Fréttablaðið - 25.10.2017, Side 58
Í orði guðs
Í orði guðs var allt í fyrstu mótað,
því orði sem er skráð í lífsins bók,
óplægð akurmold, ævi þín og starf,
eldur vatn og loft, hvaðeina sem
þarf
til að blómgist blessað líf á jörð.
Í orði guðs er aflið sterka falið,
því orði sem er skráð í lífsins bók,
gleði þín og sorg, gömul eða ný,
geislar sólarinnar, dimmust
næturský,
til að blómgist blessað líf á jörð.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
jan./feb. 2009
Sálmarnir mínir eru leik-mannsþankar um lífið og tilveruna, ortir út frá tilfinningum og per-sónulegri reynslu. Oftast samtal við almættið,“
segir skáldið Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson. Tilefnið er tónleik-
arnir Sálmar á nýrri öld sem verða í
Hallgrímskirkju á föstudag og hefj-
ast klukkan 20. Þar er um að ræða
sálma sem Aðalsteinn Ásberg hefur
ort og Sigurður Flosason samið
tónlist við. Lögin eru útsett fyrir
fjögurra radda kór og sungin af
Scola cantorum undir stjórn Harðar
Áskelssonar.
Dagskráin er hluti Lúthersdaga
sem standa yfir í kirkjunni 26. til
31. október, í tilefni af 500 ára
afmæli siðbótarinnar, og líka flutt
til heiðurs Hallgrími Péturssyni
á afmælisdegi hans.
Sálmar Aðalsteins og Sigurðar
hafa sumir þegar öðlast vinsældir
enda gaf Skálholtsútgáfan þá út
árið 2010 í heftinu Sálmar á nýrri
öld. „Ég hef fengið góð viðbrögð frá
almenningi og margir kórar hafa
nýtt sér efnið. Stundum þegar ég
kveiki á útvarpsmessunni á sunnu-
dögum heyri ég sálm sem ég kann-
ast við að hafa átt þátt í að búa til,“
segir Aðalsteinn Ásberg sem ekki
kveðst setja sig í sérstakar stell-
ingar þegar hann yrkir sálma. „Þeir
eru bara hluti af mínum yrkingum.
Siggi Flosa, félagi minn, á auðvitað
heiðurinn af tónlistinni. Allt byrj-
aði með einu jólaljóði og svo hefur
þetta undið upp á sig eftir því sem
tíminn líður.“
Höfundarnir völdu lög fyrir tón-
leikana með Herði söngstjóra og
ætla að koma þar fram. „Ég ætla
aðeins að segja frá og lesa upp
og Siggi útskýrir sinn þátt. Þann-
ig verða tónleikarnir aðeins brotnir
upp. Scola cantorum er frábær kór
og það er spennandi að heyra verk
sín í flutningi hans.“
Enn hefur Aðalsteinn Ásberg
ekki komist í hefðbundnu sálma-
bókina en kveðst eiga talsvert marga
í nýrri tilraunaútgáfu sem kemur
út endurbætt á næsta ári. „Þegar
maður skoðar sálmasöguna sést að
langflest sálmaskáld eru prestar og
guðfræðingar. Sýn mín er því dálítið
önnur en ég á mína trú.“
gun@frettabladid.is
Oftast samtal við almættið
Sálmar Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar við lög Sigurðar
Flosasonar verða sungnir af kórnum Scola cantorum undir
stjórn Harðar Áskelssonar í Hallgrímskirkju á föstudagskvöld.
Stundum þegAr ég
kveiki Á útvArpS-
meSSunni Á Sunnudögum
Heyri ég SÁlm Sem ég kAnn-
ASt við Að HAFA Átt þÁtt í
Að búA til.
Aðalsteinn Ásberg segir hafa verið af miklu að taka þegar efnisskráin var valin. „Þetta verður úrval, en gott úrval.“
FréttAblAðið/Ernir
FYRSTUR KEMUR
FYRSTUR FÆR
FIMMTUDAG
TIL SUNNUDAGS
HEFST Á
MORGUN
30-80%AFSLÁTTUR
4 daga
RÝMINGAR-
SALA
á völdum vörum
Þú getur einnig
lesið Fréttablaðið
í heild sinni á Vísi
og í Fréttablaðs-
appinu.
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r30 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
menning
2
5
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
D
-E
5
E
0
1
E
0
D
-E
4
A
4
1
E
0
D
-E
3
6
8
1
E
0
D
-E
2
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K