Morgunblaðið - 28.02.2017, Síða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
E
r ekki skemmtilegt hvernig spegla
má heilu þjóðirnar í bílunum sem
þær framleiða?
Að eiga ítalskan bíl er eins og að
eiga ítalskan elskhuga: hann skortir ekki
glæsileikann, tælir og daðrar, finnst gaman
að láta á sér bera og er skemmtilegur
ferðafélagi, en maður veit ekki alveg hvort
má stóla á hann alla leið á áfangastað.
Bandarísku bílarnir minna á karlmann-
legan og kraftalegan kúreka; kúrekinn læt-
ur mikið fyrir sér fara, kallar ekki allt
ömmu sína, er sjaldan smáfríður en þeim
mun stæltari.
Þýsku bílarnir eru alvörugefnir, rétt eins
og verkfræðingarnir sem hanna þá. Áreið-
anlegir, fyrirsjáanlegir, og nokkuð snotrir.
En þegar maður liggur uppi í sófa og horfir
á Netflix með Benz eða Audi í fanginu
stendur maður sig stundum að því að sakna
dyntótta ítalska skaphundsins með lélegu
tímareimina.
Sænski sjarminn
En hvernig eru þá sænskir bílar?
Svíar eru mjög sérstakur þjóðflokkur.
Drottningin þeirra er sannfærð um að vina-
legir litlir draugar búi í konungshöllinni.
Þeir hafa fært okkur Wasa-hrökkbrauð,
IKEA-kjötbollur, Abba og Astrid Lindgren.
Gott ef Svíarnir eru ekki upp til hópa svolít-
ið skrítnir við fyrstu sýn. En þegar maður
kynnist þeim betur reynast þeir einkar við-
kunnanlegir og sænska sérviskan verður þá
bara þeim mun meira sjarmerandi.
Þegar mér var boðið á stefnumót við nýja
V90 Cross Country var ég hæfilega spennt-
ur. Hversu mikið fútt gæti jú verið í sænsk-
um hlaðbak? En eftir að hafa skautað með
Svíanum mínum á ísi lögðu vatni skammt
frá Östersund var ég orðinn bálskotinn.
Ekki nóg með það heldur var ég lentur í
miðjum ástarþríhyrningi, því Volvo hafði
ákveðið að hleypa bílablaðamannahópnum
líka í XC90T8.
Leikið í snjónum
Ferðinni var sumsé heitið til Svíþjóðar í
lok janúar. Þangað hafði Volvo boðað blaða-
menn frá öllum heimshornum til að kynnast
V90 Cross Country, síðustu viðbótinni við
90-línuna frá Volvo. Það var við hæfi að
smala blaðamönnunum saman á fallegu
skíðahóteli og leyfa þeim að leika sér í
snjónum, því með nýja bílnum vill Volvo
reyna að höfða til ævintýragjarns útivist-
arfólks. Skottið rúmar hnakkinn, hundinn
og skíðin, og bíllinn ræður léttilega við
verstu sveitavegi. Innan um snjóinn og trén
er Volvo 90 CC í sínu náttúrulega umhverfi.
En tíminn var af skornum skammti og
ekki hægt að prófa bílinn nógu ítarlega til
að geta skrifað um hann ekta reynsluakst-
ursgrein.
Akstur á ísilögðu vatni er ekki endilega
besta leiðin til að dæma um gæði bíls, en
hin besta skemmtun sem allir ættu að prófa
a.m.k. einu sinni á lífsleiðinni.
Eins og á góðu fyrsta stefnumóti var
leiknum hætt þá hæst hann stóð, og ég full-
ur tilhlökkunar eftir því að leiðir okkar Sví-
ans liggi saman á ný. Eftir situr minning
um fumlausa akstursupplifun, þægindi, lúx-
us og fallega hönnun bæði að innan sem ut-
an.
Það verður ekki af Svíunum tekið að þeir
kunna að koma manni á óvart, og kitla
mann óvænt á stöðum sem maður hafði
löngu gleymt.
ai@mbl.is
Að vera skotinn í Svía
Ljósmyndir / Nicklas Blom
Volvo V90 CC er ætlaður ævintýra- og útivistarfólki. Blaðamenn fjölmenntu á vatnið, vandlega dúðaðir.
Það er ekki annað hægt en að brosa allan hringinn þegar boðið er upp á annan eins dótadag í vinnunni. XC90 var ekki síður lipur á ísnum og lét vel að stjórn miðað við aðstæður.
Sparneytinn, öruggur og ósköp lag-
legur á sinn hátt. Svarthvítt vetrar-
landslagið fer V90 CC ákaflega vel.