Morgunblaðið - 28.02.2017, Qupperneq 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
Citroën mætir til leiks á bílasýning-
unni í Genf 7. til 19. mars með þró-
unarjeppann C-Aircross. Honum er
meðal annars stefnt gegn Nissan
Juke og einnig verður Crossland X-
smájeppinn frá Opel keppinautur.
Þegar Opel ákvað að hætta smíði
litla fjölnotabílinn Meriva og bjóða
upp á Crossland X-jepplinginn í
staðinn ákvað Citroën að fara þá leið
líka. Mun C-Aircross þannig leysa
C3 Picasso af hólmi.
Crossland X og C-Aircross deila
undirvagni með samstarfi General
Motors (GM) og PSA Peugeot Citro-
ën, en viðræður standa nú yfir um
kaup PSA á Opel og Vauxhall frá
GM.
C-Aircross er önnur tilraun Citro-
ën til að láta til sín taka í jeppasmíði
en sá fyrsti í langri sögu fyrirtæk-
isins er C4 Cactus. Viðtökur hans á
markaði hafa sannfært forsvars-
menn franska bílsmiðsins að leita
frekar fyrir sér í jeppaframleiðslu. Í
kjölfar C-Aircross er svo von á jeppa
á stærð við Qashqai svo og sjö sæta
jeppa frá Citroën en þeir munu báðir
deila undirvagni með Peugeot 3008
og 5008.
Útlitslega deilir C-Aircross
mörgu með nýja C3 hlaðbaknum og
verulega miklu af vélrænum þáttum
bílanna. Sömuleiðis eru áhrif frá C4
Cactus augljós, ekki síst loftpúð-
arnir á hurðunum. Þær eru þó enn
neðar á C-Aircross, rétt fyrir ofan
sílsana.
Þar sem hann er aðeins 4,1 metra
langur telst C-Aircross smájeppi. Er
hann svo gott sem sömu stærðar og
C3 og Juke. Þrátt fyrir jeppalegt út-
lit verður hann ekki með drif á öllum
fjórum hjólum. Hins vegar verður
rafræn gripstýring sem ökumaður
getur gripið til
og auðveldar
akstur í erfiðum
aðstæðum og
torleiðum, svo
sem í snjó, sandi
eða utanvegar.
Talið er að
samskonar aflrás
verði í C-
Aircross og í C3
og C4 Cactus,
þ.e.a.s. 1,2 lítra
Puretech bens-
ínvél eða 1,5 lítra
dísilvél.
Afturhurð
bílsins er ekki
áföst burðarbita
fyrir miðju bílsins heldur opnast hún
út og aftur með bílnum. Þetta fyr-
irkomulag bætir aðgengi að honum
stórlega. Þá verður hann á 18
tommu felgum. Í stjórnklefa og far-
þegarými verður fjöldi nýjunga en
þar sem C-Aircross flokkast enn á
hugmyndastigi er ólíklegt að þær
verði allar í endanlegum fram-
leiðslubíl. Hið sama gildir um hlið-
arspeglana sem víkja fyrir mynda-
vélum. óvíst er hvort sú hugmynd
lifir af.
agas@mbl.is
Citroën með þró-
unarjeppa í Genf
Í stað mælaborðs er kominn sjónlínuskjár með öllum
upplýsingu um starfsemi Citroën C-Aircross.
Aðgengi að C-Aircross er mjög gott þar sem afturhurðir opnast aftur.
Kraftmikil sportútgáfa af Toyotu
Yaris verður eflaust ein helsta
stjarnan á bás japanska bílsmiðsins á
bílasýningunni í Genf í byrjun mars.
Hingað til hafa menn þekkt Yaris
fyrst og fremst fyrir notagildið og
sem góðan bíl til innanbæjarferða.
Sportútgáfan verður þó ekki til í
anda þess, enda með 210 hestafla
vél.
Er hér um að ræða kraftmikinn
hálfgerðan rallbíl, enda er hann
sumpart afleiddur af rallbílnum sem
Toyota sneri á dögunum aftur til
keppni á í HM í ralli, eftir 18 ára
fjarveru úr sportinu.
Með þessum nýja „GTI“ Yaris ætti
Toyota að vera með í höndum bíl
sem skorað getur hina snörpu Ford
Fiesta ST, Volkswagen Polo GTi og
Fiat 500 Abarth á hólm.
Frumsýning nýja Yarisins mun
eiga sér stað 9. mars nk. Hann verð-
ur eingöngu framleiddur þrennra
dyra. Smíðin mun eiga sér stað í bíl-
smiðju Toyota í Valenciennes í
Frakklandi.
agas@mbl.is
Nýja sportútgáfan af Yaris er stælt að sjá.
Sportútgáfa af Yaris
Toyota er aftur komið til keppni í HM á ralli, á Yaris WRC bíl. Hér er hann á
ferð í fyrsta ralli ársins, í Mónakó.
Með krafta í kögglum í Genf
Þeir Hallgrímur Einarsson, Guðjón
Reykdal Óskarsson og Hjálmar
Þorvaldsson fengu á dögunum af-
henta þrjá sérhannaða Mercedes-
Benz V-Class bíla sem þeir munu
keyra sjálfir en þremenningarnir
eru allir bundnir við hjólastól.
Að verkefninu koma Sjúkra-
tryggingar Íslands, Öryggis-
miðstöðin og Bílaumboðið Askja.
V-Class bílarnir eru mjög mikið
breyttir eftir þörfum viðkomandi
ökumanna sem eru í hjólastólum
sínum þegar þeir aka bílunum. Bú-
ið er að setja lyftu utan á bílana
sem sér um að lyfta ökumönnum
upp í þá. Hægt er að færa hið hefð-
bundna ökumannssæti og renna því
til hliðar. Búið er að setja tvo stýri-
pinna sinn hvorum megin við stýrið
sem ökumennirnir nota til að stýra
bílnum. Á pinnanum er m.a. að
finna bensíngjöf og bremsur.
Öryggismiðstöðin sá um að fram-
kvæma allar breytingar á bílunum
og koma fyrir hjálpartækjum í
þeim fyrir ökumennina. Jón Eiríks-
son, verkefnastjóri hjá Öryggis-
miðstöðinni, segir að það sé langt
ferli að breyta einum svona bíl.
„Fyrir það fyrsta þarf ein-
staklingur sem hyggur á svona
breytingu að undirgangast ökumat
hjá Grensásdeild LSH og þegar því
er lokið þarf að huga að stjórnbún-
aði sem hentar hverjum og einum.
Við höfum að leiðarljósi að að-
laga bílana eins og hentar hverjum
og einum. Öryggismiðstöðin býður
upp á mikið úrval af íhlutum til
breytinga á bílum fyrir hreyfihaml-
aða auk þess að bjóða búnað fyrir
ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á
sérhæfða ferðaþjónustu,“ segir
Jón.
Sjúkratryggingar Íslands borga
öll hjálpartækin sem sett eru í bíl-
ana og breytingarnar við það. Þre-
menningarnir fá auk þess bílastryk
frá Tryggingastofnun Íslands.
Þetta er mikið ferli sem viðkom-
andi fer í gegnum áður en hann fær
slíkan bíl. Hann þarf að fara í gegn-
um mat hvort hann geti yfirhöfuð
keyrt bíl og að sjálfsögðu að taka
bílpróf eins og allir aðrir ökumenn.
agas@mbl.is
Hreyfihamlaðir fá
sérsniðna bíla
V-Class bílarnir eru sérhannaðir fyrir þremenningana.
Guðjón, Hjálmar og Hallgrímur fyrir framan nýju V-Class bílana sína. Að
baki þeim eru fjölskyldumeðlimir og starfsfólk Öryggismiðstöðvarinnar,
Bílaumboðsins Öskju og Sjúkratrygginga Íslands sem komu að verkefninu.
Hyundai Tucson 2.0 CRDi, Kia
Sportage 2.0 CRDi 4x2 og Suzuki
Vitara 1.6 DDiS eru með besta
hröðun af dísiljeppum þegar bíl-
hraðinn er aukinn úr 80 km/klst í
120 km með því að beita fimmta gír
eingöngu.
Þetta eru niðurstöður mælinga
sérfræðinga franska bílaritsins
Auto Plus á hröðun dísiljeppa.
Höfðu þeir 30 mismunandi módel til
taks og munaði heilum fimm sek-
úndum á framangreindum jeppum
og Audi Q3 2.0 TDI sem varð í þrí-
tugasta og neðsta sæti. Í vegalengd
þýðir það að snörpustu bílarnir þrír
þurftu 150 metrum styttri vega-
lengd til að ná 120 km/klst ferð.
Hyundai Tucson (136 hestöfl), Kia
Sportage (136 hestöfl) og Suzuki
Vitara (120 hestöfl) voru aðeins 8,6
sekúndur að lyfta sér úr 80 í 120 við
prófið. Við aksturinn voru bílarnir
alltaf í fimmta gír eingöngu.
Rétt á eftir á 8,8 sekúndum varð
Peugeot 3008 2.0 BlueHDi (150
hesta) og í fimmta til sjötta sæti á
9,0 sekúndum urðu Mazda CX-5 2.2
Skyactive-D 4x2 (150 hesta) og
Nissan Qashqai 1.6 dCi (130 hesta).
Í sjö til 10 urðu Subaru XV 2.0D
(147 hesta) á 9,4 sek., Renault Kadj-
ar 1.6 dCi (130 hesta) á 9,7 sek.,
BMW X1 sDrive 18d (150 hesta) á
9,8 sek. og Audi Q3 TDI ultra (150
hesta) á 9,9 sek.
Þar á eftir komu svo:
10,0 Ford Kuga TDCi 4x2 (150
hesta)
10,2 Seat Ateca 2.0 TDI 4Drive
(150 hesta)
10,3 Subaru Forester 2.0D (147
hesta)
10,5 Peugeot 3008 1.6 BlueHDi
(120 hesta)
10,6 VW Tiguan 2.0 TDI (150
hesta)
10,8 Toyota Rav 4 D-4D (143
hesta)
11,1 Citroen C4 Aircross 1.6
HDi 4x2 (115 hesta)
11,2 Range Rover Evoque eD4
(150 hesta)
11,3 Dacia Duster 1.5 dCi (110
hesta)
11,3 Mercedes GLA 200 d (136
hesta)
11,6 Kia Sportage 1.7 CRDi 4x2
(115 hesta)
11,8 Hyundai Tucson 1.7 CRDi
(115 hesta)
11,9 Mitsubishi ASX 1.8 DI-D
4x2 (115 hesta)
11,9 Nissan Qashqai 1.5 dCi
(110 hesta)
11,9 Peugoet 3008 1.6 HDi (115
hesta)
12,0 Ford Kuga 1.5 TDCi (120
hesta)
12,0 Peugeot 4008 1.6 HDi (115
hesta)
13,1 VW Tiguan 2.0 TDI (115
hesta)
13,4 Renault Kadjar 1.5 dCi
(110 hesta)
13,6 Audi Q3 2.0 TDI (120
hesta)
agas@mbl.is
Suzuki Vitara er skjótur í hröðuninni.
Þrír með jafnmesta upptakið