Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 66
Frægir fara á fjöll
Baldur Sigurðsson, knattspyrnumað-
ur og fyrirliði Stjörnunnar í Garðabæ,
veiðir í sinni heimasveit, Mývatns-
sveit. FréttaBlaðið/anton Brink
katrín alda og rebekka rafnsdætur
ætla að fara á heimaslóðir á Þórs-
höfn og veiða með Fanneyju Birnu
og föður sínum. FréttaBlaðið/SteFán
Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu,
verður á sínum stað í Búrfellshrauni í
Mývatnssveit.
Veiðihelgar
Föstudaginn 27. október til sunnudags 29. október.
Föstudaginn 3. nóvember til sunnudags 5. nóvember.
Föstudaginn 10. nóvember til sunnudags 12. nóvember.
Föstudaginn 17. nóvember til sunnudags 19. nóvember.
57.000 er leyfileg heildarveiði á rjúpum þetta árið.
Rjúpnaveiðitíma-
bilið hefst um
helgina en veiði-
dagar í ár verða tólf
talsins og skiptast á
fjórar helgar á tíma-
bilinu 27. október til
19. nóvember. Sölu-
bann er á rjúpum og
því þurfa veiðimenn
að skjóta í jóla-
matinn sjálfir. Fjöl-
margir þjóðþekktir
Íslendingar skunda á
fjöll til að njóta nátt-
úrunnar og veiða sér
til matar.
Fanney Birna Jónsdóttir fjölmiðlakona
„Ég kemst ekki þessa helgina vegna
kosninganna,“ segir Fanney sem
stefnir þó á ferð til Þórshafn-
ar með vinkonum sínum,
Katrín Öldu og Rebekku
Rafnsdætrum. Hvenær
er þó ekki alveg vitað
en kosningar setja plön
þeirra í smá uppnám.
„Þar njótum við liðsinnis
pabba þeirra sem er
einn af fjallakóngum
þessa lands.“
Fanney ætlar að
fara eina ferð með
Baldvin Þór Bergssyni fréttamanni
sem er nýkominn með skotleyfi.
„Við förum á stað hér rétt utan
við bæinn. Annað er óráðið.
Rjúpnaveiði snýst samt
meira um útiveruna og
samveruna og gott nesti.
Það vonda við veiðina er
að hún eyðileggur fjall-
göngur fyrir mér. Það er
argasta tilgangsleysi
að ganga á fjöll
án þess að vera
með byssu,“ segir
Fanney.
hilmir snær guðnason leikari
„Ég ætla að reyna að komast ef
ég er ekki að leika. Ég hef ekki
komist síðustu tvö árin út
af því,“ segir Hilmir Snær
Guðnason leikari um
væntanlega rjúpnaveiði
sína. Undanfarin ár hefur
Hilmir farið í Mývatnssveit
þar sem fjölskylda
konu hans á land.
Hilmir er einn af
fjölmörgum sem
munu skunda
á fjöll með byssu í hendi og nesti
á bakinu til að veiða sér til jóla-
matar.
Fyrirkomulagið á rjúpna-
veiðinni er það sama og und-
anfarin ár. Leyfileg heildar-
veiði er um 57.000
rjúpur og miðað við
fjölda veiðimanna
á síðasta ári gerir
það fimm til sex
fugla á hvern
veiðimann.
Pálmi gestsson leikari
„Það er verið að neyða fólk út í
óvissu í staðinn fyrir að fara þegar
er gott veður,“ segir Pálmi sem var
að frumsýna Risaeðlurnar, lokahluta
leikhúsþríleiks Ragnars Bragasonar
um afkima íslensks samfélags, í
Þjóðleikhúsinu síðastliðinn föstu-
dag. Hann er ekki farinn að hugsa
sér til hreyfings upp á fjöll enda
yfirleitt að sýna. „Það er nú órétt-
lætið í þessu kerfi
gagnvart þeim
sem þurfa að
vinna um helgar.
Ég skil ekki þetta
kerfi og af hverju
það má ekki veiða
einhverja mánu-
daga og þriðju-
daga.“ Margir
veiðimenn
eru sammála
skoðunum
Pálma og
finnst
óþolandi
að verða
að fara út
í hvaða
veðri sem
er.
Benedikt Bóas
benediktboas@365.is
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r38 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð
Lífið
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-F
4
B
0
1
E
0
D
-F
3
7
4
1
E
0
D
-F
2
3
8
1
E
0
D
-F
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K