Fréttablaðið - 25.10.2017, Síða 48
Commerzbank verst yfirtökuSkotsilfur
Áshildur
Bragadóttir
forstöðumaður
Höfuðborgar-
stofu og FKA-fé-
lagskona
Hlutabréf í þýska bankanum Commerzbank snarhækkuðu í verði eftir að fregnir bárust af því að keppinautar bankans, þar á meðal BNP Paribas,
væru að íhuga að gera yfirtökutilboð í bankann. Þýski bankinn hefur ráðið Goldman Sachs og Rothschild til þess að vera sér innan handar við að
verjast mögulegri yfirtöku. Ef bankinn yrði keyptur í einu lagi yrði það stærsta yfirtakan í þýska bankaheiminum í meira en áratug. FréttaBlaðið/EPa
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti sína um 0,25% á fundi sínum þann 4. október síðastliðinn. Óhætt er að segja að ákvörðun bankans hafi komið
markaðsaðilum verulega óvart. Allir
greiningaraðilar á markaði spáðu
óbreyttum stýrivöxtum fyrir fundinn
þar sem rök þeirra voru meðal annars
að raunvextir hefðu lækkað á milli
funda sem og að ríkisstjórnarslitin
hefðu aukið óvissu um aðhald ríkis
fjármála á næstunni.
Að okkar mati eru þónokkur tíðindi
í fundargerð Seðlabankans sem birt
var þann 18. október síðastliðinn og
ber þar helst að nefna nýtt mat pen
ingastefnunefndar á þeim raunvöxtum
sem þarf til að halda verðbólgu við
markmið. Fram kemur í fundargerð
inni að hagvöxtur verði áfram tölu
vert mikill en aðlögun að sjálfbærum
hagvexti virðist að mati nefndarinnar
vera hraðari en áður var talið. Þetta
stöðumat nefndarinnar er áhugvert
í ljósi síðustu vaxtalækkunar. Hér er
með öðrum orðum verið að segja að
spennan verði áfram mikil en muni
lækka eitthvað á næstu misserum í átt
að jafnvægi. Hagkerfið er því að keyra
umfram framleiðslugetu sem þýðir að
öðru óbreyttu að raunvextir ættu að
vera hærri samanborið við hagkerfi í
jafnvægi.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
jafnvægisraunvexti á Íslandi. Seðla
bankinn er með 3% jafnvægisraun
vexti í sinni efnahagspá en ljóst má
vera á aðgerðum peningastefnunefnd
ar að hún er ekki á sama máli. Fyrir
vaxtalækkunina í október voru raun
vextir bankans miðað við meðaltal
mismunandi mælikvarða á verðbólgu
og verðbólguvæntingar 2,1% og höfðu
lækkað frá því í ágúst þegar þeir voru
2,3%. Í júní voru samsvarandi vextir
2,7% og hafa því lækkað um tæplega
1% á nokkrum mánuðum.
En hvað hefur breyst á þessum
nokkrum mánuðum? Tölur Hagstof
unnar um hagvöxt á fyrri hluta ársins
Nýjar forsendur hjá
peningastefnunefnd?
Stefán Helgi Jónsson
og Skúli Hrafn Harðarson
sjóðstjórar hjá Júpiter
Í síðustu viku var samfélagsmiðlabylt
ing undir myllumerkinu #metoo eða
#églíka. Konur um allan heim sem
orðið hafa fyrir kynferðislegri áreitni
eða kynferðisofbeldi stigu fram til
að vekja athygli á hversu víðfeðmt
vandamál kynbundið ofbeldi er.
Í síðustu viku var einnig haldin
alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík á
vegum samtakanna Women Eco
nomic Forum (WEF) undir yfirskrift
inni „Gender Equality – Towards
He for She and She for He. Eins og
nafnið bendir til var sjónum beint að
jafnrétti kynjanna frá ýmsum sjónar
hornum og var ánægjulegt að geta
sagt frá þeim mikla árangri sem náðst
hefur í kvennabaráttu hér á landi með
víðtækri samstöðu kvenna og karla.
Ísland stendur nú fremst meðal
þjóða þegar kemur að jafnrétti og
eiga allar konur sem rutt hafa veginn
þakkir skilið fyrir hugrekki, dugnað,
kjark og þrautseigju. En jafnréttis
barátta er ekki bara jafnréttisbarátta
kvenna. Til að ná árangri þarf sam
stöðu meðal þjóðar. Með samtaka
mætti í atvinnulífi og stjórnmálum
er atvinnuþátttaka kvenna hvergi
meiri, fleiri konur en karlar eru í námi
á háskólastigi, mikill árangur hefur
náðst í að fjölga konum í stjórnum
fyrirtækja og konur eru nær helm
ingur þingmanna svo dæmi séu tekin.
Jafnrétti er mál sem varðar okkur
öll og allir eiga að láta sig varða. Jafn
rétti snýst um að allir einstaklingar
óháð kyni eigi jafna möguleika og fái
jöfn tækifæri. Jafnrétti snýst um að
berjast gegn mismunun á grundvelli
kyns, útrýma kynbundnu ofbeldi,
breyta hefðbundnum kynjaímyndum
og vinna gegn neikvæðum staðal
ímyndum um hlutverk kvenna og
karla.
Ísland er fyrirmynd annarra þjóða
þegar kemur að jafnréttismálum
en jafnréttisbaráttunni er þó hvergi
nærri lokið. Eyða þarf óútskýrðum
launamun kynjanna, útrýma kyn
bundnu ofbeldi, fjölga konum í efsta
stjórnendalagi fyrirtækja, auka ásýnd
kvenna í fjölmiðlum og jafna hlut
kynjanna í námi.
Við erum fámenn þjóð og framlag
okkar allra skiptir máli. Stígum fram
og búum okkur samfélag þar sem allir
eiga jafna möguleika á að njóta eigin
atorku og þroska hæfileika sína, óháð
kyni. Verum óhrædd og samstillt í að
efla konur til áhrifa. Sýnum hugrekki
og útrýmum óútskýrðum launa
mun kynjanna. Verum áfram öðrum
þjóðum fyrirmynd á sviði jafnréttis
mála, verum komandi kynslóðum
fyrirmynd og ekki síst okkur sjálfum.
#metoo
voru birtar í september. Niðurstaðan
var 4,3% vöxtur en Seðlabankinn hafði
spáð í ágúst að hagvöxtur yrði 5,6% á
fyrri hluta ársins. Munar þar mestu um
framlag utanríkisviðskipta en þjóðar
útgjöld voru í góðu samræmi við spána
eða 5,2% í stað 5,4%. Spennan í hag
kerfinu er því enn mikil og vel umfram
framleiðslugetu hagkerfisins til lengri
tíma litið. Peningastefnunefnd er þó
á sama tíma að lækka raunvexti niður
fyrir 2% og í því felast mikil tíðindi.
Álykta mætti út frá síðustu
vaxtalækkun að jafnvægisraun
vextir séu nær 1% að teknu tilliti
til framleiðsluspennunnar í hag
kerfinu. Það verður því mjög fróð
legt að sjá næstu spá Seðlabankans
varðandi hagvöxt og mat hans á
framleiðsluspennu sem birt verður
samfara næstu vaxtaákvörðun
þann 15. nóvember næstkomandi.
01.01.10 01.07.10 01.01.11 01.07.11 01.01.12 01.07.12 01.01.13 01.07.13 01.01.14 01.07.14 01.01.15 01.07.15 01.01.16 01.07.16 01.01.17 01.07.176,00
4,00
2,00
0,00
-2,00
-4,00
Raunvextir miðað við mismunandi
mælikvarða og framleiðsluspenna
n M.v. verðbólgu
n M.v. verðbólguvænt-
ingar almennings
n M.v. verðbólguvænt-
ingar markaðsaðila
n M.v. verðbólguálag á
fjármálamarkaði
n M.v. verðbólguvænt-
ingar fyrirtækja
n Framleiðsluspenna
Hræsni
Hræsni stjórn-
málamanna á
sér stundum lítil
takmörk. Nú í
aðdraganda kosn-
inga lofa flestir
stjórnmálaflokkar
því að taka tugi milljarða
króna út úr bönkunum til að greiða
niður skuldir eða fjármagna kosn-
ingaloforð sín. Flokkarnir tala þannig
óbeint fyrir því að bankarnir ráðist
í verulega útgáfu víkjandi skulda-
bréfa svo þeir hafi svigrúm til frekari
arðgreiðslna. Sömu stjórnmálamenn
og vilja að bankarnir gefi út víkjandi
bréf brugðust hins vegar ókvæða
við þegar tryggingafélagið VÍS gaf út
slík bréf í fyrra og greiddi í kjölfarið
út eðlilegan arð. Einn þeirra, Stein-
grímur J. Sigfússon, sagði til dæmis
arðgreiðsluna til marks um endur-
reisn „græðgisvæðingarinnar“.
Styrkir Framsókn
Fram kemur í
ársreikningi Fram-
sóknarflokksins
fyrir síðasta ár að
Ursus, fjárfest-
ingafélag Heiðars
Guðjónssonar, hafi
styrkt flokkinn um 400
þúsund krónur í fyrra, en það er sú
lögbundna hámarksfjárhæð sem
einstakur lögaðili má styrkja flokk
um. Það sama gerði Heiðar árið
2015. Athygli vekur hins vegar að
Heiðar styrkti Sjálfstæðisflokkinn
ekki um eina krónu á síðasta ári. Ekki
eru mörg ár síðan Heiðar sat í efna-
hags- og viðskiptanefnd Sjálfstæðis-
flokksins, þar sem hann barðist
ötullega fyrir því að tekin yrði upp
alþjóðleg mynt í stað krónunnar.
Landsfundur flokksins hafnaði hins
vegar tillögu Heiðars eins og frægt
er orðið.
Nýr formaður
Þórhallur Örn Hinriksson, fyrr-
verandi sjóðsstjóri hjá
Stefni, var nýverið
kjörinn stjórnar-
formaður ALM
Verðbréfa. Tók
hann við for-
mennskunni af
Bryndísi Gunnlaugs-
dóttur lögfræðingi. Eins
og kunnugt er bættust fimm fjárfest-
ar í hluthafahóp ALM í sumar með
kaupum á samanlagt þriðjungshlut
í fyrirtækinu, en þar á meðal voru
þeir Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri, og Kjartan Gunnars-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins.
2 5 . o k t ó b e R 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U R10 markaðurinn
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-F
E
9
0
1
E
0
D
-F
D
5
4
1
E
0
D
-F
C
1
8
1
E
0
D
-F
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K