Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Blaðsíða 30
HEILSA Fólk sem vinnur einhæfa kyrrsetuvinnu svo sem við tölvu ætti að standa upp á að minnstakosti á 30-45 mínútna fresti, ganga um og teygja úr sér. Þannig er hægt að losa um and- lega spennu, skerpa einbeitinguna og minnka líkur á vöðva- og liðverkjum. Muna að standa upp og teygja 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.4. 2017  Mikilvægt er að vera hvorki of saddur né of svangur fyrir æfingu og að drekka vel. Fyrir æfingu er gott að borða frekar kolvetnaríkan mat en tak- marka neyslu á fitu- og próteinríkum matvælum.  Til að bæta orkutap og stuðla að uppbyggingu eftir æfingu er æskilegt að borða vel samsetta máltíð sem inniheldur bæði prótein og kolvetni ásamt hæfilegu magni af fitu.  Mikilvægt er að drekka vel meðan á æfingu stendur og er vatn besti svaladrykkurinn.  Ef stundaðar eru erf- iðar æfingar samfellt í langan tíma, t.d. lang- hlaup, getur verið æski- legt að velja drykki sem innihalda hæfilegt magn kolvetna (minna en 8 g/100 ml) og málmsölt til að viðhalda vökvajafnvægi og draga úr þreytuein- kennum.  Eftir æfingu er einnig mjög mikilvægt að drekka vel til að bæta sér upp vatnstap. Úr bæklingnum Ráðlegg- ingar um hreyfingu sem er að finna á landlaeknir.is. Að stunda hæfilega erfiðar æfingarnokkrum sinnum í viku er besta leið-in til að halda huganum skörpum ef viðkomandi er kominn yfir fimmtugt. Minnið og skýr hugsun eflist mest þegar hjartað og vöðvarnir eru æfðir reglulega, að því er sam- antekt á 39 rannsóknum leiðir í ljós. Þetta á einnig við um þá sem eru með einkenni and- legrar hrörnunar. Það skiptir máli á öllum aldri að byrja að æfa fyrir heilsu sálar og líkama. Mælt með tai chi Mælt er með æfingum á borð við tai chi fyrir fólk komið yfir fimmtugt sem ræður ekki við erfiðari æfingar, að því er fram kemur í nið- urstöðum samantektarinnar sem birtar voru í British Journal of Sports Medicine. Það hefur lengi verið vitað að líkamsrækt getur dregið úr áhættunni á því að fá ýmsa sjúkdóma, þar á meðal sykursýki 2 og sum krabbamein. Talið hefur verið að líkamsrækt hjálpi til við að hægja á náttúrulegri hrörn- un heilans þegar fólk er komið á miðjan ald- ur. Kenningin er sú að í gegnum líkamsrækt fái heilinn meira blóðflæði í gegnum sig og þar með súrefni og næringarefni sem efla heilsu heilans auk vaxtarhormóns sem hjálp- ar til við að mynda nýjar taugafrumur og tengingar. Vísindamenn frá Háskólanum í Canberra í Ástralíu litu á áhrifin af að minnsta kosti fjögurra vikna skipulagðri líkamsrækt á heilastarfsemi í fullorðnum. Styrktarþjálfun hefur áhrif á minnið Mörg mismunandi próf voru gerð en það kom í ljós að þolþjálfun bætti hugsun, lestr- arhæfileika og hæfileikann til að rökræða á meðan styrktarþjálfun hafði töluverð áhrif á minnið og hæfileika heilans til skipulagn- ingar. Joe Northey, höfundur rannsóknarinnar sagði að niðurstöðurnar væru nógu sannfær- andi til þess að það ætti að ávísa bæði þol- og styrktarþjálfun til þess að bæta heilsu heilans í fólki yfir fimmtugu. „Jafnvel þó að þú gerir hæfilega erfðar æfingar aðeins einu sinni eða tvisvar sinnum í viku hefur það góð áhrif á heilann en áhrif- in voru meiri eftir því sem meiri æfingar voru stundaðar,“ sagði hann í samtali við BBC. Hann segir að viðmiðið hvað varðar hæfi- lega erfiða æfingu sé að fólk geti talað sam- an á meðan. Í ráðleggingum sem birtar eru á vef Emb- ættis landlæknis á landlaeknir.is segir að fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega. Heildartímanum má skipta í nokkur styttri tímabil yfir daginn, t.d. 10-15 mínútur í senn. Með því að hreyfa sig lengur eða með meiri ákefð er mögulegt að bæta heilsuna enn frekar. Til viðbótar er því æskilegt að full- orðnir stundi erfiða hreyfingu að minnsta kosti tvisvar í viku í 20-30 mínútur í senn því það viðheldur og bætir þol, vöðvastyrk, lið- leika, jafnvægi og beinheilsu. Þjálfun í að bera þunga innkaupapoka Liður í því að auka hreyfingu er að tak- marka kyrrsetu sem getur verið erfitt fyrir skrifstofufólk. Fyrir útivinnandi fullorðna mælir Embætti landlæknis með því að ganga eða hjóla sem oftast í og úr vinnu. Standa reglulega upp, teygja úr sér og ganga um, taka stiga í stað lyftu og stunda 2-3 skipu- lagðar æfingar í viku. Um helgar er líka kjörið að hreyfa sig með fjölskyldu og vin- um, fara í göngutúr, hjólreiðatúr eða í sund. Dr. Justin Varney, sem vinnur í lýðheilsu- málum í Bretlandi, mælir einnig með því að ganga eða hjóla til vinnu og segir að það að bera þunga innkaupapoka sé gott dæmi um styrktarþjálfun. Dr. David Reynolds, frá Alzheimer’s Rese- arch UK, tók undir þetta en segir að það sé jafn mikilvægt fyrir heilaheilsu að vera and- lega virkur, borða góða fæðu, drekka í hófi og reykja ekki. Hreyfing fyrir heilann Fullorðnir ættu að stunda erfiða hreyfingu að minnsta kosti tvisvar í viku í 20- 30 mínútur í senn. ’Kenningin er sú að ígegnum líkamrækt fáiheilinn meira blóðflæði ígegnum sig og þar með súr- efni og næringarefni sem efla heilsu heilans auk vaxt- arhormóns sem hjálpar til við að mynda nýjar tauga- frumur og tengingar. Fyrir fólk sem komið er yfir fimmtugt er besta leiðin til að halda huganum skörpum að stunda líkamsrækt nokkrum sinnum í viku. Þolþjálfun hefur önnur áhrif en styrktarþjálfun. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Næring og þjálfun Mynd/Thinkstock-Getty Images

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.