Morgunblaðið - 02.02.2017, Qupperneq 36
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Skýrist betur við hverja yfirheyrslu
2. Andlát: Eiður Guðnason
3. Lars, hvernig gastu gert þetta?
4. Fíkniefni sögð í gámunum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Vetrarhátíð hefst í dag í öllum sveit-
arfélögum höfuðborgarsvæðisins.
Hluti hennar er Safnanótt sem fram
fer á morgun og einn af viðburðum
hennar er friðarstund kl. 18.30 við
Kópavogskirkju þar sem tendrað verð-
ur á listaverki eftir Doddu Maggý sem
varpað verður á kirkjuna. Í kjölfarið
munu svo tónlistarhópurinn Umbra og
Lenka Matéova organisti flytja tónlist
og hefst um leið söfnunarátak vegna
viðgerða á gluggum kirkj-
unnar, sem eru eftir
Gerði Helgadóttur.
Allar upplýsingar
um hátíðina og þann
mikla fjölda viðburða
sem í boði er má finna
á vetrarhatid.is. »12
Verki Doddu varpað
á Kópavogskirkju
Tónlistarkonan Song-Hee Kwon frá
Suður-Kóreu heldur tónleika í menn-
ingarhúsinu Mengi, Óðinsgötu 2, í
kvöld kl. 21. Kwon hefur sérhæft sig í
Pansori, tónlistarhefð sem iðkuð hef-
ur verið á Kóreuskaga allt frá 17. öld
og hefur verið á heimsminjaskrá
UNESCO yfir óáþreifanlegan menn-
ingararf frá árinu 2003, eins og segir í
tilkynningu. Pansori mun vera frá-
sagnaraðferð þar sem söngvari segir
sögu með látbragði, tali og söng og
trommuleikari leggur til viðeigandi
takt. Blómaskeið Pansori var á
nítjándu öld og naut það vinsælda
meðal yfirstéttarinnar í Kóreu. Það
var þó ekki fyrr en á síðustu öld sem
konur fóru að iðka þessa list.
Song-Hee Kwon hefur hlotið fjölda
verðlauna fyrir listsköpun sína, miðlar
tónlist sem byggist á aldagömlum
merg og fléttar saman við eigin spuna
og tónlist. Hún hefur komið fram á
fjölda listahátíða í Suður-Kóreu, í
Taívan, víða um Bandaríkin og Evrópu.
Í kvöld kemur hún fram ein síns liðs.
Pansori að hætti
Kwon í Mengi
Á föstudag Austan og norðaustan 8-15 m/s, hvassast norð-
vestantil. Rigning eða slydda með köflum, en snjókoma í inn-
sveitum. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast suðaustantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-10 m/s og skúrir eða él vestan-
til, en hægviðri og bjart eystra. Norðaustan 8-13 og slydda eystra í
kvöld. Hiti 1-6 stig suðaustantil, annars kringum frostmark.
VEÐUR
„Eins og margur maðurinn
dró ég það að fara til læknis
og gerði það þegar ég hafði
verið fárveikur heima í tvo
eða þrjá daga. Þegar ég var
að ná áttum sagði smit-
sjúkdómalæknir við mig að
hefði ég komið sólarhring
seinna þá hefði þetta jafn-
vel getað farið á versta
veg,“ segir körfuboltaþjálf-
arinn Bjarni Magnússon,
sem þurfti að taka sér frí
vegna veikinda. »3
Mátti ekki koma
sólarhring seinna
Knattspyrnumaðurinn Kristinn Jóns-
son var í gær seldur á milli norsku úr-
valsdeildarfélaganna Sarpsborg og
Sogndal, og er ætlað stórt hlutverk
hjá síðarnefnda félaginu. Þar á
hann að vera lykilmaður í
ungu liði, en Sogndal hef-
ur oftast þurft að berj-
ast fyrir lífi sínu í deild-
inni. »4
Kristinn á að vera lykil-
maður hjá Sogndal
Þrjú efstu liðin í Dominos-deild
kvenna í körfuknattleik fögnuðu öll
sigrum í 19. umferð deildarinnar
sem fram fór í gærkvöld. Skalla-
grímur vann sinn áttunda sigur í
röð þegar liðið lagði Hauka, Ís-
landsmeistararnir í Snæfelli unnu
öruggan sigur á Stjörnunni í Garða-
bæ og Keflavík burstaði granna
sína í Grindavík á heimavelli. »2
Áttundi sigur
Skallagríms í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Með von um að ýta undir frjósemi í
Reykhólahreppi var byrjað að færa
öllum nýburum í hreppnum gjöf frá
sveitarfélaginu árið 2012. Það var
hugmynd þáverandi oddvita, And-
reu Björnsdóttur, sem prjónaði
peysur á öll börn sem fæddust. Þeg-
ar ný sveitarstjórn tók við árið 2014
treystu meðlimir hennar sér ekki til
að draga upp prjónana og hófu því
að færa nýbökuðum foreldrum svo-
kallaðan startpakka sem inniheldur
ýmislegt sem gott er að eiga á ung-
barn. „Fyrsta barnið sem fékk
prjónaða peysu er fætt í nóvember
2012. Þá hafði ekki fæðst barn lengi
í hreppnum svo að hún Andrea odd-
viti ákvað að taka til sinna ráða.
Hún nefndi það við einn pabbann að
hann myndi fá peysu ef hann næði
að barna konuna sína og það gekk
eftir,“ segir Sandra Rún Björns-
dóttir, sveitarstjórnarmaður í Reyk-
hólahreppi, kankvís. „Það hittist
svona skemmtilega á en svo hélt
Andrea áfram að prjóna þegar það
komu fleiri börn. Á endanum fengu
fjórtán börn peysur frá hreppnum,“
segir Sandra Rún.
Pakkinn hefur ekki úrslitaáhrif
Barnasprengja var í sveitinni
2013 þegar átta börn fæddust, svo
þáverandi oddviti hafði nóg á prjón-
unum. Ekki hafa fæðst svo mörg
börn á ári síðan, en í fyrra voru þau
fjögur.
„Við erum búin að afhenda sex
startpakka síðan við tókum
við í sveitarstjórn 2014, það
hefur ekki verið nein
barnasprengja síðustu
ár,“ segir Sandra Rún,
en eitt par hefur þó náð
að fá tvo pakka.
Hún efast um að
startpakkinn hafi eitt-
hvað að segja um
að fólk „skelli í
eitt í viðbót“ en segir alla taka
þessu vel og almenn ánægja sé með
þetta framtak hreppsins. „Það er
mjög gaman að fara í heimsókn-
irnar og afhenda pakkann. Sam-
félagið hér er lítið og maður þekkir
alla og því gaman að kíkja á fólkið
og heilsa upp á nýja íbúa,“ segir
Sandra Rún.
Um 280 íbúar eru í Reykhóla-
hreppi, 50 börn eru í grunnskól-
anum og hátt í 20 í leikskólanum svo
frjósemin er með ágætum í hreppn-
um og barnafjölskyldur margar.
Núverandi sveitarstjórn ætlar að
halda áfram að færa nýbökuðum
foreldrum í hreppnum startpakkann
en Sandra Rún segir ómögulegt að
segja til um hvað gerist eftir
sveitarstjórnarkosningarnar á
næsta ári. „Vonandi verður haldið
áfram með einhverjum hætti.“
Hvatt til frjósemi í hreppnum
Reykhóla-
hreppur færir ný-
burum startpakka
Ljósmynd/Sandra Rún
Yngsti íbúinn Jóhanna Ösp Einarsdóttir með Yrsu sem fæddist í desember, Ásborg fædd 2009, Einar Valur fæddur
2013 og Styrmir Sæmundsson. Myndin var tekin þegar þeim var afhentur startpakki fyrir skömmu.
Yrsa er yngsta barnið í Reykhóla-
hreppi um þessar mundir en hún
fæddist 15. desember síðastliðinn.
Foreldrar hennar eru Jóhanna Ösp
Einarsdóttir og Styrmir Sæmunds-
son í Kaplaskjóli í Gufudal og er hún
þriðja barn þeirra.
Jóhanna Ösp segir startpakkann
vera fallegt framtak sem ýti undir
jákvæðni. „Þetta sýnir að sveitar-
félaginu er ekki sama um barna-
fjölskyldur og það er einróma álit
foreldra hér að framtakið sé flott.“
Jóhanna Ösp segir innihald
startpakkans koma að góðum not-
um en í honum má finna: samfellur,
náttgalla, heilgalla, handklæði,
þvottapoka, bleyjur, krem, húfu og
vettlinga.
Gott er fyrir barnafjölskyldur að
búa í Reykhólahreppi, að sögn Jó-
hönnu Aspar. „Það er boðið upp á
leikskóla frá eins árs svo maður
getur farið að vinna aftur strax eftir
fæðingarorlof. Þá er boðið upp á
skólabílaakstur fyrir leikskólabörn
frá tveggja ára aldri, sem gerir
sveitirnar í kring byggilegri.“
Jákvætt og fallegt framtak
EKKI SAMA UM BARNAFJÖLSKYLDUR
Sandra Rún
Björnsdóttir