Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.4. 2017 VETTVANGUR Eflaust er einstaklingsbundiðhvað það er við Ísland semvið leggjum mest uppúr. Flest höldum við tryggð við land íss og elda vegna þess að hér er fjöl- skylda okkar og það fólk sem okkur þykir vænst um og viljum vera ná- lægt. Þá er íslensk menning og menningararfleifð gefandi. Það er þetta tvennt sem við köllum rætur okkar. Síðan er það hreinleikinn. Andrúmsloftið er hreinna en víðast gerist og drykkjarvatn nánast hvergi betra. Þá er matvara almennt heilnæmari á Íslandi en annars stað- ar. Og ekki má gleyma náttúrufeg- urðinni. Ég efast um að mörg lönd geti státað af eins mörgum mögn- uðum náttúruundrum á hundrað þúsund ferkílómetra svæði, Herðu- breið og Dynjandi, Kolugljúfur, Skjálfandi, Hvassahraun, Hvanna- dalshnjúkur … Ég veit að það færi fyrir brjóstið á einhverjum ef áfram yrði haldið að tíunda ágæti okkar lands; að slíkt væri þjóðremba af verstu sort. Ég myndi þvert á móti stilla slíku upp sem andstæðu hroka og rembings og kalla þetta þakklæti fyrir það sem okkur er falið. En gagnvart hinum hneykslunar- gjörnu og öllum þeim sem vilja búa í stöðluðum heimi helst frá- vikalausum – þar sem allt hef- ur verið fært alla leið niður að lægsta samnefn- ara – ætla ég að ganga enn lengra í meintri þjóðrembu og afturhaldssemi og ræða fámennið. Ekki til að tala um það sem veikleika eins og gjarnan er ætlast til að þeir geri sem vilji teljast til frjálslyndra nútímamanna, heldur sem styrkleika. Þegar allt kemur til alls þá grunar mig að flest deilum við þeirri reynslu að finnast það vera góð tilfinning að vera til fjalla, fjarri mannabyggðum, njóta kyrrðar öræfanna – njóta fá- mennisins. Og getur verið að við séum ekki ein um þessa tilfinningu; að hún sé hreinlega sammannleg? Og gæti nú verið að fleiri en við sæk- ist eftir hreinu ómenguðu drykkjar- vatni og heilnæmri matvöru, kjöti sem ekki er sneisafullt af skaðlegum sýklum eða þá sýklalyfjum? Einu sinni gekk ég með New York-búa að Búrfellsgjá í Heiðmörk. Hann átti erfitt með að fóta sig í þýfðu landinu enda hafði hann aldrei komið út af malbikinu á Manhattan. Honum fannst þetta vera ævintýri lífs síns og þá ekki síður að aka yfir óbrúaða ársprænu á hálendinu og um malarvegi sem bugðuðust með landinu. Já, en þarf ekki margmenni til að njóta velsældar? Því er til að svara að við erum ekki fá þegar allt kemur til alls. Og með samvinnu hefur okk- ur tekist að lyfta grettistaki á ýms- um sviðum. Samvinnufélagi kúa- bændanna, MS, tókst þannig að færa til landsins þróuðustu vinnslu- tæki fyrir mjólkurarfurðir sem finn- ast í heiminum. Og með samvinnu tókst okkur að koma á fót öflugu vel- ferðarkerfi og þar með heilbrigð- iskerfi sem á sínum tíma fékk þá ein- kunn hjá Efnahags- og framfarastofnuninni, að það nýtti betur hverja krónu en heilbrigð- iskerfi nokkurs staðar í heiminum. Þessi kerfi eru vissulega brot- hætt, sér- staklega þegar stjórnvöldin sjálf reyna að mola úr þeim. Það segir sig sjálft. En getur ver- ið að eftir nokk- ur ár, ef til vill fyrr en nokkurn grunar, verði helsta aðdráttarafl Íslands salmonellulaus egg og heilnæm kjötvara á borðum, lífrænt ræktað kál, línudreginn fisk- ur úr sjó, land laust við fjögurra ak- reina vegi og alla upphækkaða, svæði laus við hagkvæmnisútreikn- aða vegalagningu sem þyrmir ekki viðkvæmum leirum, einhverjar óbrúaðar ár og mannfá svæði, sem þó eru ekki mannfá vegna þess að erlendir auðkýfingar haldi þeim út af fyrir sig í krafti eignarhalds sem aldrei átti að verða. Allt sem við þurfum er að farið verði betur með verðmætin í land- inu, að við látum ekki mjúkmála milljarðamæringa stela af okkur – slíka menn þarf ekki að flytja inn – þegar eru of margir til staðar. Það tekur ekki langan tíma að eyðileggja Ísland. En ef við höldum vel á málum mun mannfæð ekki koma að sök – þvert á móti verða okkar styrkur: jafnvel, dýrmætasta auðlind Íslands! Er fámennið dýrmætasta auðlind Íslands? ’Allt sem við þurfum erað farið verði betur meðverðmætin í landinu, aðvið látum ekki mjúkmála milljarðamæringa stela af okkur – slíka menn þarf ekki að flytja inn – þegar eru of margir til staðar. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Barnaafmæli vakti mikla athygli í vikunni en Viðskiptablaðið fjallaði um barnaafmæli sem lífsstílsblogg- arinn Tinna Alavais hélt fyrir 3 ára dóttur sína og hún fjallaði um á bloggsvæði sínu. Athygli vakti að afmælið var styrkt af níu fyr- irtækjum en fyrirtækin greiða Tinnu fyrir að birta myndir af vör- unum og umfjöllun á blogginu. Mikið var skrifað um þetta á samfélagsmiðlunum, Lára Björg Björnsdóttir, meðeigandi Suð- vestur tísti: „Versta við þetta 3 ára afmæli fíaskó er eftirfar- andi: Allt liðið sem mætir á svæðið og sver svona rugl og tilstand af sér og Í LEIÐINNI gefur það í skyn að ALLIR séu að þessu og hvað sé nú steikt. Hell to the no, þetta var bara einn bloggari og nenniði að- eins. Annað hérna: Við erum held- ur ekki öll að kaupa okkur súran disk af ss-pullum og múslí í kokteil- glasi þó að eitthvað lið pósti myndum af sér starandi út í tómið á einhverjum sveitadæner eða hvar í helvítinu sem þessi lundur er.“ Tónlistar- og út- varpskonan Salka Sól Eyfeld tísti í byrjun vikunnar: „Vona alltaf að ég fái sömu línu og Bubbi Morthens og Jónsi fengu í Hjálpum þeim, næst þegar það verður gefið út.“ Nokkrir höfðu áhuga á að vita hvaða línur það væru nákvæmlega úr lagatext- anum. Salka Sól sagði það vera lín- una: „Við fáum af því fréttir að hungursneyð olli heilli þjóóóð!“ Saga Garðarsdóttir leikkona benti á að Salka hefði eitthvað misskilið textann. „Er það ekki ÓGNI HEILLI ÞJÓÐ? Annars er ég mjög opin fyrir súrealískum atóm-samstöðulög- um,“ tísti Saga. Gunnar Hrafn Jónsson, þing- maður Pírata, tísti þá í gærdag: „Það er varla fund- arfriður á Nefndasviði Al- þingis vegna ölv- aðra unglinga í pandabúningum fyrir utan. Erum samt ekki að ræða áfeng- isfrumvarpið.“ Áslaug Arna Sig- urbjörnsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, vakti líka athygli á þess- ari truflun og tísti: „Staðan í dag, nú er það ekki American bar, heldur verðandi háskólanemar sem er í góðum takti við umræðuna í nefndinni – stöðu háskólanna.“ AF NETINU Lífið tók miklum breytingum Ég var búin að prófa allt til að losna við stanslausan sviða og vanlíðan. Loksins fann ég það sem virkaði, Bio-Kult Candéa, mun halda áfram að nota það. Unnur Gunnlaugsdóttir Bio Kult Candéa Góð og öflug vörn fyrir meltingarveginn l Styrkir meltinguna l Vinnur á Candida sveppnum l Kemur jafnvægi á meltingaflóruna l Bestu gæði góðgerla Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.