Fréttablaðið - 05.12.2017, Side 48
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Skömmu fyrir nón síðast-liðinn laugardag er mér ekið, nýlentum hér á landi, í gegnum
Garðabæ á leið til föðurhúsa í
Kópavogi. Verður mér þá litið til
suðurs í hraunið þar sem nær allur
bílafloti landsmanna umkringir
Costco og síðan blasir við mér bíla-
lest mikil sem bíður þess að komast
fyrir í sömu mergðinni.
Mér varð hugsað til þorps
nokkurs á Spáni þar sem ég hélt
upplestur. Ekki leist mér á blikuna
þegar þangað kom því þorpið
virtist tómt. Það var ekki fyrr en
mig bar að kirkjunni að ég áttaði
mig á því hvar þorpsbúar voru. Nú
á laugardaginn fannst mér ég hafa
komið heim í miðri messu.
En annars er það aðdáunarvert
hvað kapítalistarnir hafa náð að
hagræða hér í landi og geta þannig
boðið þjóð vorri upp á enn meiri
einsleitni en kommúnistar höfðu
þorað að láta sig dreyma um. Ein
búð, örfáir sjávarútvegsrisar, örfá
bú, verið er að vinna að því að
koma öllum fyrir í einni borg, þar
sem örfáir eiga allan húsakost og
þannig má áfram telja. Nú þarf
hið opinbera bara að reka loka-
hnútinn á þetta. Það sjá það allir
hversu mikið vesen er að vinna
með mörgum flokkum. Reynslu-
laus flokkur gengur úr skaftinu að
næturþeli og síðan tekur tíma og
ótal tár, á vinstri vanga, að setja
þetta saman að nýju. Af hverju
ekki að hafa bara einn flokk? Og
allt þetta lífsskoðunarvesen, með
óendanlegum þyngslum fyrir kom-
mentakerfin? Eigum við ekki bara
að hætta þessu röfli og setja öll trú
okkar á Mammon?
Og svo fyrir þá sem kunna ekki
fótum sínum forráð í þessari
framúrskarandi einsleitni má
náttúrlega hanna eitt stórt tjald-
svæði í Laugardal.
Að koma heim
í miðri messu
BRÉF OG FRÁSAGNIR
ÍSLENSKRA PILTA
Í VÍTI HEIMSSTYRJALDAR
MAMMA, ÉG ER Á LÍFI
Jakob Þór Kristjánsson
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
6
-D
A
D
C
1
E
6
6
-D
9
A
0
1
E
6
6
-D
8
6
4
1
E
6
6
-D
7
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K