Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 25.10.2017, Qupperneq 8
BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA NISSAN Qashqai Acenta 2wd Nýskr. 09/16, ekinn 13 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 3.690 þús. kr. TOYOTA Avensis Live Nýskr. 05/15, ekinn 49 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2.390 þús. kr. SUZUKI Vitara All Grip Nýskr. 06/16, ekinn 58 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2.690 þús. kr. RENAULT Kadjar Zen 4wd Nýskr. 07/16, ekinn 37 þ.km, dísil, beinskiptur. VERÐ 3.590 þús. kr. NISSAN Juke Acenta Plus 4wd Nýskr. 04/16, ekinn 40 þ.km, bensín, sjálfskiptur. VERÐ 3.390 þús. kr. SUBARU Forester Premium Nýskr. 07/16, ekinn 44 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 4.290 þús. kr. Rnr. 390511 Rnr. 284609 Rnr. 153099 Rnr. 153083 Rnr. 370796 Rnr. 370771 www.bilaland.is Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16. www.facebook.com/bilaland.is E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 4 6 3 4 B íl a la n d a lm e n n 2 x 3 8 2 5 o k t trúfélög „Það kemur væntanlega tilkynning frá félaginu um hvenær þetta verður hægt og hve- nær þetta verður greitt út,“ segir Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumað- ur trúfélagsins Zuism, þar sem meðlimir hafa beðið í tæp tvö ár eftir útgreiðslu sóknargjalda. Eins og kunnugt er lofuðu zúistar því á meðan félagið var undir stjórn Ísaks Andra Ólafssonar og félaga að meðlimir trúfélagsins fengju sóknargjöld sem ríkið greiðir fyrir hvern félaga, um 11.000 krónur á ári. Sagði frá því í Fréttablaðinu í gær að þessi upphæð hafi í heild verið komin í rúmar 53 milljónir króna sem borgaðar voru út eftir að sýslumannsembættið á Norður- landi eystra viðurkenndi Ágúst sem forstöðumann. Í yfirlýsingu sem Ágúst sendi frá sér í gær segir að félagið vinni nú að heimasíðu þar sem hægt verði að sækja um endurgreiðslu á sóknar- gjöldum. Ótilteknu umsýslugjaldi verði þó haldið eftir. „Það verður í nóvember, ég get að minnsta kosti sagt það,“ segir hann aðspurður hvenær útgreiðslan geti orðið í fyrsta lagi. Ágúst segir aðeins þá sem skráðir hafi verið í Zuism þegar hann komst yfir félagaskrána í þessum mánuði geta fengið endurgreitt. Ef einhverjir hafi verið í félaginu en skráð sig úr því fái þeir ekki greitt því hann geti ekki sannreynt hverjir hafi verið meðlimir og hverjir ekki. Þess má geta að greiðslur sóknar- gjalda frá ríkinu miðast við fjölda meðlima sem skráðir eru 1. des- ember á hverju ári. Þannig mun Zuism fá sóknargjöld í eitt ár í við- bót samkvæmt fjölda félagsmanna 1. desember næstkomandi. Krafa Ágústs um að verða viður- kenndur sem formaður trúfélags zúista var til meðferðar hjá embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra allt frá því snemma á þessu ári. Hann ber starfsmann embættisins þungum sökum í yfirlýsingu sinni og gefur í skyn að sá hafi gengið erinda andstæðinga hans innan trúfélags- ins. „Við rannsókn innanríkisráðu- neytisins kemur í ljós að starfs- maður sýslumanns hefur átt í óvið- eigandi samskiptum við umræddan hóp utan vinnutíma. Eftir að þetta komst upp hefur hann verið staðinn að því að senda villandi upplýsingar til innanríkisráðuneytisins og að eyða málsgögnum, sem meðal ann- ars tengjast samskiptum milli hans og umrædds hóps,“ segir í yfirlýs- ingu Ágústs sem var viðurkenndur sem formaður nú í byrjun október. Aðspurður segist Ágúst vera að vísa til símasamskipta umrædds starfsmanns við þann hóp sem hafði undirtökin í félaginu á tíma- bili. Málið tengist því að skráning trúfélaga var færð frá innanríkis- ráðuneytinu til sýslumannsins á Norðurlandi eystra. „Hann neitaði því að hafa fengið stofngögnin um félagið okkar en samt hefur innan- ríkisráðuneytið staðfest að honum voru send öll gögn. Þetta er allt saman mjög undarlegt,“ segir hann. Að sögn Ágústs er óákveðið hvort einhver eftirmál verði af hálfu zúista undir hans stjórn gagnvart viðkomandi starfsmanni sýslu- manns. „Það má vel vera að það verði skoðað en það er kannski óviðeigandi að segja eitthvað um það í dag,“ svarar hann. Þess má geta að Fréttablaðið hefur frá því í ágúst reynt að ná tali af umræddum starfsmanni sýslu- manns en hann hefur ekki svarað margítrekuðum símtölum og tölvu- póstum. Honum var í gær framsend yfirlýsing formanns zúista með ósk um viðbrögð við ásökununum en ekkert svar fékkst. Hann er sagður vera í fríi fram í nóvember. Þá hefur embættið ekki sent Fréttablaðinu umbeðin gögn varðandi skráningu Ágústs sem forstöðumanns zúista. gar@frettabladid.is Segir þá sem skráðu sig úr Zuism ekki fá greitt Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður trúfélags zúista, segir starfsmann sýslu- manns hafa gefið villandi upplýsingar og eytt gögnum um samskipti við keppi- nauta hans um völd í trúfélaginu. Boðar lofaða útgreiðslu sóknargjalda. Langri baráttu Ágústs Arnars Ágústssonar fyrir að fá viðurkenningu á því að hann sé forstöðumaður Zuism lauk í byrjun október. Mynd/ÚreinkAsAfni 11.000 þúsund krónur eru greiddar úr ríkissjóði á ári til trúfélaga fyrir hvern skráðan meðlim. Hann neitaði því að hafa fengið stofn- gögnin um félagið okkar en samt hefur innanríkisráðu- neytið staðfest að honum voru send öll gögn. Þetta er allt saman mjög undarlegt. Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður Zuism StJÓrNSÝSlA Þjóðskrá skal taka fasteignamat eignar í Logafold í Reykjavík, fyrir árin 2009-2013, til endurskoðunar. Þetta er niður- staða yfirfasteignamatsnefndar en þetta er í þriðja skipti sem ákvörðun Þjóðskrár varðandi eignina er felld úr gildi. Forsaga málsins er að árið 2014 óskuðu eigendur eignarinnar eftir endurskoðun á fasteignamatinu til lækkunar. Töldu þau mat Þjóðskrár vera tugum milljóna of hátt og að það skýrðist af því að flatarmál kjall- ara, sem væri óíbúðarhæfur og ekk- ert nema geymsla, væri talið með í heildarfermetrafjölda hússins. Þjóðskrá hafnaði beiðni eigenda um endurmat. Sú niðurstaða var kærð til yfirfasteignamatsnefndar sem felldi árið 2015 ákvörðunina úr gildi. Þjóðskrá leit á framkomin gögn og taldi ekki rétt að breyta mati eignarinnar. Sú niðurstaða var á ný kærð til yfirfasteignamats- nefndar sem aftur felldi ákvörðun Þjóðskrár úr gildi. Þetta var árið 2016. Í þriðja sinn leit Þjóðskrá á gögn málsins og komst að því þriðja sinni að ekki væru ástæður til að breyta fasteignamati eignarinnar. Á ný var málið kært til yfirfasteignamats- nefndar sem komst að þeirri niður- stöðu, þriðja sinni, að framkvæmd Þjóðskrár væri ábótavant. Þarf Þjóð- skrá því að taka málið til meðferðar fjórða sinni. – jóe Sendu Þjóðskrá til baka í þriðja sinn Margir hillumetrar af skjölum eru í hirslum Þjóðskrár. frÉTTABLAÐiÐ/ViL- HeLM 2 5 . o k t Ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A g U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A Ð I Ð 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 D -F 9 A 0 1 E 0 D -F 8 6 4 1 E 0 D -F 7 2 8 1 E 0 D -F 5 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.