Morgunblaðið - 22.02.2017, Side 1

Morgunblaðið - 22.02.2017, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. F E B R Ú A R 2 0 1 7 Stofnað 1913  45. tölublað  105. árgangur  Sæktu um N1 kortið á n1.is 15% afsláttur + 3% í formi punkta af Hella þurrkublöðum og N1 tjöruhreinsi fyrir N1 korthafa í febrúar Besta til að láta skutla sér SNORRI ÞREYTIR FRUMRAUN FYRIR ÍSLAND FANTÔMAS AMIINU GEKK LENGI MEÐ LJÓÐSKÁLD Í MAGANUM KVIKMYNDATÓNLIST 30 GÁTTATIF SIGURBJARGAR 12ÍÞRÓTTIR Vetrarfærð var á mörgum vegum í gær og snjóþekja víða. Samkvæmt Veðurstofunni er ekki búist við afbrigðilegum kulda næstu daga, reyndar hefur verið óvenjuhlýtt þennan vetur. Hlýindi síðustu daga hafa valdið því að gróður hefur farið af stað en búast má við því að hægist á því. Mikill snjór og skafrenningur var á Hellisheiði og víða hæg umferð. Veturinn lét sjá sig á ný eftir hlýindi undanfarið Morgunblaðið/Árni Sæberg Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Íslenski flotinn hafði veitt ríflega 24.000 tonn af loðnu um miðnætti og voru aflabrögð öll hin bestu. Jafn- gildir veiddur afli um 12% af því magni sem sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra hefur skipað fyrir um að veiða megi á þessari vertíð eða 196.075 tonn. Mest hafa skip Síldarvinnslunnar, Beitir NK, Bjarni Ólafsson AK og Börkur NK dregið úr sjó eða um 7.000 tonn. Þá hafa skip Ísfélagsins, Sigurður VE, Heimaey VE og Álsey VE veitt um 5.000 tonn. Skip Sam- herja, Vilhelm Þorsteinsson EA og Margrét EA veitt um 3.000 tonn. Þá höfðu skip HB Granda, Víkingur AK og Venus NS náð um 2.700 tonnum. Skip Skinneyjar-Þinganess, Ásgrím- ur Halldórsson SF og Jóna Eðvalds SF höfðu dregið 2.300 tonn úr sjó. Aðrar útgerðir höfðu minna veitt. Morgunblaðið náði tali af Bergi Ein- arssyni skipstjóra á Hoffelli SU sem komið hafði með 750 tonn að landi. „Við fórum beint á miðin og við náð- um aflanum á fjórum tímum. Þetta er allt fryst fyrir Japan. Við gerum ráð fyrir að fara aftur á miðin upp úr hádegi á morgun en það er spáð sunnanátt á næstu dögum og það gæti sett eitthvert strik í reikning- inn.“ Um 24.300 tonn af loðnu  Vænn fiskur og köstin stór  Veður gæti sett strik í reikninginn næstu daga Mikil verðmæti » Áætlað heildarverðmæti loðnukvótans er metið um 17 milljarðar að sögn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. » 14. febrúar sextánfaldaði ráðherra áður út gefna heimild á loðnu.  Óritstýrðir samfélagsmiðlar hafa orðið farvegur fyrir falsfréttir víða um heim. Dæmi er um að slíkar fréttir hafi ratað síðan í aðra fjöl- miðla. „Fólk verður að gera grein- armun á alvöru ritstýrðum fjöl- miðlum annars vegar og sam- félagsmiðlum hins vegar,“ segir Birgir Guðmundsson, blaðamaður og dósent við Háskólann á Ak- ureyri. Evrópusambandið hefur hafið átak gegn falsfréttum. »10 Falsfréttir víða á veraldarvefnum Um 100.000 manns eiga á hættu að deyja úr hungri í Suður-Súdan og er um milljón manna til viðbótar í bráðri lífshættu, en síðastliðinn mánudag var hungursneyð form- lega lýst yfir í ríkinu. Seinast var lýst yfir slíku neyðarástandi innan landamæra Sómalíu árið 2011. SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda 35 milljónir króna til neyðarverkefna í sex ríkjum, þau eru Suður-Súdan; Írak; Mið-Afríku- lýðveldið; Ekvador; Nígería og Níg- er. Alls fara fimm milljónir króna til hvers ríkis að Írak undanskildu, en þangað renna tíu milljónir. Fjöldi barna í bráðri hættu Í Suður-Súdan er ástandið lang- verst í Unity-fylki í norðurhluta landsins. Þar eru um 20.000 börn í bráðri lífshættu vegna mikils fæðu- óöryggis. Í suðurhluta landsins má svo finna um 270.000 börn til við- bótar sem búa við neyðarástand af samskonar toga, en Sameinuðu þjóðirnar telja að um 42% þjóðar- innar séu nú vannærð. »18 SOS Barnaþorpin bregðast við neyðinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.