Fréttablaðið - 05.12.2017, Qupperneq 6
Ferðalög Par getur sparað sér meira
en 200 þúsund krónur ef það velur að
ferðast sjálft til Moskvu á leik Íslands
og Argentínu á HM í knattspyrnu
næsta sumar, frekar en að kaupa
pakkaferð með íslenskri fararstjórn.
Þetta leiðir athugun Fréttablaðsins í
ljós.
Framkvæmdastjóri KSÍ segir að
svo gæti farið að aðeins um 3.200
miðar verði eyrnamerktir íslenskum
stuðningsmönnum á leiki Íslands.
Ekki sé víst að allir fái miða. Það kann
því að vera óvarlegt að bóka ferð án
þess að hafa tryggt sér miða áður.
Ísland mætir Argentínu í fyrsta
leik á HM í Rússlandi næsta sumar.
Leikurinn fer fram laugardaginn 16.
júní. Beint flug með WOW air til og
frá Moskvu og gisting í tvær nætur
á fjögurra stjörnu hóteli kostar tvo
einstaklinga um 170 þúsund krónur,
samkvæmt athugun Fréttablaðsins.
Í þessu felst að ferðalangarnir gista
saman í herbergi og hafa heimild
til að taka með sér eina stóra tösku í
flugið, auk handfarangurs.
B e i n t f l u g
með WOW air,
frá Keflavík til
Moskvu í Rúss-
landi og til
baka kostar
61.978 krónur,
þegar þetta er
skrifað, eða um
120 þúsund fyrir
tvo. Flogið út að
morgni föstu-
dags og heim
a ð m o r g n i
s u n n u d a g s .
Taska kostar
8.433 krónur
og gerum við í
þessu dæmi ráð
fyrir að par deili
einni stórri tösku.
Fjögurra stjörnu
hótel í Moskvu eru
mörg uppseld helg-
ina sem leikur Íslands og Argentínu
fer fram. Mikið framboð er af þriggja
stjörnu hótelum sem mörg fá ágætis
einkunn notenda á bókunarvefjum.
Blaðamaður gat, að morgni mánu-
dags, bókað herbergi á fjögurra
stjörnu hóteli, SunFlower Park, fyrir
tvo aðfaranætur laugardagsins 16.
júní og sunnudagsins 17. júní fyrir
samtals 347 dollara. Það gerði hann
á bókunarsíðunni hotels.com. Upp-
hæðin samsvarar 35.800 krónum.
Samanlagt kostar flug og hótel fyrir
tvo því 168 þúsund krónur.
Þær ferðir sem Icelandair hefur
selt, þar sem gist er jafn margar
nætur, kosta 195 þúsund krónur
á mann, ef gist er í tvíbýli, eða 390
þúsund krónur fyrir tvo. Innifalið í
slíkri ferð eru þó að auki ferðir til og
frá flugvelli í Moskvu og íslensk farar-
stjórn.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, segir að íslenskir stuðn-
ingsmenn fái 8% miða sem fara í
almenna sölu. Völlurinn í Moskvu
rúmar 45.360 áhorfendur.
Klara segir að ef 40 þúsund miðar
fari í almenna sölu fái íslenskir stuðn-
ingsmenn aðeins 3.200 miða. Það er
innan við þriðjungur af áhorfenda-
fjölda á Laugardalsvelli. Hún bendir
þó á að einhverjir Íslendingar gætu
þegar hafa keypt miða í almennri
sölu á vef FIFA, þar sem miðasalan
fer eingöngu fram. Þá gætu einhverjir
fengið miða á síðari stigum miða-
sölunnar.
„Við erum sammála um að þetta
eru fáir miðar,“ segir Klara við Frétta-
blaðið. „En ég ætla að vera bjartsýn á
að langflestir sem fari út finni miða á
einn eða annan hátt.“
Í þessu samhengi má benda á
að KSÍ er á meðal nokkurra knatt-
spyrnusambanda sem þrýst hafa á
FIFA um að fá fleiri miða fyrir sína
stuðningsmenn. Hún bendir á að
UEFA hafi orðið við slíkri beiðni frá
KSÍ og fleirum þegar Evrópumótið
fór fram fram í Frakklandi.
Klara hefur ferðast nokkrum sinn-
um á vegum sambandsins til Rúss-
lands. Hún segist hafa verið í „vernd-
uðu umhverfi“ í þeim heimsóknum
en að hún hafi ekkert séð sem gefi
fólki ástæðu til að vera hræddari til
við að ferðast til Rússlands en ann-
arra Evrópulanda. Rússum sé auk
þess mikið í mun að sýna sínar bestu
hliðar á meðan á mótinu stendur.
Klara segir borgina hreinni en
Reykjavík en að sagan drjúpi
af hverju strái. „Ég myndi
senda fjölskylduna mína
í skipulagða pakkaferð
en þeir sem eru vanir að
ferðast ættu ekki að lenda
í neinum vandræðum.“
baldurg@frettabladid.is
Helmingi ódýrara að
bóka sjálfur ferð á HM
Aðeins um 3.200 miðar gætu verið eyrnamerktir Íslendingum á hvern leik í
Rússlandi. Athugun Fréttablaðsins sýnir að tveggja nátta ferð til Moskvu fyrir
tvo, sem þú bókar sjálfur, kostar heldur minna en pakkaferð fyrir einn.
En ég ætla að vera
bjartsýn á að
langflestir sem fari út finni
miða á einn eða annan hátt.
Klara Bjartmarz,
framkvæmda-
stjóri KSÍ
BÍLALAND BÝÐUR NOKKRA BÍLA Á EINSTÖKUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL Á FRÁBÆRU VERÐI!
Á VÖLDUM BÍLUM
RENAULT Talisman 1,6D
Nýsk. 12/2016, ekinn 12 þ.km.
dísil, sjálfskiptur, 6 gírar.
Verð áður: 4.490.000
TILBOÐ 3.890 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
BMW X1 XDrive18d
Nýsk. 04/2017, ekinn 28 þ.km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 4.990.000
TILBOÐ 4.690 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
Range Rover Evoque HSE Dynamic
Nýsk. 02/2016, ekinn 11 þ.km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð 8.990.000
TILBOÐ 7.990 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
NISSAN X-Trail Acenta Plus 4wd
Nýsk. 05/2017, ekinn 29 þ.km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 4.990.000
TILBOÐ 4.590 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
RENAULT Kadjar Zen 4wd
Nýsk. 05/2017, ekinn 28 þ.km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður: 3.950.000
TILBOÐ 3.590 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
SUBARU Levorg Premium Eyesight
Nýsk. 01/2017, ekinn 8 þ.km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð 4.390.000
TILBOÐ 3.790 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
Rnr. 370660
Rnr. 192509
Rnr. 144386
Rnr. 144610
Rnr. 144544
Rnr. 153094
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
5
4
0
5
B
íl
a
la
n
d
T
il
b
o
ð
2
x
3
8
5
d
e
s
Leikvangurinn í Moskvu þar sem Íslendingar mæta Messi og félögum á HM 16. júní á næsta ári. NordicpHotos/AFp
5 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I ð J U d a g U r6 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
7
-0
7
4
C
1
E
6
7
-0
6
1
0
1
E
6
7
-0
4
D
4
1
E
6
7
-0
3
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K