Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 35
30.4. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Þetta er 12.000 manna bær og hægt
er að ganga á þessum borgarmúr í
kringum allan gamla miðbæinn,
skoða miðaldahús og ímynda sér að
maður sé uppi fyrir mörg hundruð
árum.
Ganga má á borgarmúrunum í
kringum gamla miðbæinn. Þá eru
mörg skemmtileg söfn í Rothenburg
en eitt sem rímar fullkomlega við
tímaferðalag er Mittelälterliches
Kriminalmuseum þar sem má kynna
sér allt um miðaldaglæpi, réttarfar
og þær grimmilegu refsingar sem
tíðkuðust á þeim tíma. Í bænum eru
líka ótrúlega fallegar jólabúðir og
hægt að kaupa gamaldags jólaskraut
eins og Evrópa hefur skreytt með í
aldaraðir.
Hið draumkennda hvíta spænska
þorp Canillas de Aceituno í Anda-
lúsíu á Spáni er að finna í Sierra Ne-
vada-fjalllendinu. Fyrir 3.000 árum
settust Fönikíumenn að í þorpinu og
fluttu með sér sínar aðferðir við
ræktun ólífutrjáa og vínberjaakra.
Enn í dag, árið 2017, lifir meirihluti
íbúa á þeirri ræktun og það er sann-
arlega ferð aftur í tímann að fylgjast
með þeim að störfum. Störf sín við
akuryrkjuna vinna þeir með alda-
gömlum aðferðum og allt umhverfið
minnir á eldri tíma þar sem geitur
ganga frjálslega um göturnar. Þá er
mállýska íbúanna þannig að jafnvel
aðrir Spánverjar skilja spænskuna
þeirra ekki. Margir af eldri íbúunum
hafa aldrei séð sjóinn þrátt fyrir að
aðeins sé um 30 mínútna akstur að
ströndinni.
Aran-eyjarnar írsku eru rétt fyrir
utan vesturströnd Írlands og þykja
vera einn síðasti griðastaður þeirra
sem vilja kynnast írsku samfélagi
eins og það var. Frá Rossaveel, sem
er rétt fyrir utan Galway, er hægt að
komast til eyjanna með ferju.
Víðáttumikil beitilönd teygja þar úr
sér og fornir 3.000 ára gamlir stein-
veggir og rústir frá bronsöld eru víða
og minna á sögu eyjanna. Gelíska er
enn töluð á eyjunum en íbúarnir eru
veiðimenn sem í lok hvers dags koma
heim með feng sinn og hittast á barn-
um eftir veiði dagsins. Þar er ekta
írsk stemning fram eftir kvöldi, dans-
að og gelískir Sean-nós-söngvar
sungnir.
Þessir grjóthlöðnu
veggir eru meðal minja
frá bronsöld á
Aran-eyjunum írsku.
Í þessu fallega þorpi í
Andalúsíu stendur tíminn
í stað þar sem akuryrkja
Fönikíumanna lifir enn.
’Umhverfið minnir áeldri tíma þar semgeitur ganga frjálslegaum göturnar. Þá er mál-
lýska íbúanna þannig að
jafnvel aðrir Spánverjar
skilja þá ekki.
GRUNNUR AÐ GÓÐU LÍFI
Erum með í einkaleigumeðferð tvö góð rými
á götuhæð í þessu nýlega og glæsilega
atvinnuhúsnæði. Um er að ræða stærstan hluta af
götuhæð hússins. Húsið stendur á áberandi stað
á horni við Víkurhvarf og er mikil umferð framhjá
eigninni. Auglýsingargildi eignarinnar er mjög
mikið. Stutt í alla aðra þjónustu og stofnbrautir.
Greið aðkoma og fjöldi bílastæða. A.T.H. EKKI VSK
HÚS.
1. Óvenjulega stór verslunar- og þjónustusalur með mikilli
lofthæð, frontum og vörudyrum. Útleigustærð þessa rýmis er
um 4100 fm. Miklir möguleikar fyrir stór og öflug fyrirtæki að
starfrækja höfuðstöðvar, verslun, lager, iðnað, verkstæði og fl.
Afmörkuð eru um 60 sér bílastæði fyrir framan plássið.
2. Flott verslunar og skrifstofupláss á götuhæð á horni hússins
sem gæti hentað undir verslun, skrifstofur, veitingahúss og fl.
Góð aðkoma og mikill sýnileiki. Útleigustærð er um 400 fm.
VÍKURHVARF 1 KÓPAVOGI
ATVINNUHÚSNÆÐI
FJÖLNOTAHÚS TIL LEIGU 4500 M2
STEFÁN HRAFN STEFÁNSSON
Sölustjóri, Hdl. löggiltur fasteignasali
og Löggiltur leigumiðlari
Sími: 895-2049 eða
á stefan@stakfell.is
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR: