Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 25.10.2017, Blaðsíða 55
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 35. STARFSÁR HALLGRÍMSSÖFNUÐUR LÚTHERSDAGAR Í HALLGRÍMSKIRKJU 26.-31. okt 2017 26. október- fimmtudagur Vígsludagur Hallgrímskirkju 12.00 KYRRÐARSTUND- Hallgrímur & Lúther. Hildigunnur Einarsdóttir alt og Björn Steinar Sólbergsson sjá um tónlistarflutning. Íhugun flytur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. 27. október- föstudagur Hallgrímsdagurinn - 343. ártíð Hallgríms Péturssonar 20.00 SÁLMAR Á NÝRRI ÖLD! Kammerkórinn Schola cantorum, stjórnandi: Hörður Áskelsson. „Sálmar á nýrri öld“ eru 26 sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason fyrir kór án undirleiks. Þessir hrífandi og fjölbreyttu sálmar fjalla um lofgjörð, bæn, gleði og sorg. Miðaverð: 2500 kr. Miðasala við innganginn og á midi.is. 28. október- laugardagur 14.00 OPNUN-TESUR Tesur er þátttökugjörningur sem myndlistarkonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal standa fyrir dagana 28. – 31. október. Verkið minnir á gjörninginn þegar Lúther negldi tesurnar 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg í Þýskalandi 31.október 1517 og markaði þannig upphaf siðbótar í Evrópu. Ókeypis aðgangur – allir hjartanlega velkomnir! 29. október- sunnudagur 11.00 HÁTÍÐARMESSA í tilefni af 343. ártíð Hallgríms Péturssonar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson, sem predikar. Tónlistarflutningur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Björn Steinar Sólbergsson orgel Oddur A. Jónsson bassi og Inga Rós Ingólfsdóttir selló, stjórnandi Hörður Áskelsson. Fermingarbörn taka þátt og barnastarf í umsjón Ingu Harðardóttur. 17.00 KANTÖTUGUÐSÞJÓNUSTA – Lúther og Bach Flutt verður “Lútherskantatan” Christ unser Herr zum Jordan kam BWV 7 fyrir þrjá einsöngvara, kór og hljómsveit. Auk þess verða fluttir inngangskór og sálmur úr kantötunni Aus tiefer Not ruf ich zu dir BWV 38, Kyrie úr Messu í F-dúr og útsetningar Bachs af sálmalögum. Mótettukór Hallgrímskirkju, Kammersveit Hallgrímskirkju, Auður Guðjohnsen alt, Benedikt Kristjánsson tenór, Oddur A. Jónsson bassi. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Prestar: Dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti prédikar. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. 30. október- mánudagur 9.00-14.00 SKÓLABÖRNIN OG TESURNAR. Skólabörnum af höfuðborgarsvæðinu boðið að heimsækja Hallgrímskirkju og útbúa sínar tesur. Umsjón: Inga Harðardóttir barna- og æskulýðsfulltrúi Hallgrímskirkju. Endurtekið á Siðbótardaginn 31.október. 20.00 TÓNLEIKHÚS UM TVÆR SIÐBÓTARKONUR Elisabeth og Halldóra, Bach og Grallarinn. Verkið var samið í tilefni af því að 500 ár eru nú frá upphafi siðbótarinnar og er ætlað að varpa ljósi á þátttöku og áhrif kvenna á mótunarárum siðbótarinnar. Flytjendur: Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk, leikkonurnar María Ellingsen og Steinunn Jóhannesdóttir, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran, Jóhanna Halldórsdóttir alt, Bragi Bergþórsson tenór, Benedikt Ingólfsson bassi. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju og félagar úr dömukórnum Aurora leiða söng. Listrænir stjórnendur: Diljá Sigursveinsdóttir og Guðný Einarsdóttir. Miðaverð: 2.500 kr. Miðasala í Hallgrímskirkju við innganginn og á midi.is. 31. október – þriðjudagur Siðbótardagurinn 12.00-12.30 95 TESUR LESNAR. Siðbótin hófst fyrir 500 árum þegar Marteinn Lúther negldi 95 tesur á kirkjudyr. Tesurnar, sem breyttu kirkjulífi, stjórnmálum og menningarlífi Evrópu, verða lesnar upp í heild í fyrsta sinn í kirkju á Íslandi. Umsjón hafa dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. 18.00-20.00 HALDIÐ UPP Á 500 ÁRA SIÐBÓTARAFMÆLIÐ! Afmælisveisla í Hallgrímskirkju því 500 ára siðbótarafmælisins er minnst á þessum degi um heim allan. Afmælisávarp- Lúthers minnst- kórsöngur- sálmasöngur! Eftir hátíðarhöldin í kirkjunni er öllum gestunum boðið í afmælisgleði í suðursal Hallgrímskirkju! Þátttakendur eru Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar, Björn Steinar Sólbergsson organisti, dr. Sigurður Árni Þórðarson sóknarprestur og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Gunnar J. Gunnarsson formaður nefndar um 500 ára siðbótarafmælið og afmælisgestirnir sem syngja með! Allir velkomnir! Hallgrímssöfnuður Fimm alda nefnd um siðbótarafmælið Sr. Arna Grétarsdóttir Hafsteinn Sv. Hafsteinsson GEGG- pappírsheildverslun Litróf Þakkir fá:hallgrimskirkja.is listvinafelag.is 2 5 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 D -C D 3 0 1 E 0 D -C B F 4 1 E 0 D -C A B 8 1 E 0 D -C 9 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.