Fréttablaðið - 27.11.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.11.2017, Blaðsíða 10
Audi Q7 e-tron quattro er einstaklega vel útbúinn tengiltvinnbíll. Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. Audi Q7 e-tron quattro Spennuþrunginn Meðal staðalbúnaðar eru LED framljós, MMI Navigation Plus, íslenskt leiðsögukerfi og Audi Virtual stafrænt mælaborð. Q7 e-tron getur lagt sjálfur í stæði, bakkað með kerru og ýmislegt fleira en enginn annar fjöldaframleiddur bíll býður upp á fleiri aðstoðarkerfi. Með Audi Connect í símanum getur þú tengst bílnum, stýrt miðstöð, skoðað stöðu á rafhlöðu og fleira og þú þarft aldrei að setjast inn í kaldan bíl. Verð frá 10.290.000 kr. Bretland Ekki verður hægt að komast að neinni niðurstöðu um hvernig landamæragæslu á landa- mærum Írlands og Norður-Írlands, og þar með Bretlands, verður háttað fyrr en fríverslunarsamningur verður gerður á milli Bretlands og Evrópu- sambandsins. Þetta sagði Liam Fox, milliríkjaviðskiptaráðherra Bret- lands, í gær. Phil Hogan, framkvæmdastjóri ESB á sviði landbúnaðar og byggða- þróunar og fulltrúi Írlands, sagði hins vegar fyrr um daginn að Írar minntu á þá hótun sína að ríkið gæti beitt neitunarvaldi gegn hvers konar slíkum samningi þar til komin væri niðurstaða í landamæramálið. „Ef Bretland og Norður-Írland fengju áfram að vera í tollabanda- lagi Evrópusambandsins og jafnvel hluti af innri markaði þess yrði hins vegar ekkert vandamál með landa- mærin,“ sagði Hogan í viðtali við The Observer. Írska ríkisstjórnin hefur verið á þeirri línu að engin landamæragæsla yrði á milli ríkjanna allt frá því Bretar kusu að yfirgefa ESB. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur hins vegar áður sagt að Bretar muni hvorki tilheyra tolla- bandalaginu né innri markaðnum við útgönguna úr Evrópusamband- inu. Þessari skoðun May deilir Liam Fox. „Við viljum ekki að það verði landamæragæsla þarna en Bretar munu yfirgefa tollabandalagið og innri markaðinn.“ Ekki sé þó hægt að gefa lokasvar við landa mæra- spurningunni fyrr en viðræður við ESB séu komnar mun lengra. Er því kominn upp nokkurs konar hnútur í útgönguferlinu enda krefjast yfirvöld á Írlandi þess að fá skriflega staðfestingu á því sem allra fyrst að engin landamæragæsla yrði á landamærum Írlands og Norður- Írlands. John McDonnell, skuggafjármála- ráðherra stjórnarandstöðunnar á Bretlandi, fjallaði um ummæli Fox í gær og gagnrýndi. Sagði hann að Verkamannaflokkurinn væri ekki tilbúinn til að slá aðild að tolla- bandalagi og innri markaði út af borðinu. „Ég vona að forsætisráðu- neytið hafi ekki samþykkt þessa yfirlýsingu Fox,“ sagði McDonnell við ITV. Mairead McGuinness, Evrópu- þingmaður Írlands, gagnrýndi Fox einnig. Sagðist hún hafa áhyggjur af ummælum Fox og hvatti Breta eindregið til að halda sig innan bæði tollabandalagsins og innri markaðarins. „Ég vona að Bretar séu ekki að halda Írum í gíslingu í þessum útgönguviðræðum. Þetta er allt of alvarlegt vandamál til þess.“ Viðræður við ESB standa nú yfir og hafa gengið brösulega. Evrópu- sambandið gaf ríkisstjórn May nýlega frest til 4. desember næst- komandi til þess að skila tillögum um landamærin, frumvarp um að Bretar skuli áfram greiða þær upp- hæðir sem ríkið skuldbatt sig til að greiða ESB á meðan ríkið var aðili að sambandinu, og um réttindi borgara ríkja Evrópusambandsins búsettra í Bretlandi og öfugt. thorgnyr@frettabladid.is Enn einn hnúturinn í Brexit-ferlinu Ekki verður hægt að ræða um landamæragæslu á landamærum Írlands og Norður-Írlands fyrr en fríverslunarsamningar hafa náðst á milli Breta og ESB. Írar hóta hins vegar að beita neitunarvaldi gegn slíkum samningi þar til landamæramálið hefur verið rætt. Mögulegri landamæragæslu á landamærum Írlands og Norður-Írlands hefur verið mótmælt. Nordicphotos/AFp Ég vona að Bretar séu ekki að halda Írum í gíslingu í þessum útgönguviðræðum. Þetta er allt of alvarlegt vandamál til þess. Mairead McGuinn­ ess, Evrópuþing­ maður Írlands 2 7 . n ó v e m B e r 2 0 1 7 m Á n U d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 4 -2 3 0 4 1 E 5 4 -2 1 C 8 1 E 5 4 -2 0 8 C 1 E 5 4 -1 F 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.