Morgunblaðið - 02.02.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
ÚTSALAN
í fullum gangi
30-50%
afsláttur af öllum vörum
Flottir í fötum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Opna Reykjavíkurskákmótið verður
haldið í Hörpu dagana 19.-27. apríl.
Mótið er eitt hið þekktasta og vin-
sælasta í skákheiminum. Að þessu
sinni er mótið haldið mánuði seinna
en venja hefur verið, til þess að
skákmennirnir „geti notið Íslands
betur í hlýrra loftslagi og vorlit-
unum,“ eins og segir í kynningu.
Þetta er í þriðja
skiptið í röð sem
GAMMA er aðal-
styrktaraðili
mótsins.
Alls eru núna
177 skákmenn
skráðir til leiks
þrátt fyrir að enn
séu um 2½ mán-
uður í mót, að
sögn Gunnars
Björnssonar, for-
seta Skáksambands Íslands. Þar af
eru 46 íslenskir skákmenn og 131 er-
lendur skákmaður frá 39 löndum. Í
fyrra tóku 235 skákmenn þátt og þar
af 145 erlendir. Það stefnir því í afar
góða þátttöku í ár, en íslensku skák-
mennirnir skrá sig oft seint til leiks,
að sögn Gunnars.
Flestir hinna erlendu keppenda
eru Indverjar og Bandaríkjamenn,
en þaðan hafa 16 skráð sig frá hvoru
landi. Næstir eru Kanadamenn og
Þjóðverjar með 10 keppendur hvor
þjóð.
25 stórmeistarar eru skráðir til
leiks, sem er verulega gott, en 24
stórmeistarar tóku þátt í fyrra.
Ljóst er að það á eftir að bætast við í
þann hóp, m.a. íslenskir stórmeist-
arar. Mótið nú verður umtalsvert
sterkara í ár en í fyrra, að sögn
Gunnars. Stigahæstur þeirra sem
hafa skráð sig er hollenski stór-
meistarinn Anish Giri (2.769) sem er
þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára á
topp 10 í heiminum. Giri teflir afar
sjaldan á opnum skákmótum og því
er afar gaman að fá hann til landsins
nú, segir Gunnar. Næststigahæstur
keppenda er Dmitry Andreikin
(2.734), 28 ára Rússi, með afar kröft-
ugan skákstíl.
„Einn allra mest spennandi kepp-
andi mótsins er án efa Georgíu-
maðurinn Baadur Jobava (2.701). Sá
teflir afar frumlega og minnir stíll
hans oft á Mikhail Tal. Og talandi
um Tal og léttleikandi skákmenn.
Lettinn Alexei Shirov (2.683) teflir
nú á fyrsta skipti á Reykjavíkur-
skákmóti í 25 ár, en árið 1992 sigraði
hann á mótinu ásamt Jóhanni Hjart-
arsyni. Shirov er þekktur fyrir sinn
leiftrandi stíl og hikar ekki við að
fórna mönnum þegar svo hentar,“
segir Gunnar.
Öflugar skákdrottningar
Skákdrottningarnar láta sig ekki
vanta að sögn Gunnars. Hin ind-
verska Tania Sachdev, sem stal sen-
unni í fyrra þegar hún vann kvenna-
verðlaunin og tók um leið áfanga að
stórmeistaratitli, tekur þátt. Landa
hennar, Harika Dronavalli (2.539),
sem er sjöunda stigahæsta skák-
kona heims, er meðal keppenda.
Tvær kornungar skákkonur frá Kas-
akstan, Zhansaya Abdumalik Ah-
ansaya (2.430) og Dinara Saduakas-
sova (2.428), eru einnig meðal
keppenda. Sú fyrrnefnda er núver-
andi heimsmeistari undir tvítugu.
Mögulega mun svo allra sterkasta
skákkona heims taka þátt en það
mun skýrast á næstu dögum. EM
kvenna er á sama tíma og því vantar
nokkuð sterkar evrópskar skák-
konur.
Stefnir í afar sterkt
Reykjavíkurskákmót
Mótið er nú haldið mánuði seinna en venja hefur verið
Morgunblaðið/Eggert
Harpa Það er þétt setinn bekkurinn á Reykjavíkurskákmótinu. Mótið er afar
vinsælt meðal skákmanna og áhugamanna um skák, sem fjölmenna í Hörpu.Gunnar
Björnsson
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Húsnæðið uppfyllir ekki þau skil-
yrði sem gerð eru til geymslu safn-
muna og því sögðum við upp samn-
ingi við Ísafjarðarbæ um leigu á
geymsluhúsnæði í Norðurtanganum
á Ísafirði,“ segir Jón Sigurpálsson,
forstöðumaður Byggðasafns Vest-
fjarða, en sumarið 2015 komst á
samkomulag milli Ísafjarðarbæjar
og Hraðfrystihúss Norðurtanga um
10 ára leigu í Norðurtanganum und-
ir geymslur fyrir Byggðasafnið,
skjala-, ljósmynda- og listaverkasafn
bæjarins.
„Í húsinu var ekkert brunavarnar-
kerfi og engir neyðarútgangar. Slíka
aðstöðu getum við ekki sætt okkur
við og verðum því að leita annað,“
segir Jón.
Sárvantar geymslupláss
Byggðasafn Vestfjarða býr yfir
stóru safni muna og eru allar
geymslur safnsins fullar. Jón segir
safnið þurfa nýtt húsnæði undir
geymslur bæði til að flokka, vinna og
geyma muni milli sýninga.
„Líkt og í flestum söfnum er að-
eins hluti þeirra muna sem safnið á
til sýnis hverju sinni. Þess vegna er
mikilvægt að hafa gott geymslu-
húsnæði.“
Spurður hvort safnið geti þá ekki
tekið við fleiri munun eða hvort
munir liggi undir skemmdum segir
hann svo alls ekki vera.
„Við höfnum aldrei góðum munum
og þeir sem nú eru í vörslu safnsins
eru í góðri geymslu. Við þurfum hins
vegar stærra húsnæði til að geta
styrkt starfsemina.“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ísafjörður Frá leiksýningu fyrir utan byggðasafnið í Neðstakaupstað á Ísa-
firði, sett upp fyrir farþega skemmtiferðaskipanna á björtum sumardegi.
Geymsluhúsnæði
safnsins ónothæft
Byggðasafn
» Byggðasafn Vestfjarða hefur
sagt upp leigusamningi við Ísa-
fjarðarbæ.
» Geymsluhúsnæði í Norður-
tanganum uppfyllir ekki skil-
yrði safnsins.
» Ekkert brunavarnarkerfi eða
neyðarútgangar.
» Þrátt fyrir plássleysi tekur
safnið enn við öllum góðum
gripum.
Byggðasafn Vestfjarða í vanda
Á Reykjavíkurskákmótinu er
mikil áhersla á að krækja í
undrabörn að sögn Gunnars. Má
þar nefna að Magnús Carlsen
tefldi hér fyrst kornungur. Meðal
keppenda nú er hinn indverski
Ramesh Praggnanandhaa (2.437
Elo-stig), sem er aðeins 11 ára.
Hann er af mörgum talinn líkleg-
ur til að slá met Karjakin sem
yngsti stórmeistari skáksög-
unnar (12 ára og 7 mánaða).
Og svo eru það goðsagnirnar.
Þar má fyrst nefna Eugenio Torre
(2.495) frá Filippseyjum, sem er
að tefla á sínu fyrsta Reykjavík-
urskákmóti í 37 ár. Hann er 64
ára og enn í fantaformi, hlaut 10
vinninga af 11 á síðasta Ólympíu-
skákmóti. Hann hefur teflt á 23
Ólympíuskákmótum, sem er
met.
11 ára meist-
ari teflir hér
UNDRABÖRN EFTIRSÓTT
Ungur Ramesh Praggnanandhaa.