Morgunblaðið - 22.02.2017, Side 13
Í Skýjaborgum Sigurbjörg er deildarstjóri í eldri deild leikskólans Skýjaborgir í Hvalfjarðarsveit.
sem olli því að hún fór að tjá hugs-
anir sínar í ljóðum. „Ég missti föður
minn, Friðrik Friðriksson, skip-
stjóra, óvænt í sjóslysi árið 2000. Lík
hans fannst ekki fyrr en einum og
hálfum mánuði síðar, eftir að við, að-
standendur hans, höfðum þurft að
beita okkur fyrir að leitað yrði til
þrautar.“
Þrátt fyrir þessa vitneskju
hljómar fyrsta ljóðið í Gáttatifi frem-
ur torrætt eins og reyndar mörg góð
ljóð:
hvort sem þú trúir því
eða ekki
þá var það í síðustu viku
að þessi orð komu
í höfuðið á mér
takk pabbi
takk fyrir
að deyja
þegar þú fórst
opnaðist
farvegur
„Þarna er ég einfaldlega að lýsa
því hvernig andlát hans opnaði mér
farveg til að skrifa og tjá mig í ljóð-
um, sem var mín leið til að vinna úr
sorginni. Á þessum tíma fór margt
af stað í kollinum á mér, sérstaklega
þegar ég var ein með sjálfri mér og
horfði yfir flóann,“ útskýrir Sigur-
björg.
Í þessu ljósi er ekki ólíklegt að
ljóðið á síðustu blaðsíðu Gáttatifs
myndgerist í huga lesandans, en
fyrri hluti þess er á þessa leið:
hún opnar skúffuna og réttir mér
kassann
ég handfjatla eigur hans
sakna þess að finna ekki sterku
þanglyktina sem ég hafði
fundið þegar ég fór á lögreglustöð-
ina
þefa af brúna leðurveskinu sem
hafði fengið spanskgrænu
á saumana eftir leguna á hafsbotni
annars hafði það ekkert látið á sjá
ekki heldur kortin og myndirnar
hún opnar skápinn og rótar í skúff-
unni
dregur fram sandala og segir
þessi kom líka
ég hvái
Orðaflæði fer í gang
„Kveikjan að ljóðinu var heim-
sókn til móður minnar þar sem hún
sýndi mér hluti sem höfðu komið
upp með föður mínum … á sama
tíma sagði hún mér frá andláti bestu
vinkonu sinnar. Á þessu augnabliki
upplifði ég dauðann mjög sterkt,
fannst hann umkringja mig og þessi
dauðalykt sem fyllti vitin fylgdi mér
heim í rúm. Á heimleiðinni fór eitt-
hvert orðaflæði í gang eins og oft
gerist. Síðan lá textinn hjá mér
þangað til ég réðst að honum með
niðurskurðarhnífnum,“ segir Sigur-
björg, sem eins og í öllum sínum
ljóðum lætur í hendur lesandans að
stilla sér upp í ljóðmyndinni og
túlka.
Og enn flæða orðin og finna sér
jafnóðum farveg. Sigurbjörg er
hvergi nærri hætt. Hún er að þreifa
fyrir sér með ýmis ljóðaform og
hyggst gefa út aðra ljóðabók. „Mað-
ur þarf að láta í sér heyra ef maður
hefur eitthvað að segja,“ segir hún
og lætur flakka splunkunýtt ljóð,
sem hún kallar Blómstrandi hégómi
– og er á allt öðrum nótum en ljóðin í
Gáttatifi:
meðan við stundum fitufrystingar
fitusog
svelta börn
meðan við límum gervineglur
augnahár
svelta börn
meðan við látum tannhvítta
botoxa
svelta börn
meðan við skerum ofurkroppinn,
mittismálið
svelta börn
meðan við nærumst á andox-
unarbombum
lágkolvetnasprengjum
deyja börnin
Sigurbjörg tekur fram að ljóðið
sé óritskoðað og lendi hugsanlega
undir niðurskurðarhnífnum.
„Ég er bara alveg búin að fá
nóg af öllum þessum hégóma út um
allt; í blöðum, tímaritum og víðar,“
segir hún. „Á hvaða blaði, ert þú
annars …?“ spyr hún svo kankvís-
lega.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
Gáttatif eftir Sigurbjörgu Friðriksdóttur tilheyrir seríu Meðgönguljóða,
sem gefin er út af Partusi. Serían er helguð nýjabruminu í íslenskri ljóð-
list, en forlagið sérhæfði sig upphaflega í útgáfu upprennandi ljóðskálda.
Útgáfa Meðgönguljóða hefur síðan getið af sér tvær útgáfuraðir, Með-
göngufræ og Meðgöngumál, þar sem sjónum er beint að fræðitextum og
smásögum.
Meðgönguljóð spruttu af löngun ungskálda til að koma ljóðum til al-
mennings. Hugmyndin var m.a. að gera ljóð aðgengilegt listform og ódýrt
þannig að fólk gæti kippt með sér „meðgöngubolla“ jafn léttilega og
„take away“-kaffibolla. www.partuspress.com
Ljóð til að kippa með sér
„MEÐGÖNGUBOLLI“
Síðumúla 21, Selmúlamegin, sími 533 6040, www.stimplar.is
Mikið úrval af hurða- og
póstkassaskiltum, barm-
merkjum, hlutamerkjum,
nafnatöflur í fjölbýlishús
og fleira
Stimplar eru okkar fag
það eru skiltin líka
Áratuga reynsl
a
Örugg þjónusta