Morgunblaðið - 02.02.2017, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Hjálmar Herbertsson, bóndi á Steindyrum í Svarfaðardal, á 50ára afmæli í dag. Þau Gunnhildur Gylfadóttir, kona hans, tókuvið búinu af afa og ömmu Gunnhildar árið 1994. Hjálmar er
hins vegar úr Skagafirði, ólst upp á Dalvík frá tveggja ára aldri og bjó
þar þangað til þau hjónin fluttu að Steindyrum.
„Ég lærði vélstjórann og starfaði sem slíkur nokkur ár á sjónum, en
það blundaði alltaf í mér að verða bóndi, hafði verið í sveit í Svarf-
aðardal mörg sumur. Svo þegar búið á Steindyrum bauðst okkur stukk-
um við á það.“ Þau eru með blandaðan búskaup, um 60-70 kýr, 100 aðra
nautgripi, 100 ær, hesta og geitur
Hjálmar og Gunnhildur eru núna stödd fyrir sunnan. „Bænda-
samtökin eiga íbúð í Kópavogi, við erum þar og ætlum að hafa það náð-
ugt á afmælisdaginn.“ Þau voru þó að sjálfsögðu stödd fyrir norðan um
síðustu helgi, en þá var haldið þorrablót í Svarfaðardalnum. „Það er
alltaf stór veisla og mikill fjöldi mætir og þetta var hörkufjör. það er oft
margt um manninn heima á Steindyrum svo sem um verslunarmanna-
helgi þegar hátíðin „Halló Steindyr“ er haldin og síðan réttirnar en þá
efnum við til stórrar veislu á Steindyrum og höfum opið hús.“ Meðal
fastra viðburða er að þá er horft á Áramótaskaupið frá 1985.
„Annars er ekkert nýtt að frétta úr búskapnum. Við vorum að taka
íbúðarhúsið í gegn, það hefur verið verkefni vetrarins, og erum að
klára það.“
Börn Hjálmars og Gunnhildar eru Herbert, f. 1991, smiður, maki
hans er Þórdís Halldórsdóttir og búa þau á Ytri-Hofdölum í Skagafirði,
Jón Bjarki, f. 1993, kláraði Kvikmyndaskóla Íslands um áramót, Gylfi
Már, f. 1995, býr heima, og Kristrún Birna, f. 1998, býr heima.
Fjölskyldan á Steindyrum Hjálmar, Gunnhildur og börnin.
Hefur það náðugt
sunnan heiða
Hjálmar Herbertsson er fimmtugur í dag
U
nnur fæddist í Reykja-
vík 2.2. 1957 en fjöl-
skyldan flutti til
Bandaríkjanna þegar
hún var ársgömul og
bjó í Illinois og í Berkeley í Kali-
forníu á árunum 1958-62 þar sem
faðir hennar var við nám og störf.
Við heimkomuna byggðu foreldrar
hennar hús í Garðahreppi, síðar
Garðabæ, og þar ólst Unnur upp frá
sjö ára aldri, elst fjögurra systkina:
„Þetta var hálfgerð sveit á þeim ár-
um með nánu nágrannasamfélagi.
Ég gekk í barnaskóla og gagnfræða-
skóla Garðahrepps en eftir lands-
próf fór ég í Verslunarskólann. Ég
fékk útrás fyrir flökkueðlið á ung-
lingsárunum með því að vinna í Nor-
egi en þar hef ég verið í Þrándheimi,
Lyngdal á Suðurlandinu og Nord-
fjordeid á Vesturlandinu, við barn-
fóstrustörf, skógrækt og fleira.“
Eftir stúdentspróf var Unnur rit-
ari í bankaeftirliti Seðlabankans,
sem varð nokkur örlagavaldur í lífi
hennar: „Þetta var einnig við-
burðaríkur tími að öðru leyti: Ég
kynnist Óskari, manninum mínum,
og faðir minn veiktist alvarlega og
lést ári síðar. Eftir árið sem ritari
varð lögfræðin fyrir valinu. Fagið
átti vel við mig og ég átti góð há-
skólaár. Ég útskrifaðist vorið 1983,
ófrísk að Ingu Þóreyju, dóttur
minni. Við fluttum til Toronto í Kan-
ada um sumarið og þar fæddist
frumburðurinn.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins – 60 ára
Kát og myndarleg fjölskylda Unnur og Óskar með dætrum sínum tveimur, tengdasonunum og barnabörnunum.
Alltaf tími fyrir góða bók
Í landi skóga og vatna Unnur og Óskar á ferðalagi í Finnlandi árið 2009.
Reykjavík Bjartur
Sindrason fædd-
ist 5. janúar 2016
kl.10.06 á Land-
spítalanum í
Reykjavík. Hann
vó 3.942 g og var
52 cm langur. For-
eldrar hans eru
Sindri Tryggva-
son og Unnur
Skúladóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isFaxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
Opið virka daga frá 10-18 – Laugardagar 11-15
SÍÐUSTU DAGAR
ÚTSÖLUNNAR