Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 25
Skott Insignia er vel rúmt en það er stærra í sumum af samkeppnisbílum hans. Út er komin hjá Forlaginu bókin Auðnustjarnan eftir Örn Sigurðsson, en hann er höfundur bókanna Íslenska bílaöldin, Króm og hvítir hringir og Gullöld bílsins. Daimler-Benz er elsti og þekktasti bílaframleiðandi heims sem á heiðurinn af mörgum merkustu bílum sögunnar. Ein- kennismerkið, auðnustjörnuna, má sjá hvarvetna: á fjölskyldu- bílum, sportbílum, kappaksturs- bílum og atvinnubílum. Í Auðnu- stjörnunni er saga Mercedes-Benz rifjuð upp með yfir 400 myndum af glæsivögnum jafnt sem smá- bílum. Allir eiga það sameiginlegt að vera framleiddir af yfirburða kunnáttu og kostgæfni. Sérstakur kafli er helgaður langri og farsælli sögu Mercedes-Benz á Íslandi. Auðnustjarna er 160 bls. að lengd og ómissandi fyrir alla bílaáhuga- menn. Auðnustjarnan – Saga Mercedes-Benz í máli og myndum fjölskyldunni, þ.e. hinn nýja Arteon og Passat, en Insignia er á stærð við Arteon en samt á verði á við Passat. Þar kemur einmitt að því góða við Opel bíla, þar fæst mikið fyrir lágt verð. En þá kemur helst að þeirri spurningu hvort Opel skili viðlíka gæðum í sínum bílum og margir af samkeppnisbílunum. Gríðarstórt innanrými Hinn nýja Opel Insignia kalla þeir Opel menn Insignia Grand Sport. Víst er að hann ber ágætlega Grand- stimpilinn, bæði hvað varðar stærð og ágæta innréttingu, sem og ytra útlit. Hvað Sport-nafnið varðar hefur Insignia þó helst hlotið ámæli og einhverjir bent á að sumir sam- keppnisbíla hans bæru nafnið Sport með meiri glans. En aðeins að innanrýminu. Hrika- lega vel getur farið um fimm farþega í Insignia þar sem pláss fyrir þá alla er yfrið og fóta- og höfuðplássið aftur í er af sverustu gerð. Skott Insignia er vel rúmt en það finnst þó stærra í sumum af samkeppnisbíl- um hans. Framsætin eru frábær og þreyta engan í langkeyrslu og það sem enn betra er, bíllinn er hriklega hljóðlátur og vel einangraður. Hvað efnisval í innréttingunni varðar þá á hann enn ansi langt í þýsku lúxusbílasmiðina Benz, Audi og BMW, en samkeppnin er miklu fremur fólgin í áðurnefndum bílum og þar stendur hann mun nær. Víst er að hann fer létt með Ford Mondeo í þessum samanburði. Hvað staðalbúnað, aksturs- og öryggiskerfi og þægindabúnað varðar skorar Insignia hátt og Opel virðist hafa lagt mikið í bílinn, auk þess hann virðist einkar vel smíðaður. Sjö vélarkostir Vélarkostirnir í Insignia saman- standa af 1,5 lítra bensínvél í 140 og 165 hestafla útfærslu, sem og 2,0 lítra og 260 hestafla bensínvél. Fjórir dísilvélar eru í boði, 1,6 lítra vél í 110 og 136 lítra útfærslu og 2,0 lítra vél í 170 og 210 hestafla útfærslu. Það krefst þess að velja 260 hestafla dísilvélina svo Insignia breytist í nægilegt villidýr til að setja nafnið Sport í heiti bílsins, en það var ferlega gaman að aka þeirri útgáfu Insignia. Minni bensínvélarnar, sem og þær sem brenna dísilolíu duga bílnum fyrir þá sem gera einungis kröfu til þess að komast á milli staða a og b, en ekki mikið meir. Insignia er prýðilegur bíll í akstri og tekst ágætlega við að eyða ójöfnum í veginum. Hann á þó dálítinn spöl í marga af hans helst samkeppnisbíl- um er kemur að sportlegum akstri. Langflestum kaupendum Insignia mun líka við eiginleika bílsins í akstri, enda afar þægilegur bíll þar á ferð. Það er helst þegar kemur að því að finna þolmörk hans sem sumir af samkeppnisbílum hans slá hann út. Það skal þó fullyrt hér að Insignia hefur alltaf verið frábær kaup og verður það enn frekar nú þar sem Opel hefur lækkað verð hans á milli kynslóða. Margur sá sem hugsað hefur sér að kaupa jeppling af stærri gerðinni ættu að bera þá saman við þennan bíl og sjá hvað þeir fá raun- verulega fyrir peninginn. Kannski er það einungis veghæðin sem margir hafa oftast fátt við að gera. Bílar B í l a r ∙ F r É T T a B l a ð i ðA A A 7Þ r i ð J U D A G U r 5 . D e S e M B e r 2 0 1 7 0 5 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 6 -E 4 B C 1 E 6 6 -E 3 8 0 1 E 6 6 -E 2 4 4 1 E 6 6 -E 1 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.