Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Síða 2
Við hverju megum við búast á
sýningunni í ár?
Sumar deildir virðast deila ákveðnum hugsjónum.
Margir nemendur eru að velta fyrir sér tengslum
okkar við náttúruna í verkum sínum. Síðan eru all-
nokkur verk sem fjalla um kyn- og fjölskyldu-
pólitík, virði hluta og framleiðsluferli.
Ég er mjög ánægður með að listasafnið hafi gefið
leyfi fyrir því að nota portið til þess að sýna
stóru verkin. Útsýnið af svölunum og úr hinum
sölunum skiptir mig miklu máli, enda gefur það
áhorfendunum meira andrými.
Er mikilvægt að mæta?
Sýningin er einstakt tækifæri til þess að kynna sér hug-
sjón nýrrar kynslóðar listamanna og hönnuða undir einu
þaki.
Skapandi verkefni eru fóður íslenskar menningar og efna-
hagslífs. Það er mikilvægt að almenningur fái að kynnast af
alvöru starfi sem felst í að rannsaka, umbreyta efni og
myndum og skapa af fagurfræðilegri hugsjón.
Hvað finnst þér um íslenska
hönnunarsamfélagið?
Ísland er heillandi staður fyrir hönnuði. Hvað varðar stærð,
fólksfjölda og náttúruauðlindir, snýr það öllu á hvolf. Það
eru sterk tengsl milli náttúruauðlinda í hönnunarsenunni
sem tekst á við þessi umhverfismál í verkum sínum með
miklum leik. Ég held að samfélagið sé að verða miklu fjöl-
breyttara og gjarnara á að leyfa nýjum röddum hönnuða að
heyrast. Ég er mjög spenntur yfir þeim ungu hönnuðum sem
ég hef fengið tækifæri til að vinna með í skólanum. Ég er viss
um að þeir munu búa til nýjan vettvang svo að hönnun sé upp-
lifun á ólíkan hátt.
Eru mörg tækifæri fyrir unga hönnuði í dag?
Þessi kynslóð virðist vera mjög sátt við að sinna nokkrum störf-
um í einu, af hverju gæti einhver ekki verið bæði hönnuður og
bóndi? Eða listamaður og mannfræðingur? Við verðum að losa
okkur við einfaldleikann. Fólk er fjölhæft! Ég held að vinnu-
munstrið sé að breytast og heimurinn virðist tilheyra fólki sem
skapar sýna eigin möguleika. Í dag eru hönnuðir metnir meira á
hæfileikum til að skilja samhengi og möguleika og búa til nýjar
framleiðsluaðstæður.
Hvað er framundan hjá þér?
Í sumar er ég að vinna að verkefni sem snýst um vistkerfi í gróður-
húsum í samstarfi við norska og sænska listamenn. Þetta er partur af
sýningu sem er fyrirhuguð á næsta ári í London sem snýr að því að
blanda saman heimildarmyndverki og íhugandi hönnun.
THOMAS PAUSZ
SITUR FYRIR SVÖRUM
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
K
ri
st
in
n
M
ag
nú
ss
on
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
KA gerði sér lítið fyrir og sagði Þór upp í vikunni; alltént á sviði hand-mennta. Ekki svo að skilja að sú ákvörðun komi til með að ræna mignætursvefninum; ég skildi aldrei almennilega hvers vegna þetta ólíklega
par byrjaði yfir höfuð saman á sínum tíma. Þór/KA hljómar svona álíka vel og
bjór/nýmjólk.
Þurfi Þórsarar endilega að stofna til samstarfs við annað íþróttafélag væri mun
nær að leita hófanna á höfuðborgarsvæðinu, til dæmis á Kjalarnesi. Ungmenna-
félag Kjalnesinga er vanmetið afl í samtímaíþróttum. Af þeirri sameiningu hlytist
umtalsvert hagræði; ég meina, Þór myndi spila leikina sem settir eru á fyrir norð-
an og UMFK leikina sem settir eru á
hér syðra. Við þessa tilhögun myndu
sparast háar fjárhæðir en sem kunn-
ugt er hefur ferðakostnaður áratugum
saman verið að sliga rekstur íþrótta-
félaga á landsbyggðinni.
Séra Matthías yrði svo verndari
hins nýja félags, Þór/UMFK, enda bjó
hann og þjónaði á báðum stöðum.
Annars ætti Akureyringum ekki að
verða skotaskuld úr því að manna tvö
handboltalið næsta vetur enda eru íbú-
ar bæjarins orðnir 30 þúsund talsins,
ef marka má nýjustu tölur frá Kænu-
garði. Álíka margir og í San Marínó.
Óborganleg upplýsingaveita, Júró-
visjón.
Sorrí, Gísli minn Marteinn, ég gat
ekki haldið þessu í mér! Þrátt fyrir
góðan vilja. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að fyrir utan þetta mann-
fjöldablakt er ekkert út á framgöngu þína að setja; þú hefur staðið sig fram-
úrskarandi vel sem „master of ceremonies“ í Júróvisjón-partíinu mikla þarna
eystra og verið mun skemmtilegri og betri en allir keppendurnir til samans, nema
þá helst Svala okkar. Hún er einfaldlega of svöl fyrir Evrópu! Eins og Palli í denn.
Sjóvið er alltaf hresst en djöfull er þetta leiðinleg tónlist. Og mikil er ábyrgð
þess sem fann upp kjólaballöðuna. Geldara tjáningarform er vandfundið og nær
að hamast á henni/honum sem fann það upp en samkynhneigðum í þessum heimi.
Viðhorf ið til ásta fólks af sama kyni þarna í austurvegi er raunar með miklum
ólíkindum; sorglegt, vandræðalegt og forneskjulegt.
Ég meina, það er komið 2017!
Kjólaballaða
„par ömurlens“
í Júróvisjón.
AFP
Hættir að KA
á Þórsurum
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Annars ætti Akureyr-ingum ekki að verðaskotaskuld úr því aðmanna tvö handboltalið
næsta vetur enda eru íbú-
ar bæjarins orðnir 30
þúsund talsins, ef marka
má nýjustu tölur frá
Kænugarði.
Askur Davíðsson
Portúgal. Ég vona það, það er eina
lagið sem er gott.
SPURNING
DAGSINS
Hver
vinnur
Eurovision?
Vigdís Kristín Rohleder
Portúgal. Það finna sig allir í þessu
lagi, manni þykir vænt um hann.
Morgunblaðið/Ásdís
Eyjólfur Kristjánsson
Moldova. Mér finnst það ágætt lag.
Fanney Hansdóttir
Holland. Og Portúgal í öðru sæti.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Útskriftarsýning BA-nema í hönnun og myndlist við Listaháskóla Íslands verður
opnuð laugardaginn 13. maí kl. 14.00 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýningin
ber yfirskriftina Teikn / Gestures og sýningarstjóri er Thomas Pausz vöruhönnuður.
Fóður íslenskrar
menningar