Morgunblaðið - 02.02.2017, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
alvöru grillaður kjúklingur
Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585
Opið alla daga kl. 11-22
Tveir meðlimir rússnesku leyni-
þjónustunnar FSB voru handteknir
í síðustu viku ásamt starfsmanni
Kaspersky-hugbúnaðarfyrirtæk-
isins. Mennirnir þrír eru sakaðir
um að hafa framið landráð í þágu
Bandaríkjanna.
Mennirnir þrír eru allir sérfræð-
ingar í tölvu- og netöryggismálum,
sem leiddi til vangaveltna um að
málið tengdist forsetakosningunum
í Bandaríkjunum síðasta haust, en
Rússar eru grunaðir um að hafa
staðið að gagnaleka úr herbúðum
bandaríska Demókrataflokksins.
Dmitri Peskov, talsmaður Pútíns
Rússlandsforseta, sagði að engin
tenging væri þarna á milli, af þeirri
einföldu ástæðu að Rússar hefðu
ekki haft neitt með netárásina á
demókrata að gera.
Samkvæmt Ivan Pavlov, lögfræð-
ingi eins mannanna, gætu málaferl-
in gegn þremenningunum dregist á
langinn, og eru fleiri grunaðir um
aðild að málinu.
Þrír handteknir fyrir
að fremja landráð
RÚSSLAND
Ryan Lock, tví-
tugur piltur frá
Vestur-Sussex í
Englandi, lét lífið
í bardaga við
vígasveitir Ríkis
íslams í sýrlensku
borginni Raqqa
21. desember sl.
Var hann þar í landi sem sjálf-
boðaliði til að berjast við hlið YPG,
sem er vopnaður hópur Kúrda.
Breska ríkisútvarpið (BBC)
greinir frá því að Lock hafi, ásamt
nokkrum liðsmönnum YPG, verið
umkringdur af vígamönnum og í
kjölfarið ákveðið að beita eigin
vopni á sjálfan sig í stað þess að
vera handsamaður af óvininum.
Jarðneskar leifar piltsins verða
sendar fjölskyldu hans í vikunni.
RAQQA Í SÝRLANDI
Kaus sjálfsvíg til að
forðast Ríki íslams
James Mattis, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hélt í gær til Japan
og Suður-Kóreu í þeim tilgangi að
funda með ráðamönnum ríkjanna og
styrkja sambönd þjóðanna enn frek-
ar. Er þetta fyrsta skipti sem ráð-
herra úr ríkisstjórn Donalds Trump
Bandaríkjaforseta fer í opinbera
heimsókn til erlends ríkis.
„Ferðin er til marks um þær
skuldbindingar sem Bandaríkin hafa
í garð bandamanna okkar Japan og
Suður-Kóreu og farin í þeim tilgangi
að styrkja samvinnu ríkjanna þegar
kemur að öryggismálum,“ segir í til-
kynningu frá Pentagon, varnar-
málaráðuneytinu í Washington DC.
Í kosningabaráttu sinni talaði
Donald Trump meðal annars um að
ríkin tvö ættu að leggja meira af
mörkum til varnarmála, en um
28.500 bandarískir hermenn eru nú í
Japan og um 47.000 í Suður-Kóreu.
Þá hefur talsmaður Pentagon einnig
tilkynnt um sameiginlega heræfingu
Bandaríkjamanna og Suður-Kóreu í
mars nk., en æfingarnar eru haldnar
árlega.
AFP
Herveldi James Mattis varnarmálaráðherra sést hér fyrir utan Pentagon.
Mattis í opinbera
heimsókn til Asíu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Forseti Bandaríkjanna, Donald
Trump, útnefndi í fyrrakvöld alríkis-
dómarann Neil Gorsuch til hæstarétt-
ar Bandaríkjanna. Er honum ætlað
að fylla það skarð sem andlát Antonin
Scalia skildi eftir í réttinum, en nærri
því heilt ár er liðið síðan hann lést.
Ekki gekk hins vegar að skipa nýjan
dómara á þeirri stundu, þar sem
repúblíkanar í öldungadeild Banda-
ríkjaþings neituðu að staðfesta Mer-
rick Garland, sem Barack Obama, þá-
verandi Bandaríkjaforseti, útnefndi
til starfans.
Sá yngsti í 26 ár
Gorsuch, sem er 49 ára gamall,
dæmir við áfrýjunardómstól alríkis-
ins í Denver í Colorado. Hann hefur
getið sér gott orð meðal samdómara
sinna og annarra lögfræðinga, þykir
lipur í lagamáli og skýr í úrskurðum.
Verði útnefning Gorsuchs staðfest
verður hann yngsti hæstaréttardóm-
arinn síðan Clarence Thomas, þá 43
ára, hlaut útnefningu George Bush
eldri árið 1991. Líkt og Scalia er Gor-
such talinn horfa aftur til „upprun-
ans“ þegar kemur að túlkun hans á
stjórnarskrá Bandaríkjanna, það er,
að hann vill nálgast hana út frá þeirri
merkingu sem stofnendur Bandaríkj-
anna lögðu sjálfir í skjalið.
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs
segja að Trump hafi komið nokkuð á
óvart með útnefningunni á Gorsuch,
þar sem forsetinn hefur látið mikið til
sín taka og þótt óhefðbundinn í lausn-
um þann skamma tíma sem hann hef-
ur verið í embætti. Gorsuch sé hins
vegar „merkilega hefðbundið“ val í
embætti hæstaréttardómara. „Millj-
ónir kjósenda sögðu að [val á nýjum
hæstaréttardómara] væri mikilvæg-
asta kosningamálið þegar þeir kusu
mig sem forseta,“ sagði Trump þegar
hann kynnti Gorsuch til leiks.
Útnefningarferlið ekki búið
Útnefning Gorsuchs þýðir þó ekki
að hann sé sjálfkjörinn í embættið,
þar sem nú þarf öldungadeild þings-
ins að staðfesta útnefninguna, en
repúblíkanar hafa einungis 52 þing-
menn af 100 í deildinni og 60 atkvæði
þarf til að koma í veg fyrir málþóf.
Gorsuch þarf því að sannfæra minnst
átta demókrata um að hann sé réttur
maður til þess að gegna embættinu.
Trump útnefndi Gorsuch
AFP
Útnefndur Trump Bandaríkjaforseti (til hægri) var ánægður með val sitt á
Neil Gorsuch í embætti hæstaréttardómara, sem hér sést þakka fyrir valið.
Trump þykir hafa komið á óvart með því að útnefna „hefðbundinn“ kandídat í
hæstarétt Bandaríkjanna Gorsuch þarf að sannfæra minnst átta demókrata
Blóðug átök milli Úkraínuhers og
rússneskumælandi uppreisnar-
manna héldu áfram í iðnaðarbæn-
um Avdiivka í gær, en um er að
ræða mestu átök í austurhluta
Úkraínu um langt skeið. Frétta-
veita AFP greinir frá því að minnst
19 hafi fallið er hermenn og upp-
reisnarmenn skiptust á skotum.
Ljósmyndari AFP náði mynd af
því þegar Úkraínuhermenn hituðu
máltíð yfir opnum eldi í Avdiivka.
Fyrir aftan þá má sjá tjald sem reist
var til að halda hita á íbúum bæjar-
ins, en orkuver þar eru mörg hver
óvirk eftir langvarandi átök.
Átökin í austurhluta Úkraínu halda áfram
Stund milli
stríða í vetr-
arkuldanum
AFP