Morgunblaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Þá er sjónvarpsstöðin N4 flutt á
efstu hæðina úr miðbænum, en þó-
nokkur hluti norðurenda Linduhúss-
ins hefur verið lítið notaður síðustu
misseri, síðan Tónlistarskólinn á Ak-
ureyri var fluttur í Hof.
Norðurslóð Arngríms Jóhanns-
sonar, margvísleg sýning um sögu,
lífshætti og náttúru á norðurslóðum,
var opnuð á laugardaginn með pomp
og prakt. Norðurslóð - Into the Arc-
tic er neðst á Oddeyri, í húsinu þar
sem skemmtistaðurinn Oddvitinn
var síðast.
Fjöldi fólks var viðstaddur opn-
unina og gerður var mjög góður
rómur að sýningunni, en hún er enn
„í fæðingu“ eins og Arngrímur tók
til orða.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr-
verandi forseti Íslands, opnaði
Norðurslóð formlega ásamt Arn-
grími með því að klippa á lopafléttu.
Í ávarpi við þetta tækifæri velti Ólaf-
ur Ragnar því meðal annars fyrir
sér hvað fólki væri boðið að skoða.
Væri þetta sýning, setur eða safn?
Kom svo með þá líkingu að á Norð-
urslóð væri fólki væri frekar boðið í
ferðalag. Fólki væri boðið í ferð þar
sem víða væri komið við og stutt
heimsókn gæfi fjölbreytilega mynd
af norðurslóðum og innsýn í heim
sem væri flestum framandi og geysi-
mörgum alveg ókunnugur.
Svo skemmtilega vill til að starfs-
ferill Arngríms, þessa kunna flug-
stjóra til áratuga, hófst í húsinu þar
sem Norðurslóð er núna. Þar var
BSA til húsa, fyrirtæki Kristjáns
bílakóngs sem svo var kallaður og
Arngrímur sendill hjá Kristjáni!
Látra-Björg virðist skyndilega
komin í tísku, þrjú hundruð árum
eftir að hún fæddist. Skáldsaga kom
út um Björgu fyrir jólin og minn-
isvarði um þessa merku skáldkonu
og sjósóknara var afhjúpaður við
Stærri-Árskógskirkju á Árskógs-
strönd fyrir nokkrum dögum. Þar er
hún talin fædd og þaðan sér yfir á
Látraströndina.
Grenvíkingar gerðu sjálfir
minnisvarða um Látra-Björgu og
var hann afhjúpaður á sjó-
mannadaginn, 5. júní 2010. Grýtu-
bakkahreppur bar kostnað af verk-
efninu og stendur minnisvarðinn við
Útgerðarminjasafnið á Grenivík.
Leikverkið Sóley Rós ræsti-
tæknir sem María Reyndal og Sól-
veig Guðmundsdóttir skrifuðu upp
úr viðtali við norðlenska konu, verð-
ur sýnt í Samkomuhúsinu á morgun,
föstudag og á laugardag.
Verkið fjallar um alvöru norð-
lenska hvunndagshetju, líf hennar,
ástir og örlög. Hún verður fyrir sár-
um missi og verkið segir frá því
hvernig það hefur áhrif á hennar
lífssýn og lífsspeki. „Meinfyndið og
grátbroslegt verk um samtímann
sem tekur á mikilvægum málefnum
sem allir hafa skoðanir á og varða
okkur öll,“ segir í tilkynningu.
Sóley Rós ræstitæknir var
frumsýnt í Reykjavík í september.
Sýningin var valin ein af bestu leik-
sýningum ársins 2016 af gagnrýn-
endum Morgunblaðsins og Frétta-
blaðsins. Leikferðin norður er í
samstarfi við Háskólann á Akureyri
í tilefni af 30 ára afmæli háskólans.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Vænn afli Þrátt fyrir sjómannaverkfall berst fiskur að landi alla daga, mörgum til ómældrar ánægju. Trillukarl-
arnir Ingólfur Vilhjálmsson og Jón Sævar Grétarsson á Finni EA lönduðu í smábátahöfninni í Sandgerðisbót á Ak-
ureyri um hádegisbil í gær. Aflinn var milli sjö og átta hundrað kíló, uppistaðan þorskur, sem veiddist í firðinum.
„Ferðalag“ um
Norðurslóðir
Ljósmynd/Þorgeir
Norðurslóð Arngrímur Jóhannsson og Ólafur Ragnar Grímsson, sem opn-
uðu norðurslóðasetur Arngríms formlega með því að klippa á lopafléttu.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Segja má að mikið líf hafi færst í
gamla Linduhúsið á Oddeyri á
fyrstu vikum ársins. Þaðan lagði
súkkulaðiilm yfir Eyrina í gamla
daga þegar Eyþór í Lindu réð ríkj-
um í sælgætisgerðinni en nú er það
brauðilmur. Axels bakarí flutti
nefnilega á jarðhæðina á dögunum.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
20
17
Lýsing á breytingu á aðalskipulagi á Akranesi
vegna Sementsreits
Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 24. janúar 2017 að auglýsa lýsingu vegna
breytingar á aðalskipulagi fyrir Sementsreit skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010. Breytingin felst í því að iðnaðarsvæði er í breytt í miðsvæði og
íbúðarsvæði auk þess sem hluta hafnarsvæðis er breytt í miðsvæði. Samhliða
breytingu á aðalskipulagi verður deiliskipulag fyrir reitinn kynnt.
Lýsing á breytingu á aðalskipulagi á Akranesi
vegna Dalbrautar - Þjóðbrautarreits
Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 24. janúar 2017 að auglýsa lýsingu
vegna breytingar á aðalskipulagi sem er hluti miðsvæðis M4, milli Dalbrautar og
Þjóðbrautar, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst m.a. í
því að miðsvæði M4 er stækkað til norðurs og mun svæðið vera með blandaðri
landnotkun. S8/V6/A7 mun minnka að sama skapi. Breyting á deiliskipulagi Dal-
braut-Þjóðbraut verður kynnt samhliða breytingu á aðalskipulagi.
Hægt er að nálgast lýsingarnar á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is
og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.
Ábendingar varðandi tillögurnar eiga að vera skriflegar og berast fyrir 20. febrúar
2017 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið
skipulag@akranes.is.
Opinn kynningarfundur
Opinn kynningafundur á lýsingum fyrir Sementsreit og Dalbraut-Þjóðbraut verður
haldinn þann 16. febrúar í sal Grundaskóla á Akranesi frá kl. 18:00 til 20:00.
Nánar auglýst síðar.
Áströlsku hjónin David og Gail Wil-
son, sem grófu sig í snjó á Lang-
jökli eftir að þau urðu viðskila við
vélsleðahóp á vegum Mountaineers
of Iceland hafa leitað aðstoðar lög-
manns til að kanna skaðabóta-
skyldu fyrirtækisins. Árni Helga-
son lögmaður þeirra sagði í samtali
við mbl.is í gær að forsvarsmenn
Mountaineers of Iceland höfnuðu
algjörlega bótaskyldu. „Þau leituðu
til mín hjónin og ég tók að mér
þeirra mál. Ég sendi almenna fyrir-
spurn á fyrirtækið til að kalla eftir
gögnum og spyrja út í þeirra af-
stöðu og fékk það svar að þeir
höfnuðu alfarið bótaskyldu,“ segir
Árni. Fékk hann send gögn og seg-
ir málið vera í vinnslu en endanleg
ákvörðun um framhaldið liggur
fyrir á næstu vikum.
„Við reiknum fastlega með því
að mál verði höfðað og þá verði
þetta bara eitthvað sem verður tek-
ist á um fyrir dómstólum.“ Fyrir-
spurn Árna snerist um bætur
vegna beins tjóns og miskabætur
vegna þeirrar erfiðu lífsreynslu
sem atvikið var. „Þau voru auðvit-
að þarna í lífshættu,“ bætir Árni
við.
Hafna
bótaskyldu