Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 Árið 1976 hrifsaði herinn íArgentínu völdin í land-inu og hélt þeim til 1983.Meðan herinn var við völd hratt hann af stað herferð gegn andstæðingum sínum. Settar voru upp leynilegar fangabúðir fyr- ir grunaða andófsmenn. Þúsundir hurfu sporlaust og talið er að á milli tíu og þrjátíu þúsund almenn- ir borgarar hafi verið drepnir. And- rúmsloft þessara ára kúgunar og ógnarstjórnar er viðfangsefni Eugeniu Almeida í fyrstu skáld- sögu hennar, Rútunni, sem í upphafi árs kom út í íslenskri þýðingu Katrínar Harðardóttur. Sagan gerist í litlu þorpi á landsbyggðinni. Dag einn er rút- unni, sem dag- lega kemur til bæjarins, ekið í gegn án þess að stoppa. Þetta veldur furðu bæjar- búa. Þegar sagan endurtekur sig safnast bæjarbúar saman til að fylgjast með þegar von er á rút- unni. Þeir vilja sjá hana blússa gegnum bæinn án þess að nema staðar. Þeim sem vilja komast í burtu stendur ekki á sama, sér- staklega ferðalangi og vinkonu hans sem búa á hótelinu í bænum. Í þokkabót hefur tálmi við lest- arteinana verið bundinn niður að fyrirmælum hersins og má ekki lyfta honum þótt lestin sé farin hjá. Það er ekki hægt að fara. Fólk veit samt ekki hvað það á að halda og veigrar sér við því að forvitnast um of. Þegar líður á flækjast málin. Í ljós kemur að yfirvöld leita konu. Þorpsbúar velta fyrir sér hvort um sé að ræða parið á hótelinu, sem ákvað að ganga í burtu eftir járnbrautarteinunum fyrst rútan stoppaði ekki. Ekki er ljóst hvers vegna sé verið að leita, en fólk segir við sjálft sig að eitt- hvað hljóti hún að hafa gert. Eins og segir í neðanmálsgrein er þar „vísað í orðtak sem notað var sem afsökun fyrir að hjálpa ekki þeim sem herinn nam á brott“ á tímum herforingjastjórnarinnar. „Þögnin er holl,“ segir lögreglu- stjórinn síðar þegar gengið er á hann og notar þar eins og aftur er bent á í neðanmálsgrein kjörorð herforingjastjórnarinnar til að „þagga niður í þegnum landsins svo óhæfuverk ríkisstjórnarinnar yrðu ekki opinber“. Herforingjastjórnin byggði völd sín á lygum. Hún hélt því fram að borgarastyrjöld geisaði í landinu og réttlætti þannig herferðina gegn andófsmönnum. Heimspekingurinn Hannah Arendt lýsti því í viðtali 1974 hvernig lygar væru notaðar í alræðisríkjum: „Um leið og fjöl- miðlar eru ekki lengur frjálsir get- ur allt gerst. Það sem gerir alræðisríkjum eða einræðisríkjum af öðrum toga kleift að stjórna er að fólk er ekki upplýst. Hvernig er hægt að hafa skoðun án þess að vera upplýstur? Ef allir ljúga að þér án afláts er afleiðingin ekki sú að þú trúir lygunum, heldur að enginn trúir neinu lengur. Þetta er vegna þess að lygum þarf eðli þeirra vegna að breyta og stjórn sem lýgur þarf stöðugt að endur- skrifa sögu sína. Viðtakandinn fær ekki bara eina lygi – lygi sem hægt er að styðjast við það sem eftir lifir – heldur fjölda lyga, eftir því hvernig hinn pólitíski vindur blæs. Og þjóð sem ekki getur lengur trú- að getur ekki gert upp hug sinn. Hún er ekki bara svipt getu sinni til aðgerða heldur líka til að hugsa og dæma. Og við slíka þjóð er hægt að gera það sem manni sýn- ist.“ Argentínumenn létu herforingja- stjórnina reyndar ekki fara með sig að vild. Þegar sigið var á seinni hluta áttunda áratugarins fóru samtök kvenna, sem misst höfðu börn sín og barnabörn, að halda vikuleg mótmæli til að vekja at- hygli á mannréttindabrotum í land- inu og þegar kom fram á níunda áratuginn jókst andstaðan. En það er annað mál. Í raun má segja að Almeida lýsi í skáldsögu sinni ástandi í ætt við það, sem Arendt talar um í viðtalinu. Hlið- stæður má finna víða um þessar mundir. Í Rússlandi Vladimírs Pút- íns hefur frjáls fjölmiðlun verið kveðin í kútinn. Í Bandaríkjunum er sannleikurinn orðinn að bitbeini Donalds Trumps forseta og fjöl- miðla. Þýðing bókarinnar er á heildina litið góð, en þó eru á henni hnökrar og hefði mátt lesa hana betur yfir. Á einum stað er búin til fleirtala af orðinu mylsnu. „ … snúa þau við á staðnum og snúa við,“ stendur ann- ars staðar. Ambögur eru fleiri og hefði verið hægðarleikur að koma í veg fyrir þær. Að því sögðu er fengur að því að þessi áhrifaríka bók skuli hafa verið þýdd á ís- lensku. Kúgun „Andrúmsloft þessara ára kúgunar og ógnarstjórnar er viðfangsefni Eugeniu Almeida í fyrstu skáldsögu hennar, Rútunni,“ segir í rýni. Eitthvað hlýtur hún að hafa gert Skáldsaga Rútan bbbmn Eftir Eugeniu Almeida. Þýðing Katrín Harðardóttir. Salka, 2017. Kilja 130 bls. KARL BLÖNDAL BÆKUR Forsvarsmenn bókaútgáfunnar Simon & Schuster hafa rift útgáfu- samningi við Milos Yiannopoulos, ritstjóra hjá Breitbart-fréttaveit- unni, vegna ummæla hans um barnaníð. Yiannopoulos hafði feng- ið greidda 250 þúsund dollara (tæp- lega 28 milljónir króna) í fyrirfram- greiðslu fyrir sjálfsævisöguna Dangerous sem væntanleg var 13. júní nk., skv. The Guardian. Ákveðið var að rifta útgáfusamn- ingnum eftir að ummæli Yianno- poulos, þar sem hann virtist hvetja til samræðis eldri manna og ungra drengja allt niður í 13 ára, komust í hámæli og vöktu hörð viðbrögð. Ummælin lét hann falla í netútsend- ingu og rötuðu þau í framhaldinu sem vídeó á samfélagsmiðla. Þar sagði Yiannopoulos að samræðis- aldur væri ekki „svart/hvítt fyrir- bæri“ og að sambönd „milli yngri pilta og eldri karlmanna … gætu verið stórkostlega jákvæð upp- lifun“. Í netviðtalinu hafnar hann því að um barnaníð sé að ræða hafi 13 ára unglingurinn tekið út kyn- ferðislegan þroska. „Barnaníð felst í því að dragast að börnum sem ekki hafa náð kynþroska,“ er haft eftir Yiannopoulos í netútsending- unni. Þar gantast hann með að kaþ- ólskur prestur hafi kennt sér ból- fimi á yngri árum. Yiannopoulos er þekktur fyrir umdeild og hatursfull ummæli sín, en hann hefur í gegnum tíðina ráð- ist að múslímum, innflytjendum, transfólki og konum. Ummæli hans um barnaníð hafa fallið í grýttan jarðveg og samkvæmt frétt The New York Times hafa samstarfs- félagar Yiannopoulos hjá Breitbart hótað að segja upp verði honum ekki vikið úr ritstjórnarstarfi. Útgáfusamningi sagt upp AFP Umdeildur Samstarfsmenn hjá Breitbart vilja að Yiannopoulos víki. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s Lau 6/5 kl. 20:00 163. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s Fös 12/5 kl. 20:00 164. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s Fös 19/5 kl. 20:00 165. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s Fös 28/4 kl. 20:00 162. s Lau 20/5 kl. 20:00 166. s Glimmerbomban heldur áfram! Úti að aka (Stóra svið) Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir. Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s Sun 23/4 kl. 13:00 41. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s Sun 30/4 kl. 13:00 42. s Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Vísindasýning Villa (Litla svið ) Lau 25/2 kl. 13:00 7. sýn Lau 4/3 kl. 13:00 9. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls. Sun 26/2 kl. 13:00 8. sýn Sun 5/3 kl. 13:00 10. sýn Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna. Illska (Litla sviðið) Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00 Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar Fórn (Allt húsið) Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið Salka Valka (Stóra svið) Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn Ein ástsælasta saga þjóðarinnar. Síðasta sýning. Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið) Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00 Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00 Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30 Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í. leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Fös 24/2 kl. 19:30 Lau 4/3 kl. 19:30 Síðustu sýningar! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Fim 23/2 kl. 19:30 Fös 24/2 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Óþelló (Stóra sviðið) Lau 25/2 kl. 19:30 Fös 3/3 kl. 19:30 Fös 17/3 kl. 19:30 Sýningum lýkur í mars! Gott fólk (Kassinn) Lau 25/2 kl. 19:30 Síðustu sýningar! Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 12/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 13:00 Sun 26/2 kl. 16:00 Sun 12/3 kl. 16:00 Sun 26/3 kl. 16:00 Sun 5/3 kl. 13:00 Sun 19/3 kl. 13:00 Sun 5/3 kl. 16:00 Sun 19/3 kl. 16:00 Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 23/2 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 22:30 Lau 11/3 kl. 22:30 Fös 24/2 kl. 20:00 Lau 4/3 kl. 20:00 Fim 16/3 kl. 20:00 Fös 24/2 kl. 22:30 Lau 4/3 kl. 22:30 Fös 17/3 kl. 20:30 Lau 25/2 kl. 20:00 Fim 9/3 kl. 20:00 Fös 17/3 kl. 23:00 Lau 25/2 kl. 22:30 Fös 10/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 20:00 Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 22:30 Lau 18/3 kl. 22:30 Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00 Fim 23/3 kl. 20:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Húsið (Stóra sviðið) Fös 10/3 kl. 19:30 Frums Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga. Tímaþjófurinn (Kassinn) Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 22/4 kl. 19:30 Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00 Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.