Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Side 22
Selma Svavarsdóttir segir engan ákveðinnstíl einkenna heimilið. „Ég blanda barasaman því sem mér finnst fallegt og
höfðar til mín og reyni að gera huggulegt,“ út-
skýrir hún og segist undanfarin ár hafa nánast
eingöngu lagt áherslu á að gera heimilið hlý-
legra. „Ég hef lagt áherslu á að bæta lýs-
inguna, koma fyrir plöntum, teppum og bætt
við hlutum úr keramik, gleri og við. Mér finnst
hlutir í náttúrulegum litum fallegir við flotaða
gólfið okkar og dökkbláu veggina. Svo eru
margir af uppáhaldshlutunum mínum í sterk-
um litum og þeir njóta sín virkilega vel í þessu
umhverfi.“
Selma segir flesta nýja hluti á heimilinu
undanfarið koma úr Heimilisfélaginu. „Enda
fást í Heimilisfélaginu eingöngu hlutir sem
mig dauðlangar í fyrir heimilið, sjálfa mig eða
heimilisfólkið.“
Hvað varðar innblástur segir Selma sér
finnast notalegt að fara á kaffihús og blaða í
gegnum tímarit og reynir að gera mikið af því.
„Annars tollir eins og hálfs árs strákurinn
minn ekki inni á kaffihúsi og hleypur bara út,
þannig að það hefur aðeins dregið úr kaffi-
húsaferðum undanfarna mánuði. En svo er
alltaf hægt að stóla á að fá innblástur á Pinte-
rest, en ég nota það meira ef ég er að leita
markvisst að einhverju afmörkuðu.“
Selma segir eldhúsið uppáhaldsstaðinn sinn
á heimilinu enda afskaplega vel heppnað rými.
„Við skiptum um eldhús fyrir tveimur árum og
nú finnst mér það vera búið að taka á sig góða
mynd. Annars erum við mikið niðri í mjúka
sjónvarpssófanum okkar og næst á dagskrá er
að gera það rými huggulegra,“ útskýrir hún.
Spurð að lokum hvað sé í eftirlæti í hverfinu
segir Selma það sem hana vanti tilfinnanlega í
Fossvoginn vera kaffihús, með góðu kaffi, net-
sambandi og tímaritum til að glugga í. „Ég er
búin að útfæra þetta kaffihús í huganum, útlit-
ið, veitingarnar og líka praktísku hliðarnar og
bíð spennt eftir aðilanum sem dembir sér í
þetta. Ég skal aðstoða!“
Eldhúsið var tekið í gegn
fyrir tveimur árum og er
útkoman stórglæsileg.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Selma Svavarsdóttir viðskiptafræðingur sem starfar hjá Lands-
virkjun hefur búið sér og fjölskyldu sinni smekklegt og persónu-
legt heimili í Fossvogi. Selma, sem er fagurkeri fram í fingur-
góma, rekur jafnframt vefverslunina Heimilisfélagið sem hún
sinnir í frístundum, enda mikil áhugamanneskja um hönnun.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
PH 80 standlampinn kemur vel út við
J16 ruggustólinn frá Wegner. Fallega
ullarteppið er frá Heimilisfélaginu.
Selma Svavarsdóttir sækir innblástur í
tímarit og á Pinterest.
Fallegt heimili
í Fossvogi
HÖNNUN Í dag, sunnudaginn 14. maí kl. 15 verða meistaranemar í myndlist meðlistamannaspjall í tengslum við útskriftarsýningu sem nú stendur yfir í
Gerðarsafni. Allir eru velkomnir á viðburðinn og aðgangur er ókeypis.
Listamannaspjall með
útskriftarnemum
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017