Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Síða 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Síða 45
Brian Williams er faðir Alison Williams sem leikur Marnie Michaels í Girls. Hann er þekktur fréttamaður en dóttirin hefur ennfremur farið með titilhlutverkið í Pétri Pan, sást síðast í smellinum Get Out. AFP Óskarsverðlaunaleikstjórinn Ron Howard (A Beautiful Mind, Apollo 13) er faðir Bryce Dallas Howard sem vakti mikla athygli fyrir The Help og Jurassic World. Clint Eastwood er þekktur bæði sem leikari og leikstjóri en hér má sjá hann í myndinni Rawhide frá 1959. Francesca Eastwood lék ung að árum í myndinni True Crime eftir föður sinn en er á þessari mynd í vestranum Outlaws and Angels. 30.4. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 TÓNLIST Sveitatónlistarmaðurinn Billy Ray Cyrus upplýsti í viðtali við Rolling Stone að hann ætlaði fram- vegis að sleppa nafninu Billy Ray og gefa aðeins út tón- list undir eftirnafni sínu. „Eftir 25. ágúst verð ég tónlist- armaðurinn áður þekktur sem Billy Ray. Ég ætla bara að notast við eftirnafnið Cyrus. Ég notaði alltaf Cyrus og grátbað Mercury Records að leyfa mér að kalla mig Cyrus í upphafi því það væri nafnið sem mér liði vel með. Ég ætla að fara á sjúkrahúsið þar sem ég fæddist í Bellefonte, Kentucky, og breyta nafninu mínu löglega,“ sagði hann. Aldarfjórðungur er liðinn frá því að Cyrus gaf út sinn mesta smell, „Achy Breaky Heart“ og heldur hann upp á afmælið með því að senda frá sér nýja útgáfu af laginu. Billy Ray verður Cyrus Billy Ray Cyrus. AFP TÓNLIST Harry Styles, sem áður var í One Direc- tion, hefur tilkynnt að hann ætli að halda í tón- leikaferðalag um heiminn í haust. Ferðalagið byrj- ar með 13 tónleikum í Norður-Ameríku, sem hefst 19. september í San Francisco og lýkur 14. október í Phoenix, Arizona. Evrópuhluti ferðalagsins hefst 25. október í París og hann mun sem dæmi halda tvenna tónleika í London 29. og 30. október og einnig spila í Stokkhólmi 5. nóvember. Herlegheit- unum lýkur síðan með tvennum tónleikum í Tókýó í Japan eftir viðkomu í Ástralíu. Miðasala (fyrir utan á tónleikana í Japan) hefst 5. maí. Frumraun hans sem sólólistamanns kemur út 12. maí. Heimsreisa Harry Styles Harry Styles fer í tónleika- ferðalag um heiminn í haust. Jodie Foster og Sir Anthony Hopkins eru á meðal þeirra sem hafa minnst leikstjórans Jonathan Demme, sem lést á miðvikudaginn, 73 ára gamall. Hann var með krabbamein. Demme leikstýrði þeim báðum í Óskarsverðlaunamyndinni Lömbin þagna. Foster sagðist vera miður sín og Sir Anthony sagði að hann hefði verið einn af þeim allra bestu. Meryl Streep sagði lát hans vera mikinn missi fyrir heiminn og David Byrne sagði hann hafa veitt sér mikinn inn- blástur. Byrne og Demme unnu oft saman, m.a. í Talk- ing Heads-tónleikamyndinni Stop Making Sense frá 1984. Byrne gerði líka tónlistina við grínmyndina Married to the Mob (1988) með Michelle Pfeiffer. Demme var verðlaunaður sem besti leikstjórinnn fyrir Lömbin þagna (1991), sem fékk líka Óskar sem besta myndin, fyrir besta hand- ritið auk þess sem Foster og Hopk- ins voru verðlaunuð fyrir bestan leik. „Jonathan var eins fyndinn og grínmyndir hans og eins djúpur og dramamyndirnar. Það var svo mikil orka í honum og hann hvatti skap- andi fólk áfram,“ sagði Foster og bætti við að hann hefði haft jafn mikla ástríðu fyrir tónlist og kvikmyndum. Rokktónlist og tónlist almennt leikur stórt hlutverk í mörgum myndum Demme. Á meðal þeirra er ein af síðustu myndunum sem hann gerði, Ricki and the Flash frá 2015. Þar leikur Meryl Streep söng- konu í barhljómsveit. Í fyrra kom jafnframt út heimild- armynd um Justin Timberlake, sem hlaut lofsamlega dóma, og minntist söngvarinn Demme með fögrum orðum og segir hann hafa gert sig að betri listamanni. Aðrar myndir sem Demme er þekktur fyrir eru m.a. Philadelphia, The Manchurian Candidate og Rachel Getting Married. Hér er Demme að kynna Rachel Getting Married á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum árið 2008. AFP LEIKSTJÓRINN JONATHAN DEMME LÁTINN Minnast Demme Foster og Demme á 25 ára afmæli myndarinnar Lömbin þagna í fyrra. AFP BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 TIMEOUT Stóll + skemill kr. 357.600 VORTILBOÐ STÓLL + SKEMILL kr. 279.900

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.