Morgunblaðið - 02.02.2017, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2. F E B R Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 28. tölublað 105. árgangur
KLASAR
SAMEINA
KRAFTA SÍNA SPENNANDI UPPFÆRSLA
SAMEIGINLEG
ÁSTRÍÐA Í
TÓNLISTINNI
ANDAÐU 31 REGGÍ OG SINFÓ NORD 30VIÐSKIPTAMOGGINN
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
FATAEFNI DAWOOD STÓLAR
20-80%
AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR
SÆNGURFATNAÐUR
30%
AFSLÁTTUR
ÚTSÖLU
LOK
20-80%
AFSLÁTTUR
Yfir Vesturbraut í Grindavík sveif fuglinn og blakaði vængj-
um. Dumbungur með blýgráum himni var yfir en útkoman
falleg mynd þar sem bæjarfjallið Þorbjörn er í baksýn. Þetta
er tekið í eldri hluta bæjarins, sem myndaði leiktjöldin þegar
kvikmyndin Salka Valka, byggð á skáldsögu Halldórs Lax-
ness, var að hluta til filmuð. Hermt er að margt í sögunni eigi
sér fyrirmyndir frá fyrri tíð í salfiskbænum Grindavík, sem
ofan í kaupið er þá líka bær bókmennta og sögupersóna sem
öðlast hafa sjálfstætt líf í minni þjóðarinnar.
Svífandi silfraður fugl á slóðum Sölku Völku
Dumbungur yfir saltfiskbænum og bæjarfjallið Þorbjörn í baksýn
Morgunblaðið/RAX
Þróunarfyrirtæki fyrir stórskipa-
höfn í Finnafirði verður stofnað á
þessu ári, að því er Maritime Journ-
al hefur eftir Lars Stemmler, yfir-
manni erlendra verkefna hjá Bre-
menports sem eiga aðild að
Finnafjarðarverkefninu með sveit-
arfélögum á Norðausturlandi, ís-
lenska ríkinu og Eflu. Hlutverk fé-
lagsins verður að afla verkefna
fyrir höfnina og fá fjárfesta til þró-
unar hennar. Stemmler segir að ef
allt gengur eftir geti framkvæmdir
hafist á árinu 2020.
Þróunarfélag stofn-
að um Finnafjörð
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Í gær varð mesta lækkun Úrvalsvísi-
tölunnar frá því í bankahruninu árið
2008, þegar vísitalan lækkaði um
6,07%. Lækkunin var leidd af 23,98%
lækkun á hlutabréfaverði Icelandair,
en sú lækkun er mesta gengislækk-
un félags á Aðalmarkaði frá því 27.
september árið 2010, þegar Eik
Banki lækkaði um 41%.
Lækkun Úrvalsvísitölunnar er
ennfremur fimmta mesta eins dags
lækkun vísitölunnar frá upphafi.
Lækkunin á gengi Icelandair
Group tengist afkomuspá sem félag-
ið sendi frá sér í gær þar sem gert er
ráð fyrir að EBITDA hagnaður
þessa árs verði 140-150 milljónir
Bandaríkjadala samanborið við 210-
220 milljóna dala EBITDA hagnað á
síðasta ári.
Helstu ástæður eru hægari bók-
anir og meiri lækkun meðalfargjalda
en spár höfðu gert ráð fyrir.
Þá þróun megi rekja til aukinnar
samkeppni og óvissu í alþjóðastjórn-
málum. Ennfremur spili óhagstæð
gjaldmiðlaþróun og olíuverðshækk-
un inn í.
Aðilar á fjármálamarkaði sem
Morgunblaðið ræddi við í gær sögðu
tilkynningu Icelandair valda von-
brigðum, og sögðu hana virka
„sjokkerandi“ á markaðinn. Nefndu
sumir að félagið hefði getað sent
skilaboð út á markaðinn fyrr, til
dæmis hvað varðar stöðu bókana.
Lækkun félaga eins og Marels um
2,9%, Össurar um 5,1% og Eimskips
um 4,2%, er talin afleiðing af lækkun
Icelandair. Almennt telja menn þó
að tiltrú á markaðinn hafi ekki
minnkað.
Mesta verðlækkun
hlutabréfa frá hruni
26,4 milljarða lækkun á markaðsvirði Icelandair Group
MViðskiptaMogginn
Lækkun hlutabréfaverðs
Icelandair frá áramótum
25
22
19
16
02.01. ‘17 01.02. ‘17
Markmið N1 er að
ekki verði meira
en 100 kílómetrar
á milli hrað-
hleðslustöðva fé-
lagsins hringinn
um landið, en fé-
lagið rekur 95 af-
greiðslustaði um
landið. Um tals-
verða fjárfestingu
er að ræða af hálfu fyrirtækisins því
stöð af þessu tagi kostar um þessar
mundir vart undir 10 milljónum
króna. Fyrsta skrefið verður stigið
innan skamms þegar unnt verður að
aka á rafbílum milli Reykjavíkur og
Akureyrar, í kjölfar þess að settar
verða upp stöðvar á Blönduósi og við
Staðarskála í Hrútafirði á næstu
mánuðum, en fyrirtækið rekur nú
þegar hraðhleðslustöð í Borgarnesi.
»ViðskiptaMogginn
Veðja á
rafmagnið
N1 rafhleðsluvæðir
leiðina til Akureyrar
Rafbílar Mun
fjölga ört.
Sú óvissa sem ríkir um viðbrögð
Ríkis íslams og stuðningsmanna í
Evrópu við því ef samtökin tapa yf-
irráðum sínum í Írak og Sýrlandi
hefur áhrif á mat á hryðjuverkaógn
í Evrópu og hér á landi. Greining-
ardeild ríkislögreglustjóra telur í
skýrslu um hryðjuverkaógn líklegt
að samtökin muni bregðast við mót-
læti á vígvöllum Mið-Austurlanda
með hertum árásum í Evrópu. »6
Óvissa ríkir um við-
brögð Ríkis íslams
bbbbm