Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ E r ekki skemmtilegt hvernig spegla má heilu þjóðirnar í bílunum sem þær framleiða? Að eiga ítalskan bíl er eins og að eiga ítalskan elskhuga: hann skortir ekki glæsileikann, tælir og daðrar, finnst gaman að láta á sér bera og er skemmtilegur ferðafélagi, en maður veit ekki alveg hvort má stóla á hann alla leið á áfangastað. Bandarísku bílarnir minna á karlmann- legan og kraftalegan kúreka; kúrekinn læt- ur mikið fyrir sér fara, kallar ekki allt ömmu sína, er sjaldan smáfríður en þeim mun stæltari. Þýsku bílarnir eru alvörugefnir, rétt eins og verkfræðingarnir sem hanna þá. Áreið- anlegir, fyrirsjáanlegir, og nokkuð snotrir. En þegar maður liggur uppi í sófa og horfir á Netflix með Benz eða Audi í fanginu stendur maður sig stundum að því að sakna dyntótta ítalska skaphundsins með lélegu tímareimina. Sænski sjarminn En hvernig eru þá sænskir bílar? Svíar eru mjög sérstakur þjóðflokkur. Drottningin þeirra er sannfærð um að vina- legir litlir draugar búi í konungshöllinni. Þeir hafa fært okkur Wasa-hrökkbrauð, IKEA-kjötbollur, Abba og Astrid Lindgren. Gott ef Svíarnir eru ekki upp til hópa svolít- ið skrítnir við fyrstu sýn. En þegar maður kynnist þeim betur reynast þeir einkar við- kunnanlegir og sænska sérviskan verður þá bara þeim mun meira sjarmerandi. Þegar mér var boðið á stefnumót við nýja V90 Cross Country var ég hæfilega spennt- ur. Hversu mikið fútt gæti jú verið í sænsk- um hlaðbak? En eftir að hafa skautað með Svíanum mínum á ísi lögðu vatni skammt frá Östersund var ég orðinn bálskotinn. Ekki nóg með það heldur var ég lentur í miðjum ástarþríhyrningi, því Volvo hafði ákveðið að hleypa bílablaðamannahópnum líka í XC90T8. Leikið í snjónum Ferðinni var sumsé heitið til Svíþjóðar í lok janúar. Þangað hafði Volvo boðað blaða- menn frá öllum heimshornum til að kynnast V90 Cross Country, síðustu viðbótinni við 90-línuna frá Volvo. Það var við hæfi að smala blaðamönnunum saman á fallegu skíðahóteli og leyfa þeim að leika sér í snjónum, því með nýja bílnum vill Volvo reyna að höfða til ævintýragjarns útivist- arfólks. Skottið rúmar hnakkinn, hundinn og skíðin, og bíllinn ræður léttilega við verstu sveitavegi. Innan um snjóinn og trén er Volvo 90 CC í sínu náttúrulega umhverfi. En tíminn var af skornum skammti og ekki hægt að prófa bílinn nógu ítarlega til að geta skrifað um hann ekta reynsluakst- ursgrein. Akstur á ísilögðu vatni er ekki endilega besta leiðin til að dæma um gæði bíls, en hin besta skemmtun sem allir ættu að prófa a.m.k. einu sinni á lífsleiðinni. Eins og á góðu fyrsta stefnumóti var leiknum hætt þá hæst hann stóð, og ég full- ur tilhlökkunar eftir því að leiðir okkar Sví- ans liggi saman á ný. Eftir situr minning um fumlausa akstursupplifun, þægindi, lúx- us og fallega hönnun bæði að innan sem ut- an. Það verður ekki af Svíunum tekið að þeir kunna að koma manni á óvart, og kitla mann óvænt á stöðum sem maður hafði löngu gleymt. ai@mbl.is Að vera skotinn í Svía Ljósmyndir / Nicklas Blom Volvo V90 CC er ætlaður ævintýra- og útivistarfólki. Blaðamenn fjölmenntu á vatnið, vandlega dúðaðir. Það er ekki annað hægt en að brosa allan hringinn þegar boðið er upp á annan eins dótadag í vinnunni. XC90 var ekki síður lipur á ísnum og lét vel að stjórn miðað við aðstæður. Sparneytinn, öruggur og ósköp lag- legur á sinn hátt. Svarthvítt vetrar- landslagið fer V90 CC ákaflega vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.