Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR AVANT - ER TIL Í ALLT - ALLT ÁRIÐ UM KRING Hvort sem þig vantar öflugt hjálpartæki í skógræktina, fyrir bæjarfélagið, til meðhöndlunar á vörubrettum, í moksturinn eða snjó- og jarðvinnu, þá getur þú verið viss um að AVANT leysir málið fyrir þig. Yfir 100 mismunandi aukatæki eru fáanleg á vélina. Raf- diesel- bensín- eða gasknúinn – þitt er valið. Framleiddur í Finnlandi – fyrir norðlægar slóðir. Enn og aftur hafa nokkrir „framsýnir“ þingmenn á hinu háa Alþingi talið tíma sín- um og atorku best var- ið til að fá afnuminn einkarétt ríkisins á sölu áfengra drykkja og heimila áfeng- isauglýsingar. Sam- kvæmt frumvarpi þessa efnis verður heimilt að selja áfengi í matvöruversl- unum með brauði og lauk og öðrum lífsnauðsynjum. Áfengi á ávallt að vera innan seilingar, a.m.k. í göngu- færi. Þráhyggjumennirnir á þingi, kyn- slóð hins alfrjálsa markaðar, hafa lýst þeirri skoðun sinni, að ef ríkið geti ekki tryggt að áfengi sé ávallt í göngufæri íbúa, þá eigi einka- framtakið að tryggja þessa mik- ilvægu hagsmuni þjóðarinnar. Ríkið selur nú áfengi í 49 versl- unum um land allt (svo má fá það sent í pósti, tekur 2-3 daga). Þar að auki má kaupa áfengi á hundruðum hótela, veitingahúsa, bjórstofa og jafnvel í kaffihúsum. Þá fara tugir þúsunda Ís- lendinga um flugstöðina á Keflavík- urflugvelli og geta keypt talsvert magn áfengis á lágu verði við brottför og heimkomu. Það er ekki skortur á áfengi á Íslandi. Ef fyrrnefnt frumvarp verður sam- þykkt og unnt verður að kaupa áfengi í matvöruverslunum, þá eru margar þeirra opnar allan sólarhringinn. Það tryggir að engin vínþurrð verður all- an sólarhringinn 365 daga á ári. Fulltrúar hins frjálsa áfengismark- aðar á þingi hvorki hlusta á né hirða um staðreyndir, sem eru málstað þeirra andstæðar. Þannig hefur Al- þjóðheilbrigðismálastofnunin bent á að um 6% dauðsfalla í heiminum eru rakin til ofneyslu áfengis. Þeir virðast ekki taka mark á rannsóknum, sem sýna, að þar sem áfengissala hefur verið gefin frjáls, hefur sala á áfengi aukist um 40%. Í Finnlandi jókst hún um 46% og í tveimur sveitarfélögum í Svíþjóð, þar sem gerð var tilraun með fullt frelsi í sölu áfengis, fór neyslan upp fyrir öll þekkt mörk. Þeirri tilraun var snar- lega hætt. Lýðheilsumarkmið koma þeim heldur ekki við, né viðvaranir heil- brigðisyfirvalda og fag- fólks í stéttinni. Með frumvarpinu ganga þeir þvert á stefnu í áfeng- ismálum, sem samþykkt var í desember 2013 og á að gilda til ársins 2020. Það skiptir þá engu máli að sjúkdómar vegna of- neyslu áfengis kosta ríkissjóð millj- arða króna á hverju ári. Með nýjum áherslum og áróðri for- eldrasamtaka gegn áfengi og áfeng- isauglýsingum, hefur tekist að draga umtalsvert úr unglingadrykkju. Með auknu framboði á áfengi er ekki ólík- legt að þessi árangur fari fyrir bí. Áhugamennirnir á þingi halda því fram að það sé á valdi hvers manns hvort hann eða hún drekki áfengi í hófi eða ekki. Í þeim efnum sé hver sjálfum sér næstur. Þeir ættu að bregða sér í heimsókn á Vog, ræða við forystumenn SÁÁ og ná sér í nokkrar staðreyndir hjá áfeng- issjúklingum og starfsmönnum. Á sama tíma og frumvarpið um af- nám einkaréttar ríkisins á áfeng- issölu er lagt fram, þá er annað frum- varp á leiðinni, sem snýst um aðgerðir til að draga úr tóbaks- notkun. Þversögnin er ekki einu sinni fyndin. – Nú verða menn að svara þeirri spurningu hvers vegna þetta áfengisfrumvarp er lagt fram og til hvers. Ástæðan liggur ekki í augum uppi, nema ef þetta kynni að vera hluti einkavæðingaráforma stjórn- valda. Hvers vegna og til hvers? Eftir Árna Gunnarsson » Lýðheilsumarkmið koma þeim heldur ekki við, né viðvaranir heilbrigðisyfirvalda. Áfengi skal alltaf vera innan seilingar, í göngu- færi. Árni Gunnarsson Höfundur er fv. alþingismaður. Ég er sammála því að allir eigi að hafa sömu lífeyrisréttindi og opinberir starfs- menn. En það verður þá að leiðrétta um leið að op- inberum starfs- mönnum verði fengin launahækkun í sam- ræmi við það að op- inberir starfsmenn áttu ávallt að hafa 10% lægri laun en á almennum vinnumarkaði, af því við höfðum svo góð lífeyrisréttindi. Þá gætu það verið nokkrar milljónir sem við hjónin ættum inni hjá ríki og sveitarfélögum vegna starfa okkar. Hún sem starfandi hjúkrunarfræð- ingur í 30 ár, þar af 12 ár sem hjúkr- unardeildarstjóri. Ég sem starfandi hjá Landssíma Íslands, loft- skeytamaður/símritari/varðstjóri/ tæknifræðingur í 40 ár. Þetta sagði ávallt formaður samninganefndar ríkisins, en ég var í samningarnefnd míns stéttarfélags, er var Félag ís- lenskra símamanna. Framkvæmdasjóður aldraðra hef- ur verið stórlega misnotaðir, í stað bygginga fyrir eldri borgara, hefur hann verið notaður í rekstur hjúkr- unarheimila, eftir sem ég best veit. Eins skal þess getið að Hafnfirðingar hafa greitt í þennan sjóð um milljarð síðastliðin tíu ár. En á sama tíma hafa farið um 70-80 milljónir í framkvæmdir í Hafn- arfirði. Það vantar grát- lega mikinn fjölda af hjúkrunarheimilum fyrir eldri borgara. Enn hafa greiðslur til eldri borgara, er var lofað 2009, ekki verið greiddar nema að hluta. Virðisaukaskattur af lyfseð- ilsskyldum lyfjum hér á landi er um 25%, en t.d. Malta, England og Sví- þjóð hafa engan virðisaukaskatt á samskonar lyfjum. Hvað með tannlækningar eldri borgara? Lækniskostnaður, hvernig er hann hér, miðað við önnur Evr- ópuríki? Nóg að sinni. Helstu baráttumál eldri borgara Eftir Jón Kr. Óskarsson Jón Kr. Óskarsson » Allir eiga að hafa sömu lífeyrisréttindi og opinberir starfs- menn. Höfundur er á eftirlaunum Eftir að Par- ísarsamkomulagið varð að veruleika í árslok 2015 höfðu menn áhyggjur af að ríki heims myndu hunsa það af því að það var ekki bindandi en hins vegar hefur komið ánægjulega á óvart hve stjórnvöld hinna ýmsu ríkja hafa keppst við að semja metnaðarfullar áætlanir um að minnka losun gróð- urhúsalofttegunda. Nýlega tók Sví- þjóð forustuna, landið stefnir á að verða kolefnishlutlaust fyrir 2045. Slík viðbrögð skipta máli því lofts- lagsbreytingar gerast mun hraðar en vísindamenn spáðu. Í nóvember síðastliðnum sáust ískyggilegar hitatölur á norðurskauti, þar var 20° hlýrra en vant er, og einnig hefur hlýnað mikið á Suðurskauts- landinu vestanverðu. James Han- sen, NASA-sérfræðingurinn sem fyrstur vakti athygli umheimsins á að gróðurhúsalofttegundir yllu hlýnun jarðar, varar við því að ef bráðnun jökla heldur áfram að aukast jafn hratt og á síðustu ára- tugum þá geti yfirborð sjávar hækkað um marga metra á þessari öld. Bráðnun jökla, súrnun hafsins, magn CO2 og metans í andrúms- loftinu og hitastig jarðar, allt eykst þetta hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Hærra hitastig þýðir að vegna meiri vatnsgufu í andrúms- loftinu verða fellibyljir kraftmeiri og steypiflóð algengari. Vegna breytinga á veðrakerfum lendir mikið af þessari auknu úrkomu í sjónum á meðan þurrkar hrjá svæði á landi sem áður fengu næga vætu, sem eykur líkur á skógareldum. Allar þessar breyt- ingar eru þegar komnar fram og eiga aðeins eftir að versna. Nú er talið að upptök ástandsins í Sýrlandi megi rekja til þurrka á svæðinu – árið 2006 voru þar mestu þurrkar í 900 ár og 1,5 milljónir Sýrlendinga streymdu til borganna, sem jók á spennu milli fylkinga innanlands. Nýlega hafa ofsóknir gegn Rohingjum, sem eru múslimar og minni- hlutahópur í Mjan- mar, verið í fréttum. Alþjóðasamfélagið ótt- ast að þjóðern- ishreinsanir séu að fara þar af stað. Mjanmar varð fyrir gríðarlegri eyðilegg- ingu er 4. stigs felli- bylurinn Nargis fór þar yfir 2008, og árið 2015 og aftur á síðasta ári flæddu ár í landinu yfir bakka sína. Það er því ekki skrýtið að órói sé í landinu. Margir Rohingjar hafa flúið til Bangladess en það land er líka plagað af loftslags- breytingum; hækkun sjávarborðs og aukinn fjöldi fellibylja valda saltmengun jarðvegs og drykkjar- vatns langt inn í land. Bangladess- ar hafa því ekki tekið flóttamönn- unum fagnandi og hyggjast flytja fólkið á óbyggða eyju sem er óbyggð af því hún verður óbyggi- leg á monsúntímanum sakir vætu. Framtíðin er ekki björt fyrir Roh- ingja frekar en margar aðrar þjóð- ir. Mörgum finnst nóg um flótta- menn nú þegar en þegar áhrif hlýnunar jarðar fara að skila sér af fullum þunga og íbúar m.a. Banglasess, Jemens og landa á Sa- hel-svæðinu í Afríku flosna upp í tugmilljóna tali og stríð blossa upp í kjölfarið þá verður orðið hart í heimi og lítið um skipulagða að- stoð. Við þurfum því að bregðast við núna og gera allt sem við getum til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda. Síðustu CO2 tölur frá Mauna Loa (nóv. 2016) hljóða upp á 405.6 ppm (parts per million). Helst þyrfti að koma CO2 magni í andrúmsloftinu niður í það sem var á árunum fyrir 1990, sem var um 350 ppm, eins og Bill McKibben, stofnandi 350.org, hefur lagt til en það verður tæpast á þessari öld. Jafnvel þótt menn hættu strax allri notkun jarðefnaeldsneytis þá tæki það koldíoxíðið langan tíma að hverfa úr andrúmsloftinu. Það er hægt að vinna CO2 úr loftinu og geyma það í föstu formi en slíkt krefst meiri orku en heimurinn má missa nú. Til að lækka CO2 magnið um 1ppm þarf að fanga 2.12 gíga- tonn kolefnis úr andrúmsloftinu – ekki einfalt verk. Ef til verður slíkt möguleiki síðar á öldinni þeg- ar Kínverjar verða búnir að þróa fjórðu kynslóðar kjarnorkuver sín (byggist á hugmyndum Enrico Fermi) en eldsneyti fyrir þau er meiningin að sækja í gamlan kjarnorkuúrgang. Hugmyndir hafa verið uppi um að lækka hitastig á jörðinni með því að líkja eftir eld- gosi svipuðu því og varð í Lakagíg- um 1783-5 og dæla gríðarlegu magni af brennisteini upp í heið- hvolfið. Slíkt myndi að vísu kæla jörðina en valda illfyrirsjáanlegum breytingum á veðrakerfum og ekki koma í veg fyrir súrnun heimshaf- anna og áframhaldandi eyðingu á lífríki hafsins. Við Íslendingar höfum hingað til verið frekar áhugalausir um lofts- lagsmál og hegðað okkur eins og hlýnun jarðar kæmi okkur ekki við en stöðug hækkun sjávarborðs, eyðing jökla, tíðari steypiflóð, kraftmeiri stormar, breytingar á fiskgengd og ekki síst ótryggt ástand heimsmálanna ætti að nægja til að við förum að hugsa um það í alvöru hvort neyslu- mynstur okkar og orkunotkun þurfi ekki endurskoðunar við og hvað við getum gert hvert og eitt til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda því valt er að leggja allt traust á stjórnvöld í þeim efn- um. Hlýnun jarðar – líka okkar mál Eftir Ingibjörgu Gísladóttur » Við þurfum því að bregðast við núna og gera allt sem við getum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ingibjörg Gísladóttir Höfundur starfar hjá HSA Egils- stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.