Fréttablaðið - 27.11.2017, Blaðsíða 52
lya.is
20% afsláttur af öllum vörum í netverslun
okkar. Frí heimsending til miðnættis. Gildir
aðeins 27. nóvember í netverslun.
20%
afsláttur
af öllum vörum á netverslun.lya.is
STAFRÆNN
MÁNUDAGUR Ég gef árlega út dagatal og ég er að sýna myndirnar sem eru í þessu dagatali í ár. Ég var nú með allt aðra pælingu að dagatali en
það var útgefandi minn sem stakk
upp á að ég myndi fá einhverja aðra
til að „kovera“ teikningar eftir mig,“
segir Hugleikur Dagsson en hann
opnaði á laugardaginn í Gallerý
Porti á Laugaveginum sýninguna
Ábreiður en þar fær hann tólf aðra
listamenn til að túlka, eða „kovera“
myndir eftir hann. Sýningin stend
ur yfir í viku og mun Hugleikur vera
á svæðinu næstkomandi fimmtu
dag þar sem hann teiknar sérpant
aðar myndir fyrir gesti og gangandi,
en það er bara þann dag sem það
verður í boði.
Er útgefandinn kominn með
leiða á þér? „Já, hann er búinn að
fá rosalegan leiða á öllum þessum
peningum sem ég raka inn fyrir
hann. En allavegana, þá stakk hann
upp á þessu og ég samþykkti það –
svo ég þarf þá ekki að gera neitt í
rauninni. Ég hafði samband við tólf
listamenn, þá listamenn sem ég
var forvitinn að sjá hvernig myndu
túlka þessar teikningar, og gaf þeim
bara lausan tauminn – þau máttu
öll velja sína mynd og niðurstaðan
var þetta sem er hægt að kíkja á á
þessari sýningu. Það verður líka
hægt að kaupa dagatalið þarna.“
Hvaða fólk fékkstu þarna með
þér? „Þarna eru góðir vinir eins
og Þrándur Þórarinsson og Lóa
Hlín. Svo er líka fólk sem hefur
veitt mér innblástur eins og Sig
rún Eldjárn, Halldór Baldursson
og Þorri Hringsson – en hann er
minn gamli myndasögukennari.
Síðan eru þarna líka teiknarar sem
ég hef unnið með áður: Rán Flygen
ring, sem hefur teiknað fyrir heila
myndasögu og líka Pétur Antons
son og Árni Jón Gunnarsson – þau
hafa öll unnið með mér í mynda
söguprójektinu Endir sem ég gef út
árlega.“
Frá krúttulegum
spýtuköllum í
realískan hrylling
Hugleikur Dagsson gefur nú út sitt árlega dagatal fyrir næsta ár en sú
breyting er á að hann lét aðra listamenn um að gera ábreiður af mynd-
um hans. Verkin tólf verða öll til sýnis í Gallerý Porti út vikuna.
Hugleikur fékk vin sinn Þránd Þórarinsson til að henda í eitt stykki málverk. Fréttablaðið/anton brink
Ein mynda Hugleiks sést hér í aðeins öðruvísi búningi. Fréttablaðið/anton brink
2 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r32 l í f i ð ∙ f r É T T A b l A ð i ð
Lífið
2
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
4
-0
F
4
4
1
E
5
4
-0
E
0
8
1
E
5
4
-0
C
C
C
1
E
5
4
-0
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K