni og eru úr örtrefjum." Fjöldi fólks fylgist með sigrúnu á snapchat og fær ráð frá henni. sigrún fer ekki að sofa fyrr en búið er að ganga frá öllu á sinn stað. 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 D -D 7 1 0 1 E 0 D -D 5 D 4 1 E 0 D -D 4 9 8 1 E 0 D -D 3 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.