Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Blaðsíða 16
ÚTTEKT
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017
Teinréttur
daginn
fyrir níræðis-
afmælið
2011.
T
ilkynnt var fyrr í mánuðinum að
hertoginn af Edinborg, Filippus
drottningarmaður, myndi hætta
að sinna konunglegum skyldum
sínum frá og með ágúst næst-
komandi. Þá verður hann orðinn 96 ára en
hann á afmæli 10. júní næstkomandi og er
því ekki nema eðlilegt að draga aðeins úr
vinnu. Áhersla var lögð á að ákvörðun hans
um að draga úr skyldum sínum væri ekki
heilsunnar vegna. „Hertoganum fannst
þetta vera rétti tíminn. Hann er nærri 96
ára og flestir hefðu hætt 30 árum fyrr,“ var
haft eftir konunglegum aðstoðarmanni í Gu-
ardian.
Forsætisráðherrann, Theresa May, sagði
að Filippus hefði veitt drottningunni „stöð-
ugan stuðning“ og Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins og lýðveldissinni, lof-
aði „skýra sýn hans á opinberar skyldur“.
Hefur staðið þétt
við hlið Elísabetar
Vefur Telegraph tók saman nokkur atriði
sem allir ættu að vita um hertogann af Ed-
inborg, sem hefur staðið þétt við hlið El-
ísabetar Bretadrottningar í nærri 70 ár.
Enda er hollusta hans við drottninguna eitt
af því sem blaðið nefnir. Hjónaband þeirra
hefur verið farsælt þrátt fyrir að persónu-
leikar þeirra virðist ólíkir. Litið er á Filipp-
us sem ævintýragjarnan og öran á meðan
drottningin sé varkár og hefðbundin. Ef guð
lofar halda þau upp á platínubrúðkaup sitt í
nóvember.
Hann hefur helgað líf sitt opinberum
skyldum. Hann hefur mætt á þúsundir við-
burða í Bretlandi og víðs vegar um heiminn.
Hann hefur stutt við ótalmörg góðgerðar-
samtök.
Hann bjó til verðlaun kennd við hertog-
ann af Edinborg árið 1956. Þau eru ætluð til
að verðlauna afburðafólk á aldrinum 14-24
ára. Þau þykja hafa skilað miklum árangri
og hvatt fjölmargt ungt fólk áfram.
Leiðist umstang
Filippusi leiðist umstang, hann er ekki mik-
ið að hugsa um arfleifð sína, hann vill ekki
að honum sé vorkennt í veikindum og að
ósk hans er reynt að halda hátíðarhöldum í
kringum afmæli hans í lágmarki.
Eins og vitað er þá er drottningin höfuð
ríkisins en Filippus er hinsvegar höfuð kon-
ungsfjölskyldunnar. Hann þykir hafa verið
ákveðinn faðir og stjórnar bak við luktar
dyr. Hann sér til dæmis um fjölskyldugrillin
þegar konungsfjölskyldan fer í frí í Bal-
moral-kastala.
Áhugamaður
um hestvagnaakstur
Hertoginn hefur mikinn áhuga á hestvagna-
akstri og hefur keppt í slíkum. Hann gaf sitt
fyrsta viðtal í vikunni eftir að hann tilkynnti
breyttar skyldur sínar og var það einmitt
um þetta málefni.
Hann fór að stunda íþróttina um fimm-
tugt eftir að hann ákvað að hætta að keppa í
póló. Alla tíð síðan hefur hann unnið að því
Arfleifð Filippusar
Filippus, hertogi af Edinborg, ætlar að hætta að sinna konunglegum skyldum sínum
innan tíðar enda verður hann 96 ára eftir nokkra daga. Hann stendur enn teinréttur
þrátt fyrir háan aldur enda er hann ekki að draga úr skyldum heilsunnar vegna.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Elísabet Bretadrottning og
Filippus hafa verið gift í nærri
því 70 ár. Mynd frá árinu 2013.
Hjónin að skoða Kínamúrinn árið 1986.
AFP
’Litið er á Filippus sem ævintýra-gjarnan og öran ámeðan drottningin
sé varkár og hefð-
bundin. Ef guð lofar
halda þau upp
á platínubrúðkaup
sitt í nóvember.
AFP