Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 37
samfellt. Og þetta virðist ætla að gerast þótt útganga Breta úr Evrópusambandinu hafi verið samþykkt með naumum meirihluta fyrir tæpu ári. Nýjustu kannanir sýna, að tveimur af hverjum þremur bresk- um kjósendum þykir miklu skipta að ákvörðun um út- göngu verði fylgt eftir af einurð og festu. Þá er það Frakkland Eftir viku fer fram síðari umferð frönsku forsetakosn- inganna. Þar sýnast menn einnig í vandræðum með að ákveða hverjir séu til hægri og hverjir til vinstri. Sem er sérlega önugt í Frakklandi þar sem skilgreiningin á sitt hreiður. Niðurstaða fyrri umferðar forsetakosninganna var sú að af ellefu frambjóðendum var mjótt á munum á milli fjögurra efstu. Francois Fillon, fulltrúi hins hefð- bundna hægri flokks, og vinstri-sósíalistinn Jean-Luc Mélenchon voru með tæp 20%, en þau Marine Le Pen og Emanuel Macron með rúm 20% og um 2% voru á milli þeirra tveggja sem bítast til úrslita. Sá litli mun- ur segir þó litla sögu. Forystumenn hefðbundnu flokkanna skora á sína stuðningsmenn að kjósa hinn nýskapaða miðjumann Macron og gulltryggja kjör hans. Í þessum áskorunum er beinlínis sagt að nauð- synlegt sé að kjósa með neikvæðum formerkjum vegna ríkulegra þjóðarhagsmuna. Árið 2002 munaði aðeins rúmum 2 prósentustigum á Jean Marie Le Pen, föður Marine, og á Jacques Chirac í fyrri umferð kosninganna. Í hinni síðari bætti Chirac heldur betur við sig. Fór úr tæplega 20% í 82% en Le Pen hækkaði aðeins um 1 prósentustig. Þetta var gert því gamli Le Pen var „hægri öfgamaður“. Og nú skal leika sama leikinn af því að Marine Le Pen er líka hægri öfga- maður. Jean-Luc Mélenchon, frambjóðandi vinstri sósíal- ista, lofaði að setja 100% skatta á laun sem voru hærri en 800 þúsund á mánuði. Hann er ákafur gagnrýnandi Evrópusambandsins og segir það gjörspillt spilling- arbæli. Hann vill leggja af Nató. Þetta dugar þó ekki til að hann fái stimpilinn öfgamaður hjá neinum „hlut- lausum“ miðli sem beita stimplinum ótt og títt á Mar- ine Le Pen. Einstaka fréttaskýrandi gengur þó svo langt að kalla Mélenchon „herskáan vinstrimann.“ Áfram er langt í öfgastimpilinn. En hvenær verða menn hægri öfgamenn? Stundum virðast efasemdir um ESB nægja. En ekki sé efa- semdarmaðurinn vinstra megin á skalanum. Frétta- skýrendur sjá ekkert öfgakennt við það, að vilja gera hærri millilaun fólks hreinlega upptæk. Gamli Le Pen talaði með óviðeigandi hætti til gyðinga. Dóttirin vék föðurnum samstundis úr flokknum. Marine Le Pen er um margt með mörg hefðbundin sjónarmið vinstri flokka áberandi á sinni stefnuskrá. Hún er mun betur stemmd gagnvart ríkisútgjöldum og sköttum en „harðir hægriflokkar“ eru að jafnaði. Hún vill vissu- lega þjóðaratkvæði um evruna. Og hún telur ekki úti- lokað að Frakkar eigi að hugleiða úrsögn úr ESB. Hvaða skoðun sem menn hafa á þessum sjónarmiðum eru þau ekki merki um hægri sinnuð sjónarmið. Hægriflokkurinn í Danmörku, Noregi og Mod- eraterna í Svíþjóð hafa lengst af verið áköfustu áhangendur ESB. Marine Le Pen vill á hinn bóginn að Frakkland fari úr Schengen-samkomulaginu sem fyrst og hún telur að bregðast þurfi harðar við síaukn- um straumi flóttamanna til Frakklands ef ekki eigi að fara enn verr en þegar er orðið. Hverjir voru kjósendur Marine Le Pen og Macron? Þegar franskir fjölmiðlar og blaðið Financial Times greindu sundur hvernig einstakir hópar kjósenda kusu í fyrri umferðinni kom margt athyglisvert í ljós. Le Pen hafði yfirburði hjá kjósendum á aldrinum 18- 49 ára. Aðeins í hópi 65 ára og eldri var Macron með verulega yfirburði. „Vinnandi fólk,“ sem áður var kall- að verkalýður, og launalægra fólkið allt upp í hækk- andi millilaun studdi Marine Le Pen upp til hópa en ekki Macron. En þegar komið var upp í fólk með hálfa milljón eða meira á mánuði átti Macron betri hljóm- grunn. Millistjórnendur fyrirtækja og forstjórar studdu Macron og efstu lög fjármálageirans var þétt- asta klappliðið. Þrátt fyrir þetta er spurt víða: Tekst Macron að sigra hægrið? Hægrið? Hann er hægrið. Le Pen er að fá fylgi sem gamla Alþýðubandalagið hefði talið sig sjálfsagðan áskrifanda að! Hver er maðurinn? Og hver er hann, „miðjumaðurinn“ Macron? Eins og allir aðrir metnaðarfullir valdaguttar í Frakklandi gekk hann í l’ENA (l’Ecole nationale d’ad- ministration). Áður en Hollande gerði hann að efna- hagsráðunaut sínum og síðar efnahagsmálaráðherra var hann fjárfestingarreddari hjá Rothschildbank- anum. Þar sá hann um samruna og yfirtökur fyrir rík- ustu kúnnana og varð stórauðugur sjálfur, aðeins rúmlega þrítugur. Hann græddi bókstaflega á tá og fingri. Macron fékk þannig 2,9 milljónir evra (340 milljónir) fyrir aðkomu sína að „einum díl“. Í bankaheiminum var hann kallaður Mozart fjár- málabrasksins. Macron náði þó ekki að fá ófalskan hljóm út úr sinni Töfraflautu sem efnahagsráðunautur og síðan efna- hagsráðherra Hollande forseta. Á síðasta ári hvarf hann því úr ríkisstjórn til þess að geta skipt um áferð og orðið forsetaefni. Og þar sem samfylking Hollande var komin ofan í 6% eins og íslenska Samfylkingin tók Macron besta-flokks og björtu-framtíðar afbrigðið á þetta. Hann bjó til nýjan flokk, klæðskerasaumaðan utan um hann sjálfan, hinn nýfædda miðjumann, sem kannaðist lítt við gömlu samfylkingarbögglana. Macron fullyrðir að hinn nýstofnaði flokkur muni bjóða fram til þings í öllum kjördæmum í júní. Ekki er víst að flokkurinn hafi mikið upp úr krafsinu þá. Hinn (væntanlega) nýi forseti gæti því átt fáa beina stuðn- ingsmenn í þinginu. Flokkur Marine Le Pen, sem ver- ið hefur stærsti flokkur Frakklands þegar hlutfalls- legt fylgi er mælt, á þó aðeins 2 þingmenn í franska þinginu af 577! Ekki er talið útilokað að flokkur Fillon verði með flesta þingmenn eftir næstu kosningar og hann skipi því forsætisráðherrann en ekki Macron. Kosið er í tveimur umferðum til þings og þeir Heródes og Pílat- us franskra stjórnmála verða vinir eftir fyrri umferð- ina og sjá um þetta sín á milli eins og vant er. Fyllist mælirinn af öllu þessu rauðvíni? En er hugsanlegt að einn góðan veðurdag þyki frönskum kjósendum of langt gengið í þessari heim- ilislegu meðferð elítunnar á lýðræðinu, þegar það er haft að háði og spotti yfir rándýru rauðvíninu? Á Íslandi er kvartað hástöfum undan 5% þröskuld- inum ógurlega og fullyrt að þar sé herfileg afbökun á lýðræðinu. Af hverju tjá þessir kappar sig ekki um stjórnmálalegu notalegheitin í Frakklandi? Eða er mismunun í lagi af því að vinstrisinnaður „hægri öfgaflokkur“ verður fyrir barðinu á því sem gerist á hinum raunverulegu kjörstöðum: Reykfyllt- um bakherbergjum? Eru þessar vafasömu leikfléttur lýðræðisins rétt- lættar með því á hverjum þær bitna? Aðeins einu sinni notuðu óprúttnir stjórnmálamenn á Íslandi sér göt í kosningakerfinu með slíkum hætti. Það faðmlag ólíkra flokka var kallað hræðslubandalagið og var illa þokkað. Er franska hræðslubandalagið nokkuð skárra? Er það? Morgunblaðið/RAX 30.4. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.