Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 17
Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar ég las ummæli Sigmundar
Davíðs um lífeyrissjóðina, sem hann
lét falla á þingi Samtaka iðnaðarins
13. október 2017. Ég fæ ekki betur
séð en hann geti ekki beðið eftir að
komast í lífeyrissparnaðinn okkar.
Þinn og minn.
Orðrétt er haft eftir honum: „Til
dæm is hjá líf eyr is sjóðunum sem
hafa haft það of þægi legt með tryggðri
3,5% ávöxt un. Ef ríkið væri ekki að
halda þeim uppi þyrftu þeir að standa
und ir sér með öðrum hætti. Ég myndi
vilja sjá sterk ari hvata til þess að þetta
fjár magn nýt ist í ný sköp un.“
Hafa lífeyrissjóðirnir það „of
þægilegt“? Eru ekki áhyggjur okkar
einmitt þær, að þeir muni eiga í
erfið leikum með að standa undir
skuldbindingum? Það er sannar-
lega rík ástæða til að tryggja ávöxtun
lífeyrissjóðanna og verja þá sjálfa.
Þarna liggur lífeyrissparnaður
þjóðarinnar, fjármagn sem tekið er
af öllum launum fólks að viðbættu
mótframlagi launagreiðenda, í þeim
skýra tilgangi að tryggja framfærslu
þegar starfsævinni lýkur. Víst er þetta
mikið fé, enda skuldbindingarnar
gríðarmiklar. Þeim mun ríkari ástæða
er til að verja þessa fjármuni fyrir
þeim sem ásælast þá. Fjárfestingar í
nýsköpun eru of áhættumiklar til að
leggja lífeyri landsmanna þar undir.
Það fjármagn þarf að koma annars
staðar frá. Að heyra þessi áform fram-
bjóðandans ætti að hringja háværum
viðvörunarbjöllum.
Það má aldrei gerast að þetta
öryggis net þjóðarinnar sé lagt undir
í fjárhættuspili, með hvaða for-
merkjum sem er. Lífeyrissparnaður er
ekki skattur – hann er eign. Burt með
krumlurnar, Sigmundur! Snertu ekki
lífeyrinn minn!
Láttu lífeyrinn minn vera!
Guðrún
Pétursdóttir
á lista Viðreisnar
í Reykjavík
norður
2017
Í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 6. apríl 2017 um afkomu og efnahag sveitarfélaga árin 2018-
2022, er fjallað sérstaklega um leiðir
til að gera opinbera þjónustu betri:
Unnin verði sameiginleg aðgerða-
áætlun vegna svokallaðra grárra
svæða í þjónustu ríkis og sveitarfélaga
þar sem þjónustusvið þeirra skarast …
Umræða um þessi „gráu svæði“
hefur verið af skornum skammti,
enda þótt fækkun þeirra sé eitt mikil-
vægasta verkefni stjórnmálanna.
Gráu svæðin í velferðarþjónustu
Ábyrgðarsvið í opinberri þjónustu,
hvort heldur á milli ráðuneyta,
stofnana eða í samskiptum ríkis og
sveitarfélaga, eru oft og tíðum ekki
nægilega skýr. Dæmin um að þessir
aðilar gangi ekki í takt eru mýmörg og
skipta þeir notendur jafnan þúsund-
um, sem fá ekki úrlausn sinna mála
vegna þess að þeir eru á „gráu svæði“
í velferðarþjónustunni.
Sú landlæga tilhneiging virðist
vera hjá opinberum stofnunum, að
skilgreina verkefni yfir á aðra þjón-
ustuveitendur þegar gerð er krafa til
þeirra um hagræðingu í rekstri. Þessi
„einhver annar“ reynist iðulega vera
sveitarfélögin, sem er skylt að veita
margháttaða velferðarþjónustu
á félags-, skóla- og öldrunarsviði.
Afleiðingarnar birtast svo oftar en
ekki í auknum kostnaði, þegar á
heildina er litið, þar sem sparnaður á
einum stað í opinberum rekstri getur
hæglega valdið auknum kostnaði á
öðrum stöðum samfara tvíverknaði
og ófullnægjandi þjónustuskilgrein-
ingum. Einnig getur sú hætta mynd-
ast að brýnum velferðarverkefnum
sé ekki nægilega vel sinnt sökum van-
fjármögnunar, þar sem sá sem fékk
upphaflegu fjárheimildirnar telur sér
ekki lengur skylt að sinna þeim. Eftir
sitja þeir með sárt ennið sem þurfa á
þjónustunni að halda.
Hvað er til ráða?
Samband íslenskra sveitarfélaga hóf
fyrir nokkrum árum markvissa kort-
lagningu á ábyrgðarsviðum innan
velferðarþjónustunnar. Hafa niður-
stöður þessarar greiningar ásamt til-
lögum til úrbóta verið birtar í skýrslu
sambandsins, sem fékk fljótlega það
lýsandi heiti „Grábók“ og nálgast má
á vef sambandsins.
Niðurstöðurnar benda eindregið til
þess, að gráu svæðin séu kerfislægur
vandi, sem birtist ekki einungis í sam-
skiptum ríkis og sveitarfélaga, heldur
einnig á hvoru stjórnsýslustigi fyrir
sig, s.s. í velferðarþjónustu stærri
sveitarfélaga. Einna skýrast birtist þó
þessi kerfisvandi í of lítilli samhæfingu
ráðuneyta á milli eða innan velferðar-
ráðuneytisins. Sem nærtækt dæmi
mætti nefna afleiðingar þess, þegar
yfirstjórn heilbrigðisþjónustunnar
skilgreinir sig út úr verkefnum sem
snerta beinlínis líf og velferð fólks.
Á ég að
gera það?
Guðjón
Bragason
sviðsstjóri
hjá Sambandi
íslenskra sveitar-
félaga
Einna skýrast birtist þó þessi
kerfisvandi í of lítilli sam-
hæfingu ráðuneyta á milli
eða innan velferðarráðuneyt-
isins. Sem nærtækt dæmi
mætti nefna afleiðingar þess,
þegar yfirstjórn heilbrigðis-
þjónustunnar skilgreinir sig
út úr verkefnum sem snerta
beinlínis líf og velferð fólks.
Fundarstjóri: Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur Kópavogskirkju.
Kl. 16:15 SETNING
Þráinn Þorvaldsson stjórnarformaður ÚK.
Kl. 16:20 AUKIN AÐSTOÐ - BÆTT ÞJÓNUSTA
Elín Sigrún Jónsdóttir lögfræðingur,
framkvæmdastjóri ÚK ræðir um reynsluna
af nýrri, persónulegri- og aukinni
þjónustu.
Kl. 16:35 KAMPAVÍN OG BALLÖÐUR
Erum við að missa stjórn? Er það slæmt?
Breytt samfélagsgerð kallar á nýja nálgun.
Sigrún Óskarsdóttir guðfræðingur hjá
ÚK fjallar um mikilvægi samtalsins og
ólíkar þarfir aðstandanda við kveðjustund.
Hefðin er sterk og rík en ekki meitluð í
stein.
Kl. 16:50 ÓSKALAGIÐ
Sigríður Thorlacius, söngkona.
Undirleikur Steingrímur Þórhallsson.
Kl. 17:00 HLÉ – Boðið upp á léttar veitingar
Kl. 17:20 GILDI ERFÐASKRÁR OG KAUPMÁLA
ÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIDEILDAR
Katla Þorsteinsdóttir lögfræðingur ÚK
ræðir álitamál sem snúa að erfðarétti,
erfðaskrám og kaupmálum.
Kl. 17:35 EINSÖNGSLAGIÐ
Gissur Páll Gissurarson, óperusöngvari.
Undirleikur Steingrímur Þórhallsson.
Kl. 17:45 AF SJÓNARHÓLI SYRGJANDANS
„Þá grét Guðrún Gjúkadóttir“
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur
setið við dánarbeð fimm ástvina á fimm
árum og stofnaði ásamt öðrum samtökin
Ljónshjarta til stuðnings ungum ekkjum og
ekklum. Hún deilir sýn sinni á útfararsiði
sem hjálp í sorgarúrvinnslu aðstandenda
og gildi sorgartjáningar sem er orðin æ
algengari á samfélagsmiðlum síðustu
misseri.
Kl. 18:00 ALMENNAR UMRÆÐUR
Kl. 18:15 SAMANTEKT
Þráinn Þorvaldsson stjórnarformaður ÚK.
FRÆÐSLUFUNDUR ÚTFARARSTOFU KIRKJUGARÐANNA
Neskirkju 26. október frá kl 16:15 til kl 18:15
Hvað vil ég?
AÐ LEIÐARLOKUM
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17M i ð V i k u D A G u R 2 5 . o k T ó B e R 2 0 1 7
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-D
2
2
0
1
E
0
D
-D
0
E
4
1
E
0
D
-C
F
A
8
1
E
0
D
-C
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K