Morgunblaðið - 22.02.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á k
júklinginn
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Óeirðir brutust út í Rinkeby-hverf-
inu í Stokkhólmi á mánudagskvöld
þegar lögreglan gerði tilraun til að
handsama eftirlýstan mann. Sam-
kvæmt Politiken er Rinkeby-hverfið
staðsett um 15 kílómetra norðvest-
ur af miðborginni og er hlutfall inn-
flytjenda í hverfinu hátt.
Hópur ungmenna gerði þar aðsúg
að lögreglunni, kveikti í bílum,
braut rúður á veitingastöðum og
verslunum og gekk um rænandi og
ruplandi. Kom til átaka milli lög-
reglunnar og óeirðaseggja, sem
köstuðu grjóti og öðru lauslegu að
lögreglunni.
„Lögreglan þurfti að grípa til
skotvopna en um tíma skapaðist
ástand þar sem lögreglumaður taldi
sig knúinn til að beita skotvopni
sínu,“ sagði Lars Bystrom, talsmað-
ur lögreglunnar í Stokkhólmi.
„Enginn hefur enn fundist slas-
aður sökum þess að beita þurfti
skotvopni en lögreglan hefur sent
fyrirspurn til spítala á svæðinu
hvort einstaklingur með skotsár
hafi leitað til þeirra.“
Eignatjón er töluvert en kveikt
var í átta bílum og skemmdir unnar
á verslunum og veitingastöðum.
Daginn eftir ummæli Trumps
Óeirðirnar í Stokkhólmi brutust
út aðeins einum degi eftir að forseti
Bandaríkjanna, Donald Trump, vís-
aði til Svíþjóðar sem dæmis um
land í vanda vegna straums innflytj-
enda og vísaði þar til innflytjenda-
stefnu Svíþjóðar. Sagði forsetinn
tengsl vera milli komu flóttamanna
og aukinnar hættu á hryðjuverkum.
„Hver hefði trúað þessu? Svíar
tóku inn mikinn fjölda innflytjenda
og eru nú að glíma við vanda sem
enginn gat ímyndað sér. Þið sjáið
hvað er að gerast um allan heim,“
sagði Trump við stuðningsmenn
sína um helgina.
Ummælum Trumps var svarað á
opinberum Twitter-reikningi
sænskra stjórnvalda á mánudaginn
þar sem Donald Trump var þakkað
fyrir hugulsemina. Hann þyrfti ekki
að hafa áhyggjur því Svíþjóð væri í
góðu lagi. Nokkrum klukkutímum
síðar hófust óeirðir í úthverfi
Stokkhólms.
Azita Raji, fyrrverandi sendi-
herra Bandaríkjanna í Svíþjóð,
sagði í samtali við CNN um málið
að ekki væri að sjá að samhengi
væri milli glæpa og aukins fjölda
innflytjenda í Svíþjóð. Raji var
fyrsta konan og fyrsti Bandaríkja-
maðurinn af írönskum ættum til að
gegna stöðu sendiherra fyrir hönd
Bandaríkjanna í Svíþjóð.
Ráðist á blaðaljósmyndara
Ástandið í Rinkeby stóð ekki
lengi yfir en lögreglunni tókst að ná
tökum á ástandinu á rúmum fjórum
klukkutímum. Mörgum var þó
brugðið og skapaðist um tíma veru-
leg hætta á svæðinu.
„Fólk hefði getað dáið,“ segir
Chaima Hakam, búðareigandi í Rin-
keby. Hann ákvað að grípa sjálfur
til aðgerða og reyndi að stöðva hóp-
inn sem veittist að honum og lét
höggin dynja á honum þar sem
hann lá í götunni.
„Ég hringdi strax í 112 og lét lög-
regluna vita. Hún kom ekki. Seinna
frétti ég að lögreglumennirnir
hefðu setið inni í bílunum sínum og
horft á aðgerðalausir. Það er ótrú-
legt að þeir hafi ekki gert neitt á
meðan stríðsástand ríkti á torginu,“
segir Cahima Hakam.
Ljósmyndari frá Dagens Nyheter
varð einnig fyrir óeirðarseggjum en
hann segir að fimmtán manns hafi
ráðist á hann við störf sín þar sem
hann var mættur á vettvang til að
skrásetja óeirðirnar í myndum.
„Ég var kýldur í andlitið og það
var sparkaði í mig. Áverkarni voru
slíkir að ég þurfti að eyða nóttinni á
spítala,“ sagði ljósmyndarinn sem
ekki vildi koma fram undir nafni.
Ekki í fyrsta sinn í Rinkeby
Rinkeby er eitt nokkurra svæða
þar sem óeirðir brutust út árið 2013
en þá var kveikt í meira en 30 bílum
hverja einustu nótt meðan á óeirð-
unum stóð og slösuðust bæði lög-
reglumenn og óeirðarseggir. Svæð-
ið er eitt af 15 sem sænska
lögreglan hefur skilgreint sem
varasamt svæði í skýrslu sem kom
út árið 2015. Lögreglan hefur þó
neitað öllum ásökunum um að
svæðið sé skilgreint sem sérstakt
hættusvæði.
Óeirðir í úthverfi Stokkhólms
Lögreglan í Stokkhólmi greip til skotvopna þegar aðsúgur var gerður að henni við skyldustörf
Kveikt var í bílum, rúður á verslunum og veitingastöðum brotnar og ráðist á ljósmyndara
Óeirðir Lögreglan í Stokkhólmi þurfti að kalla til varalið þegar til átaka kom á milli lögreglu og óeirðaseggja í úthverfi borgarinnar Rinkeby á mánudag.
asdf asdf asdf asdf
Eldur Kveikt var í bílum og rúður brotnar í verslunum og veitingastöðum.
Norðmenn vilja eiga sæti við samn-
ingsborðið þegar Bretar og Evrópu-
sambandið setjast niður til að semja
um útgöngu Bretlands úr samband-
inu. Þetta kemur fram á vef indep-
endent þar sem haft er eftir Frank
Bakke-Jensen, ráðherra Noregs í
Evrópumálum. Frank hélt ræðu á
opnum fundi fyrir sendiherra Evr-
ópusambandsins í Oslo. Þar nefndi
hann vilja Norðmanna til að hafa
möguleikann á því að vera hluti af
ákvörðunum Evrópusambandsins og
Bretlands, þá sérstaklega hvað varð-
aði innri markaðinn.
„Það hefur legið fyrir að við ætl-
um að hafa gott samstarf bæði við
Evrópusambandið, Norðmenn og
Breta. Það liggur fyrir að við viljum
gæta hagsmuna okkar í öllu þessu.
Það eru mjög margar hliðar á þessu,
en ef EES-ríkin sitja við borðið þá
verðum við að sjálfsögðu þar líka, “
segir Guðlaugur Þór Þórðarson ut-
anríkisráðherra í samtali við Morg-
unblaðið.
AFP
Útganga Norðmenn vilja koma að viðræðum Breta og Evrópusambandsins.
Norðmenn vilja sæti
við samningsborðið
Vilja gæta hagsmuna Noregs í Brexit