Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 22
HÖNNUN Dagana 4.-7. maí verður sýningin Handverk og hönnun haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur.Meginmarkmið Handverks og hönnunar er að stuðla að eflingu handverks, listiðnaðar
og hönnunar en í Ráðhúsinu verða básar með fjölbreyttum verkum listamanna til sölu.
Handverk og hönnun í Ráðhúsinu
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.4. 2017
Ég myndi segja að stíllinn minn værifrekar látlaus en á sama tíma hlýlegur.Ég heillast mikið af skandinavískum
stíl og oftar en ekki er það dönsk hönnun sem
verður fyrir valinu. Mér finnst ótrúlega fal-
legt að blanda saman tímalausum, fallegum
húsgögnum við nýrri hluti,“ útskýrir Bylgja
Dögg, lyfjafræðingur og annar eigandi vef-
verslunarinnar Kreó, ásamt Önnu Fríðu Stef-
násdóttur, vinkonu sinni, en Kreó sérhæfir
sig í vönduðum og fallegum vörum inn á
heimilið.
Bylgja er fædd og uppalin í Vestmanna-
eyjum en kann vel við sig í Vesturbænum.
Hún heldur til að mynda mikið upp á Nes-
laugina og segir fátt betra en að hoppa þang-
að eftir góða æfingu. „Svo eru flottar sér-
verslanir úti á Granda eins og 17 sortir og
Búrið en þar er einmitt mikil uppbygging
sem gaman verður að fylgjast með.“
Við innréttingu heimilisins segir hún mestu
máli skipta að þægindi og útlit fylgist að.
„Einnig er mikilvægt að taka góðan tíma í að
velja hlutina áður en þeir eru keyptir og þar
með skoða vöruúrvalið vel hverju sinni.“
Bylgja skoðar mikið Pinterest og In-
stagram þegar hún leitar að innblæstri og
segist jafnframt auðveldlega geta gleymt sér
við það tímunum saman. „Einnig finnst mér
gaman að skoða blöð sem snúa að heimilinu
og hönnun, til að mynda er ég áskrifandi að
Húsum og híbýlum og er alltaf jafn spennt
þegar blaðið dettur inn um lúguna.“
Aðspurð hver sé griðastaður pasins á heim-
ilinu segir Bylgja það vera betri stofuna, eins
og þau kalla hana, þar sem tveimur fallegum
stólum hefur verið komið fyrir við gluggann.
„Okkur finnst ótrúlega þægilegt að setjast
hér niður og slappa af eða ræða heimsmálin
yfir einum kaffibolla. Við notum þessa stóla
miklu meira en við áttum von á í fyrstu,“ út-
skýrir hún. Aðspurð að lokum hvort eitthvað
sé á óskalistanum inn á heimilið nefnir Bylgja
svarta gólflampann eftir Arne Jakobsen.
„Lampinn er alltaf mjög ofarlega á óskalist-
anum. Hann yrði fullkominn við hliðina á
svarta leðursófanum. Einnig er ég með augun
opin fyrir nýjum borðstofustólum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlýlegt heimili í Vesturbænum
Bylgja Dögg Sigmarsdóttir og Hörður Karlsson hafa komið sér vel fyrir á björtu og hlýlegu
heimili með skandinavísku yfirbragði á Seilugranda.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Kartell-lampinn á sinn stað í smekklega innrétt-
uðu vinnuherberginu.
Bylgja Dögg Sigmarsdóttir, heldur mikið upp á
danska hönnun.
Borðstofan er sérstaklega
falleg. Málverkið er eftir afa
Bylgju, Garðar Björgvinsson.
Skenkinn smíðaði faðir hennir,
Sigmar Garðarsson, en ljósið
er frá Vita úr Casa.