Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Sundhöll Reykjavíkur var opnuð á ný um helgina eftir gagngerar endurbætur.
Stærsta breytingin er sú að búið er
að taka í notkun 25 metra útisund-
laug með fjórum brautum og bæta
við stórum, heitum nuddpotti og
flottri vaðlaug fyrir börn. Stóri
potturinn er undir suðurhlið, þar
sem sólar nýtur yfir daginn og
útisvæðið er allt skipulagt þannig
að byggingar og veggir myndi sem
mest skjól,“ segir Steinþór Einars-
son, skrifstofustjóri rekstrar og
þjónustu Íþrótta- og tómstunda-
sviðs Reykjavíkur.
Stórbætt aðstaða
Búið er að stórbæta alla aðstöðu
fyrir sundgesti og segir Steinþór
hana til mikillar fyrirmyndar.
„Það sem skiptir mestu máli er að
það er búið færa alla aðstöðu til
nútímalegra horfs. Nýr kvenna-
klefi er á neðri hæð nýbyggingar,
stiginn niður í hann er breiður og
það er búið að koma fyrir lyftu svo
allt aðgengi er orðið miklu betra
en áður. Aðstaða fyrir fatlaða er
eins og best verður á kosið, búið
er að sérbúa klefa og aðgengið er
verður vart betra,“ segir Steinþór
og nefnir að á útisvæðinu séu nú
flottir útiklefar fyrir þá sem kjósa
slíka aðstöðu.
Eimbað og kaldur pottur
„Svo er búið að bæta við stóru og
flottu eimbaði á útisvæðinu og
innan skamms bætist við þurrgufa
á efri hæð við gömlu pottana. Við
hliðina á eimbaðinu er nýr kaldur
pottur sem er steyptur frá grunni
og að mínu mati einn flottasti kaldi
pottur landsins,“ segir Steinþór.
Um helgina var formleg opnun
á nýju útilauginni og komu margir
fastagestir Sundhallarinnar að
skoða herlegheitin og segir Stein-
þór samdóma álit allra að laugin
sé sérlega vel heppnuð. „Það hefur
líka tekist einstaklega vel að tengja
nýja mannvirkið við það gamla.
Mig langar líka sérstaklega að
nefna að gjörbylting er á afgreiðsl-
unni og allri aðstöðu þar og hægt
að setjast niður, njóta veitinga og
horfa út á laugarsvæðið.“
Lengri opnunartími
Sundhöll Reykjavíkur er opin frá
kl. 6.30-22 á virkum dögum og frá
kl. 8.00-22 um helgar. „Fólk getur
komið í sund áður en það fer til
vinnu eða í skólann og svo er hægt
að vera í sundi langt fram eftir
kvöldi. Þetta er sami opnunartími og
í Laugardalslauginni,“ segir Steinþór.
Sundhöll Reykjavíkur við Bar-
ónsstíg er ein af þekktari bygging-
um landsins og um leið sú bygging
sem margir telja eina þá bestu frá
hendi Guðjóns Samúelssonar, arki-
tekts og þáverandi húsameistara
ríkisins. Sundhöll Reykjavíkur var
vígð 23. mars 1937 og á því 80 ára
afmæli um þessar mundir.
„Lögð var áhersla á að form og
fyrirkomulag viðbyggingarinnar
tæki mið af þessu þannig að aðal-
byggingin nyti sín sem best um leið
og til yrði samstæð heild. Laugar-
gólf nýs útisvæðis er hæð neðar en
aðkoma frá Barónsstíg, með þessu
móti er suðurhlið aðalbyggingar að
mestu óbreytt og verður vel sýnileg
frá götunni vegna þess hve lang-
hliðar nýbyggingar eru gagnsæjar.
Léttleiki var í fyrirrúmi við mótun
viðbyggingar og hæð og hlutföll,
bæði flata og glugga, laga sig að
eldri lágbyggingu,“ segir Steinþór.
Umhverfisvottuð byggingarefni
voru notuð eftir föngum, inn-
lend þar sem því var við komið,
og þess gætt að viðhaldsþörf
yrði í lágmarki. Byggingin verður
umhverfisvottuð af bresku rann-
sóknarstofnuninni í byggingariðn-
aði, BREEAM, og er fyrsta verkefni
Reykjavíkurborgar sem hlýtur þá
vottun, að sögn Steinþórs.
Hönnun og framkvæmdir
VA arkitektar ehf. eru aðalhönnuð-
ir hússins, verkfræðistofan Verkís
sá um alla verkfræðihönnun og um
lóðarhönnun sáu VA arkitektar
ehf. Aðalverktaki og stýriverktaki
var Ístak ehf.
Útisundlaugin er 25 m löng með fjórum brautum. Allt útisvæðið miðar að því
að hafa sem mest skjól fyrir veðri og vindum.
Framhald af forsíðu ➛
Lengi hefur verið beðið eftir útisundlaug við Sundhöll Reykjavíkur. MYNDIR/ANTON BRINK
Afgreiðslan hefur tekið gjörbreytingum. Á útisvæðinu eru tveir heitir pottar.
Góð aðstaða er í útiklefunum. Kvennaklefinn er rýmri og aðstaða betri.
Nú geta allir krakkar leikið sér í nýju vaðlauginni.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D E S E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
6
-F
D
6
C
1
E
6
6
-F
C
3
0
1
E
6
6
-F
A
F
4
1
E
6
6
-F
9
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K