Morgunblaðið - 02.02.2017, Page 27
Seinna árið í Toronto fór ég í
framhaldsnám í lögfræði. Þegar
heim kom fékk ég draumastarfið,
sem dómarafulltrúi í Borgardómi
Reykjavíkur.“
Yngri dóttirin, Helga Guðrún,
fæddist 1987 og 1990 fór Unnur aft-
ur í bankaeftirlitið, en nú sem lög-
fræðingur. Fjölskyldan flutti síðan
til Brussel 1995 þar sem Unnur var
sérfræðingur við EFTA-skrifstof-
una þar í fjármálaþjónustu í
tengslum við EES-samninginn:
„Þetta var skemmtilegur og lær-
dómsríkur tími fyrir okkur öll.“
Fjölskyldan flutti svo heim aftur
árið 2000. Unnur stundaði lög-
mennsku og var framkvæmdastjóri
Fjölgreiðslumiðlunar hf. fyrstu tvö
árin. Hún varð síðan skrifstofustjóri
í samgönguráðuneytinu. Eftir sjö ár
í ráðuneyti var hún settur héraðs-
dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
í eitt ár. En þá tók Fjármálaeftirlitið
við. Hún var fyrst yfirlögfræðingur
þar en hefur nú verið forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins í fimm ár: „Það var
virkilega gaman að koma aftur, bæði
í dómstólinn og í eftirlitið.“
Unnur er lestrarhestur í frí-
stundum og reyndar yfirleitt: „Það
er sama hvað ég hef mikið að gera.
Ég finn mér alltaf tíma til að lesa
góðar bækur. Mér finnst spennandi
að kynnast nýjum stöðum, fólki og
menningu. En eftir að ég flutti aftur
heim hef ég haft sívaxandi ánægju af
að ferðast um okkar fallega land og
njóta þeirrar útivistar sem það hefur
uppá að bjóða.“
Fjölskylda
Eiginmaður Unnar er Óskar Ein-
arsson, f. 8.5. 1954, vélaverkfræð-
ingur, rekstrarstjóri á Hugvís-
indasviði HÍ. Foreldrar hans: Einar
S.M. Sveinsson, f. 27.12. 1928, d. 4.5.
2012, framkvæmdastjóri í Hafnar-
firði, og k.h., Ingveldur Óskars-
dóttir, f. 31. 12. 1927, húsmóðir í
Hafnarfirði.
Dætur Unnar og Óskars eru : 1)
Inga Þórey Óskarsdóttir, f. 20.10
1983, lögfræðingur í Reykjavík, en
maður hennar er Ragnar Skúlason
hugbúnaðarverkfræðingur og eru
börn þeirra Unnur Efemía, f. 2008,
Gísli Hrafn, f. 2010, og Ari, f. 2015,
og 2) Helga Guðrún Óskarsdóttir, f.
18.6. 1987, hugbúnaðarverkfræð-
ingur og doktorsnemi í Reykjavík,
en maður hennar er Ævar Gunnar
Ævarsson verkfræðingur og er dótt-
ir þeirra Laufey Ósk, f. 2015.
Systkini Unnar eru Gísli Þór
Gunnarsson, f. 31.12. 1958, Áslaug
Gunnarsdóttir, f. 23.10.1964, læknir,
og Elín Gunnarsdóttir, f. 24.7. 1974,
leikkona.
Foreldrar Unnar: Gunnar Sig-
urðsson, f. 5.4. 1933, d. 4.11. 1978,
byggingaverkfræðingur, Ph.D, og
k.h., Helga Ólafsdóttir, f. 5.10.1034,
hjúkrunarritari.
Úr frændgarði Unnar Gunnarsdóttur
Unnur
Gunnarsdóttir
Margrét Sigurðardóttir
húsfr. og ljósmóðir á
Sámsstöðum
Ólafur Guðmundsson
b. á Sámsstöðum í
Hvítársíðu
Sigurður Ólafsson
verslunarm. í Borgarnesi
Unnur Gísladóttir
kennari í Reykjavík
Gunnar Sigurðsson
byggingaverkfr. Ph.D., í
Garðabæ
Gísli Magnússon
rakari og skósmiður í
Borgarnesi
Katrín Runólfsdóttir
húsfr. í Borgarnesi
Valdimar Ólafsson
endurskoðandi
Jóhann Valdimarsson
vélstj. og pípulagn-
ingam. í Rvík
Ólafur Sigurðsson
arkitekt
Haraldur Jóhannsson
hagfr., rith. og fyrirlesari
við háskólann íMalaja og
við háskólann íWirwater-
stand í Suður-Afríku
Dagfinnur Jónsson
sjóm. í Rvík
Halldóra Elíasdóttir
húsfr. í Rvík
Ólafur Dagfinnsson
verkam. í Rvík
Þórlaug
Valdimarsdóttir
húsmóðir í Rvík
Helga Ólafsdóttir
hjúkrunarritari í
Garðabæ og Rvík
Helga Pálsdóttir
húsfr. á Sóleyjarbakka í
Hrunam.hr., af Reykjaætt
Guðrún
Brynjólfsdóttir
húsfr. í Hólakoti í
Hrunamannahr.
Pálína
Guðmundsdóttir
húsfr. í Eystra-Geldinga-
holti í Gnúpverjahr.
Jón Ólafsson
b. í Eystra-
Geldingaholti
Hrafnhildur
Stefánsdóttir
lögfr. hjá
Samtökum
atvinnulífsins
Inga Ólafsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigþrúður
Jónsdóttir
líffræðingur
Valdimar Brynjólfsson
b. á Sóleyjarbakka, af
Kópsvatnsætt
Marta Brynjólfsdóttir
húsfr. í Kolsholtshelli í Flóa
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Bakkafirði
Kristinn Pétursson
útgerðarm.og fyrrv.
alþm.á Bakkafirði
Afmælisbarnið Unnur Gunnars-
dóttir á góðum degi.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
90 ára
Jóna Margrét Júlíusdóttir
Oddný Eyjólfsdóttir
85 ára
Einar Baldvinsson
Gyða Svavarsdóttir
80 ára
Björg Gunnarsdóttir
Helga H. Björnsdóttir
Hólmfríður Elsa
Guðmundsdóttir
75 ára
Anatoly Bragin
Áslaug Diðriksdóttir
Edmund Bellersen
Kolbrún I. Guðmundsdóttir
Margrét Steingrímsdóttir
Ragnheiður Heiðreksdóttir
Sigríður B. Jóhannsdóttir
70 ára
Einar Ingólfsson
Guðni Agnarsson
Hans Sigurbjörnsson
Hjördís Guðmundsdóttir
Hrefna Þórarinsdóttir
Hrönn Sigurgeirsdóttir
Pálmi Þorsteinsson
Pétur I. Pétursson
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
Ragnhildur Ólafsdóttir
Signý H. Valdimarsdóttir
Sigrún Bjarnadóttir
Snæbjörn Magnússon
Sunneva Traustadóttir
Þórir Steingrímsson
60 ára
Arna Hrafnsdóttir
Bryndís Torfadóttir
Hafþór Harðarson
Hellen M. Gunnarsdóttir
Indriði Þorkelsson
Ingimar Arndal Árnason
Kristín E. Guðjónsdóttir
Rögnvald Othar Erlingsson
Sigríður Marteinsdóttir
Svava Loftsdóttir
Þorsteinn Guðnason
50 ára
Bjarni Jakob Stefánsson
Dalia Lileikiene
Guðlaugur B. Ásgeirsson
Guðný H. Axelsdóttir
Hjálmar Herbertsson
Hörður Traustason
Jón Þór Aðalsteinsson
Marian Varga
Rut Karol Hinriksdóttir
Sigríður K. Andrésdóttir
Þorgrímur V. Guðbjartsson
Þrúður Sjöfn Sigurðardóttir
40 ára
Erlingur Heiðar Sveinsson
Guðbjörg H. Eyþórsdóttir
Gunnar Geirsson
Hlynur Örn Zophoníasson
Inga Rós Guðmundsdóttir
Jóhannes Jósepsson
María Kristín Rúnarsdóttir
Ólöf Birna Björnsdóttir
Pálmar Guðmundsson
Steinberg Antonsson
Þórhallur Helgason
30 ára
Agnar K. Hermannsson
Arna Rún Oddsdóttir
Dagur Skírnir Óðinsson
Daníel Rúnar Jónasson
Eiríkur Jónasson
Guðrún Tara Sveinsdóttir
Hulda Hjálmarsdóttir
Ingvar Rafn Stefánsson
Magnús Már Haraldsson
Sigurður Traustason
Viktor K. Þórhallsson
Til hamingju með daginn
30 ára Viktor ólst upp í
Kópavogi, býr þar, lauk
MSc-prófi í tölvunarfræði
við Texas A&M og er sér-
fræðingur hjá Rue de Net
Reykjavík.
Maki: Anna Vigdís Rún-
arsdóttir, f. 1990, MSc-
nemi í tölvunarfræði.
Foreldrar: Kristín Rut
Haraldsdóttir, f. 1962,
ljósmóðir, og Einar Ingv-
arsson, f. 1961, starfs-
maður hjá Mílu. Þau búa í
Kópavogi.
Viktor
Einarsson
30 ára Sigurlaug ólst upp
á Helgustöðum í Fljótum,
lauk BS-prófi í búvís-
indum frá LBHÍ 2016 og
er nú stuðningsfulltrúi við
Grunnskólann í Brúarási.
Maki: Árni Jón Þórðar-
son, f. 1989, verktaki.
Sonur: Þórður Þorsteinn,
f. 2014.
Foreldrar: Þorsteinn
Helgi Jónsson, f. 1943, og
Guðrún Hanna Halldórs-
dóttir, f. 1948, bændur á
Helgustöðum.
Sigurlaug J.Ó.
Þorsteinsdóttir
30 ára Orri ólst upp í
Hafnarfirði, býr í Reykja-
vík, lauk MSc-prófi í
markaðsfræði frá Emer-
son College í Boston og
er hugmyndasmiður hjá
Tjarnargötunni.
Maki: Sigrún Ingibjörg
Gísladóttir, f. 1988, lög-
fræðingur.
Foreldrar: Ásta Björk
Björnsdóttir, f. 1957, og
Rúnar Björnsson, f. 1949.
Þau eru búsett í Hafnar-
firði.
Orri Freyr
Rúnarsson
Ragný Þóra Guðjohnsen hefur varið
doktorsritgerð sína í menntavísindum
við Uppeldis- og menntunarfræðideild,
Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Ritgerðin nefnist Hugmyndir ungs fólks
um hvað það merki að vera góður borg-
ari: Þáttur samkenndar, sjálfboðaliða-
starfs og uppeldishátta foreldra (Young
people’s ideas of what it means to be a
good citizen: The role of empathy, vol-
unteering and parental styles). Leið-
beinandi var dr. Sigrún
Aðalbjarnardóttir, prófessor við
Menntavísindasvið HÍ.
Þar sem ýmislegt gefur til kynna að
borgaralegt þátttökumynstur ungs
fólks sé að breytast er mikilvægt að
skoða hvaða þættir tengjast viðhorfum
ungs fólks til þess að vera góður borg-
ari. Meginmarkmið doktorsrannsókn-
arinnar var því að leggja af mörkum til
slíkra rannsókna með því að kanna
hvernig uppeldisaðferðir foreldra, sam-
kennd ungmenna og reynsla af sjálf-
boðaliðastarfi tengist viðhorfum þeirra
til þess hvað merkir að vera góður
borgari. Þátttakendur voru 1.042 ís-
lensk ungmenni, (14 og 18 ára).
Meginniðurstöður rannsóknarinnar
bentu til þess: Í fyrsta lagi að ungt fólk
leggi meiri
áherslu á þátt-
töku í fé-
lagslegum
hreyfingum en
minni á um-
ræður um póli-
tísk málefni
eða skráningu í
pólitíska flokka.
Í öðru lagi, að leiðandi uppeldishættir
sem felast í stuðningi og eftirliti for-
eldra hafi mikilvægu hlutverki að gegna
bæði við að efla samkennd ungs fólks
og jákvæð viðhorf þess til virkrar borg-
aralegrar þátttöku. Í þriðja lagi, að því
ríkari samkennd sem unga fólkið hafi,
þeim mun líklegra sé það til að hafa já-
kvæð viðhorf til mikilvægis borg-
aralegrar þátttöku. Í fjórða lagi, að þau
ungmenni sem reynslu hafi af sjálf-
boðaliðastarfi séu líklegri til að hafa já-
kvæð viðhorf til virkrar borgaralegrar
þátttöku. Niðurstöður rannsóknarinnar
hvetja til þess að hlúa að borgaralegum
viðhorfum barna og ungmenna með því
að nota leiðandi uppeldisaðferðir,
styrkja samkennd þeirra og skapa þeim
tækifæri til borgaralegrar þátttöku frá
unga aldri.
Ragný Þóra Guðjohnsen
Ragný Þóra Guðjohnsen er fædd árið 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá MR árið
1986 og embættisprófi í lögfræði frá lagadeild HÍ árið 1992. Árið 1998-1999
stundaði hún nám í lýðheilsu við School of Public Health við University of North
Carolina, Chapel Hill. Árið 2009 lauk Ragný meistaranámi í uppeldis- og mennt-
unarfræði frá HÍ. Ragný er aðjunkt við HÍ. Ragný er gift Jóhannesi Kára Krist-
inssyni og eiga þau þrjú börn, Jón Magnús, Árnýju og Margréti.
Doktor
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18.
Allt fyrir eldhúsið hjá Progastro
Heildarlausnir fyrir heimilið
Allt fyrir eldhúsið