Morgunblaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Kvikmyndin Hjartasteinn hlýtur
flestar tilnefningar til Edduverð-
launanna í ár, samtals 16. Fast á
hæla henni fylgir Eiðurinn með 13.
Báðar eru myndirnar tilnefndar
m.a. sem besta mynd ársins, fyrir
besta handrit og bestu leikstjórn.
Þetta kom fram í gær þegar
Íslenska kvikmynda- og sjónvarps-
akademían (ÍKSA) kynnti tilnefn-
ingar ársins á fundi í Bíó Paradís.
Alls verða veitt verðlaun í 25 flokk-
um auk heiðursverðlauna á Eddu-
verðlaunahátíðinni sem fram fer 26.
þessa mánaðar á hótel Hilton
Reykjavík Nordica og sýnd er beint
á RÚV. Nýr flokkur bættist við í ár,
þ.e. sjónvarpsefni ársins sem al-
menningi gefst kostur á að kjósa
um.
Kvikmyndin Fyrir framan annað
fólk hlýtur sex tilnefningar og Sund-
áhrifin þrjár. Sjónvarpsþátturinn
Ligeglad hlýtur þrjár tilnefningar,
fyrir besta handrit, leikið sjónvarps-
efni og sjónvarpsefni ársins. Ævar
Þór Benediktsson er tilnefndur sem
sjónvarpsmaður ársins auk þess
sem sjónvarpsþátturinn hans, Ævar
vísindamaður, er tilnefndur bæði
sem besta barna- og unglingaefni
ársins og besti lífsstílsþátturinn.
Alls sendu framleiðendur inn 92
verk í keppnina í ár, en gjaldgeng
voru verk sem frumsýnd voru opin-
berlega á tímabilinu 1. janúar til 31.
desember 2016.
Kvikmynd
Eiðurinn – RVK Studios. Magnús
Viðar Sigurðsson og Baltasar Kor-
mákur
Hjartasteinn – Join Motion Pict-
ures. Anton Máni Svansson
Sundáhrifin – Zik Zak Filmworks.
Skúli Fr. Malmquist og Patrick
Sobelman
Leikstjórn
Baltasar Kormákur fyrir Eiðinn
Guðmundur Arnar Guðmundsson
fyrir Hjartastein
Sólveig Anspach fyrir Sundáhrifin
Leikari í aðalhlutverki
Baldur Einarsson fyrir Hjartastein
Blær Hinriksson fyrir Hjartastein
Snorri Engilbertsson fyrir Fyrir
framan annað fólk
Leikari í aukahlutverki
Gísli Örn Garðarsson fyrir Eiðinn
Pétur Jóhann Sigfússon fyrir
Borgarstjórann
Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir
Hjartastein
Leikkona í aðalhlutverki
Diljá Valsdóttir fyrir Hjartastein
Hera Hilmarsdóttir fyrir Eiðinn
Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir
Grimmd
Leikkona í aukahlutverki
Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir
Hjartastein
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir
Hjartastein
Svandís Dóra Einarsdóttir fyrir
Fyrir framan annað fólk
Handrit
Ólafur Egill Egilsson og Baltasar
Kormákur fyrir Eiðinn
Guðmundur Arnar Guðmundsson
fyrir Hjartastein
Anna Svava Knútsdóttir, Arnór
Pálmi og Vignir Rafn Valþórsson
fyrir Ligeglad
Kvikmyndataka
Óttar Guðnason fyrir Eiðinn
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Fyrir
framan annað fólk
Sturla Brandth Grøvlen fyrir
Hjartastein
Klipping
Sigvaldi J. Kárason fyrir Eiðinn
Valdís Óskarsdóttir fyrir Fyrir
framan annað fólk
Anne Østerud og Janus Billeskov
Jansen fyrir Hjartastein
Hljóð
Huldar Freyr Arnarson fyrir Eiðinn
Björn Viktorsson og Huldar Freyr
Arnarson fyrir Fyrir framan annað
fólk
Peter Schultz fyrir Hjartastein
Tónlist
Hilmar Örn Hilmarsson fyrir
Baskavígin
Hildur Guðnadóttir fyrir Eiðinn
Kristian Selin Eidnes Andersen fyr-
ir Hjartastein
Brellur
Pétur Karlsson og Daði Einarsson
fyrir Eiðinn
Elmar Bragi Einarsson og Jökull
Þór Sigþórsson fyrir LjósÖld
Nicolas Heluani fyrir Orðbragð
Leikmynd
Heimir Sverrisson, Atli Geir Grét-
arsson og Páll Hjaltason fyrir
Eiðinn
Hulda Helgadóttir fyrir Hjartastein
Drífa Ármannsdóttir og Marie Le
Garrec fyrir Sundáhrifin
Gervi
Ragna Fossberg og Heimir Sverris-
son fyrir Eiðinn
Heba Þórisdóttir fyrir Hateful
Eight
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir
Hjartastein
Búningar
Steinunn Sigurðardóttir fyrir
Eiðinn
Helga I. Stefánsdóttir fyrir Fyrir
framan annað fólk
Helga Rós V. Hannam fyrir
Hjartastein
Heimildamynd
Jökullinn logar – Purkur og Klipp
Productions
Keep Frosen – Helga Rakel Rafns-
dóttir
Ránsfengur (Ransacked) – P/E Pro-
ductions
Stuttmynd
Leyndarmál – Northern Vision.
Jakob Halldórsson og Stella Rín
Bieltvedt
Litla stund hjá Hansa – Eyþór
Jóvinsson og Arcus
Ungar – Askja Films. Eva Sigurð-
arsdóttir og Nanna Kristín Magn-
úsdóttir.
Barna- og unglingaefni
Stundin okkar – RÚV
Krakkafréttir – RÚV
Ævar vísindamaður – RÚV
Frétta- eða viðtalsþáttur
Á flótta – RÚV
Kastljós – RÚV
Leitin að upprunanum – Stöð 2
Lífsstílsþáttur
Ferðastiklur – RÚV
Rætur – RÚV
Ævar vísindamaður – RÚV
Menningarþáttur
Eyðibýli – RÚV
Með okkar augum – Sagafilm
Rapp í Reykjavík – Stöð 2
Skemmtiþáttur
Áramótaskaup – RVK Studios
Eddan – engri lík – RÚV
Orðbragð – RÚV
Sjónvarpsmaður
Ævar Þór Benediktsson
Andri Freyr Hilmarsson
Brynja Þorgeirsdóttir
Helgi Seljan
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Leikið sjónvarpsefni
Borgarstjórinn – RVK studios
Ligeglad – Filmus
Sjónvarpsefni ársins
Borgarstjórinn
Leitin að upprunanum
Ligeglad
Ófærð
Rætur
Par Hera Hilmarsdóttir og Gísli Örn Garðarsson eru bæði til-
nefnd fyrir leik sinn í Eiðnum í leikstjórn Baltasars Kormáks.
Vinir Baldur Einarsson og Blær Hinriksson eru tilnefndir fyrir
Hjartastein í leikstjórn Guðmundar Arnars Guðmundssonar.
Hjartasteinn með 16 tilnefningar
Eiðurinn hlýtur 13 tilnefningar til Edduverðlaunanna
Ævar Þór fær þrjár 25 flokkar auk heiðursverðlauna
Svanasöngur Sundáhrif Sólveigar Anspach er tilnefnd sem
besta mynd ársins og Sólveig sem besti leikstjórinn.
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
Miðasala og nánari upplýsingar
SÝND KL. 5.20, 8
SÝND KL. 10.10
SÝND KL. 10.40
SÝND KL. 8, 10.40
SÝND KL. 5.40 - ísl tal
SÝND KL. 6