Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 44
Frægustu feðginin í Hollywood AFP Don Johnson sló í gegn í Miami Vice en dóttir hans Dakota Johnson er upprennandi stjarna og lék m.a. Anastasiu Steele í Fimmtíu gráum skuggum. Girls-stjarnan Zosia Mamet (Shoshanna Shapiro) er dóttir leikskáldsins og leikstjórans David Mamet sem er m.a. þekktur fyrir Glengarry Glen Ross. Eins og allir vita fellur eplið sjaldan langt frá eikinni en þessar dætur hafa haldið í hefðina og skapað sér feril í skemmtanaiðnaðinum rétt eins og feðurnir. Hér verða talin upp einhver frægustu feðginin í Hollywood en sum eru lík, önnur skemmtilega ólík. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Lenny Kravitz er þekktari sem rokkstjarna en leikari en hann hefur þó verið í kvik- myndum á borð við Precious og Hungurleikunum. Dóttirin Zoë Kravitz lék núna síðast í Fantastic Beasts and Where to Find Them og var líka í Mad Max: Fury Road. 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.4. 2017 LESBÓK KVIKMYNDIR Madonna er vægast sagt ekki ánægð með Blond Ambition, mynd sem Universal ætlar að gera um upphaf ferils poppdrottningarinnar. Madonna varð enn ósáttari eftir að hún fékk að lesa handritið. „Af hverju myndi Universal Studios vilja gera mynd um mig byggða á handriti sem er eintómar lygar,“ skrifaði hún á Instagram að sögn The Hollywood Reporter en nú er búið að eyða færslunni. „Höfundurinn Elyse Hollander ætti að skrifa fyrir slúðurblöð“. Núna stendur á Instagram hjá henni: „Enginn veit það sem ég veit og hvað ég hef séð. Bara ég get sagt sögu mína. Aðrir sem reyna það eru svikarar og vitleys- ingar,“ skrifar hún. Madonna óánægð með kvikmynd um líf sitt Madonna segir handritið byggt á lygum. AFP SJÓNVARP Leikstjóri La La Land, Damien Chazelle, ætlar að leikstýra nýjum söng- leikjasjónvarpsþáttunum sem munu bera nafnið The Eddy, að sögn The Hollywood Re- porter. Sögusviðið er næturklúbbur í París nútímans og segja þættirnir frá eiganda klúbbsins, húsbandinu og „eldfimu borginni sem umkringir þau“. Handritshöfundur þáttanna er Jack Thorne, en hann hefur m.a. skrifað fyrir This Is England, The Fades, Skins og breska Shameless. Nú síðast vann hann með J.K. Rowling að hinu vinsæla og verðlaunaða leik- riti Harry Potter and the Cursed Child. Sjónvarpsþáttur frá Chazelle Damien Chazelle með Óskars- verðlaunin fyrir bestu leikstjórn. AFP Platan Purple Rain kom út árið 1984. Sex ný lög á Purple Rain TÓNLIST Platan Purple Rain með Prince verður endurútgefin í tveimur mismunandi útgáfum, De- luxe og Deluxe-Expanded Edition, að því er fram kemur á vef Rolling Stone. NPG Records og Warner Bros. hafa upplýst um lagalistann á báðum útgáfum en þær koma út 23. júní. Í tilkynningu kemur fram að þarna verði að finna sex lög sem „hafa ekki áður komið út eða verið dreift í safnaraheiminum“. Þarna á meðal verður sólóútgáfa af „Possessed“ frá 1983, stúd- íóútgáfa af „Electric Intercourse“, sem ekki var vitað um áður, fimm mínútna útgáfa af laginu „Father’s Song“, sem heyrðist aðeins stutt- lega í kvikmyndinni Purple Rain. Einnig verður þarna tíu mínútna útgáfa af laginu „We Can Fuck“ og endurhljóðblönduð útgáfa af „Katr- ina’s Paper Dolls“, sem áður var að- eins til sem demó. TÓNLIST Lúxustónlistarhátíðinni Fyre Festival hefur verið frestað eftir hörmungarbyrjun. Hátíðin átti að fara fram tvær helgar í röð á Ba- hama-eyjum en skipuleggjendur hafa frestað hátíðinni ótímabundið eftir að nánast allt fór úrskeiðis. M.a. hætti tónlistarfólkið við að spila og sú aðstaða sem var búið að lofa var ekki til staðar. Skipuleggjendurnir Ja Rule og Billy McFarland höfðu lofað fólki úrvalshátíð þar sem öll aðstaða væri glæsileg enda kostuðu mið- arnir frá 500.000 kr. til 26 milljóna kr. Uppselt var á hátíðina en þegar fyrstu gestirnir mættu á svæðið var húsnæðið ekki tilbúið og flotti mat- urinn sem var búið að lofa var þurrt brauð með osti og salat borið fram í frauðplastsöskju. Ja Rule. Misheppnuð tónlistarhátíð Johnny Depp er ein þekktasta kvik- myndastjarna síðustu ára (Eddi klippi- krumla, Sjóræningjar Karíbahafsins) og Lily-Rose Depp hefur fetað í fótspor hans. Hún starfar einnig sem fyrirsæta en lék nú síðast í myndinni Yoga Hosers.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.