Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Qupperneq 8
Í PRÓFÍL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017 JAÐARINN Enninful hóf feril sinn snemma á tíunda áratuginum hjá breska tímaritinu i-D, sem var mjög á jaðrinum á þeim tíma miðað við Vogue. Tímaritið var stofnað nokkrum árum fyrr af Terry Jones, sem áður hafði verið listrænn stjórnandi hjá breska Vogue. Hann vildi gera hinni lifandi stórborg London betri og sannari skil en glansmyndin sem hann sá í Vogue. Skrifstofur blaðsins voru í Covent Garden og á þess- um tíma sogaðist ungt og skapandi fólk að tímarit- inu. Ein af þeim sem Enninful vann með hjá i-D var stíl- istinn og skartgripahönnuðurinn Judy Blame. Hún segir að blaðið hafi verið skólinn hans og bauð hon- um að flytja inn með sér í hús sem var í eigu Neneh Cherry. Fólk tók eftir Enninful frá upphafi og þegar tískuritstjóri blaðins hætti skipaði Jones Enninful í hans stað. Þá var hann aðeins 18 ára gamall. Jones segir að hann hafi farið eftir innsæi sínu. Tilgangur blaðsins hafi verið að gefa ungu og efnilegu fólki tæki- færi í upphafi ferils síns. „Ég vildi hafa þessa orku, þetta ferska upphaf, þegar fólk er með augun opin og tilbúið til að taka áhættu,“ segir Jones. PJ Harvey á forsíðu i-D í september 1995. Myndina tók Craig McDean en stílisti var Edward Enninful. Upphafið hjá i-D EDWARD ENNINFUL var á dögunum ráðinn næsti ritstjóri breska Vogue. Hann tekur við af Alexöndru Shulman þegar hún hættir 1. ágúst næstkom- andi eftir meira en 25 ár í ristjórastólnum. Enninful verður fyrsti karlmaður- inn til að gegna þessu hlutverki. Enninful fæddist í Gana í febrúar 1972 og er því 45 ára. Hann fluttist ung- ur með fjölskyldu sinni til London og ólst upp í hverfinu Ladbroke Grove í vesturhluta borgarinnar. Móðir hans var saumakona og fékk hann innblástur frá litríkum flíkunum sem hún saumaði föt úr fyrir vini sína úr samfélagi Ganabúa í London. Hann hóf feril sinn í tískuheiminum fyrir framan myndavélina en hann var uppgötvaður, eins og sagt er, af tískustílistanum Simon Foxton í neðanjarð- arlest í bresku höfuðborginni. Foxton fannst hann hafa eitthvað sérstakt við sig og vildi fá að mynda drenginn. Enninful fór heim til sín og bað um leyfi enda var hann aðeins 16 ára. Myndatakan var fyrir breska tímaritið i-D, sem var þarna nýlega stofnað. Ljósmyndari var hinn þekkti Nick Knight og stílisti var fyrrnefndur Foxton. Í stuttu máli sagt heillaðist Enninful af tískuheiminum, var fljótlega kominn hin- um megin við myndavélina og var ráðinn aðstoðar- maður Foxtons. Þannig hófst um 30 ára ferill Ennin- fuls í tískuheiminum. Næsta stopp er síðan Vogue byggingin við Hanover torg í London. Hann er svart- ur og samkynhneigður karlmaður sem hefur verið ráðinn í stöðu sem hvítar konur hafa verið í síðustu hundrað árin. Sambýlismaður hans heitir Alec Max- well og er kvikmyndagerðarmaður. „Þetta sýnir að Guð er til,“ sagði ljósmyndarinn Nick Knight sem Enninful vinnur enn með, í samtali við New York Times. „Hann hefur brotið þetta form. Ég held að þetta gefi mörgum von, sem hafa hingað til horft á tískuheiminn sem eitthvað sem þeir muni aldr- ei komast inn í.“ Enninful var ráðinn tískuritstjóri i-D árið 1991 þeg- ar hann var aðeins 18 ára. Hann var þá yngsti tísku- ritstjórinn í heiminum í sambærilegri stöðu. Hann var hjá tímaritinu í um 20 ár. Hann hefur starfað fyrir ítalska og bandaríska Vogue og hefur gegnt stöðu list- ræns stjórnanda og tískuritstjóra bandaríska tísku- tímaritsins W frá árinu 2011. ingarun@mbl.is VINKONAN Naomi Campbell og Enninful kynntust í myndatöku fyrir i-D í París árið 1993. „Ég hafði heyrt um hann,“ sagði Campbell sem varð strax hrifin þegar hún hitti hann. „Ég var mjög hrifin af fatastíl hans, af persónuleika hans, ég var bara mjög hrifin af honum,“ sagði hún. „Hvaða fyrirsæta sem er mun segja þér að þegar Edward var hjá i-D og þau voru aldrei með mikla peninga, en sama hvað, ef Edward hringdi, hoppuðu stelpurnar upp í flugvél og mættu á staðinn. Við viss- um að þetta yrði góð og skapandi myndataka. Okkur langaði að vera hluti af þessu.“ Campbell, sem er einhver þekktasta fyrirsæta síð- ustu áratuga, hefur ennfremur sagt að hún líti á Enn- inful sem bróður sinn. Þegar Enninful fékk OBE-orðuna í fyrra fylgdi Campbell honum í Buckinghamhöll. Hún hélt enn- fremur stóra veislu fyrir hann eftir athöfnina en þang- að mættu m.a. Kate Moss og Madonna. Eins og bróðir Naomi Campbell og Kate Moss. Mynd úr i-D, ágústhefti 1994. Myndina tók Steven Klein en Edward Enninful var stílisti. HEIÐRAÐUR Enninful er hand- hafi OBE-orðunnar frá því í októ- ber í fyrra. Hann hlaut hana fyrir að auka fjölbreytni í tískuiðnað- inum. Anna Bretaprinsessa afhenti honum orðuna við hátíðlega at- höfn í Buckinghamhöll. „Þetta er einhver sérstakasti dagur lífs míns. Það er dásamlegt að vera heiðraður af landi mínu umkringdur fjölskyldunni og mínum bestu vinum,“ sagði hann. Enninful með OBE-orðuna. Orða fyrir tísku- framlag Straumhvörf hjá Vogue AFPStefano Tonchi, ritstjóri W, Edward Enninful og Giovanna Engelbert, tískuritstjóri og stílisti. ’Hann er svartur og sam-kynhneigður karlmaðursem hefur verið ráðinn í stöðusem hvítar konur hafa verið í síðustu hundrað árin. Linda Evangelista. Stílisti var Edw- ard Enninful og ljósmyndari Tesh. Mynd úr i-D frá mars 2004. Enninful með góðri vinkonu sinni Naomi Campbell. Hlíðarsmára 6, 201 Kópavogi – S. 564 6464 – fasthof.is að f m viðskiptum Elsa Alexandersdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala Evert Guðmundsson Nemi til löggildingar fasteignasala Guðmundur Hoffmann Steinþórsson lögg. fasteignasali

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.