Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Side 28
Fyrir einn
40 cl Bleikt Gin (Hægt að nota aðrar gintegundir)
15 cl Cocci Rosa (Sætur vermouth)
15 cl Aperol
15 cl Rabarbaralíkjör
Setjið klaka í kokteilglas (t.d. Martiniglas) og
kælið. Setjið klaka í hræriglas, vökvar mældir út
í og hrærðir varlega saman. Klaki fjarlægður úr
kokteilglasi. Hellið blöndunni í kokteilglasið en
klaki sigtaður frá. Skreytið með rabarbara eða
appelsínuberki.
Bleikur Negroni
Hrafnkell Sigríðarson yfirkokkur og Sigríður Kjartansdóttir
yfirþjónn sjá um að allt gangi snurðulaust á MAT BAR.
Morgunblaðið/Ásdís
Guðjón Hauksson
segir fólk koma aftur
og aftur til að borða
mozzarella-ostinn.
Við opnuðum í lok janúar og það er búið að verafullt út úr dyrum flesta daga,“ segir GuðjónHauksson, framkvæmdastjóri og einn af eig-
endum MAT BARS á Hverfisgötu.
Guðjón bjó á Ítalíu og þekkir vel til ítalskrar
matarmenningar og því langaði hann að opna stað
sem væri undir ítölskum áhrifum. „Hugmyndin er að
hafa þetta svipað og með tapas, að fólk geti deilt
diskum og smakkað mikið af mat. Matargerðin á ræt-
ur sínar í ítalska eldhúsinu og við leggjum höfuð-
áherslu á ferskleika í hráefni og einfaldleika í eldhús-
inu. Þetta er í raun ekki flókin eldamennska en við
erum að nota norrænar eldunaraðferðir til að breyta
ítalska eldhúsinu og gera það að okkar. Við erum að
súrsa, reykja og þurrka. Niðurstaðan verður matur
með okkar sérkennum. Við notum líka allt hráefnið,
það er heildræn vinnsla á öllu,“ segir Guðjón.
„Við erum mjög sterkir í grænmetisréttum en einn-
ig með kálf, lamb og íslenskt sjávarfang.“
Von á frægum matgæðingi
Þrátt fyrir að meirihluti gestanna
séu Íslendingar segir Guðjón að
dottið hafa inn um dyrnar frægir
leikarar utan úr heimi og einnig
heimsfrægir kokkar. Ekki vill
Guðjón gefa upp hverjir það eru
og segir þau hafa þá reglu að taka
ekki neinar myndir af gestunum.
Kokkurinn, Hrafnkell Sigríðarson,
uppljóstrar þó að von sé á frægum
matgæðingi innan skamms. Guðjón
er að vonum spenntur að fá hann í
heimsókn. „Já, upphafsmaður
„slow food“ hreyfingarinnar er að koma í mat til okk-
ar. Hann heitir Carlo Petrini. Hann er algjör stjarna
og hefur haft mjög mótandi áhrif á þessa hreyfingu.
Við erum á þeirri línu, erum að nota árstíðabundið
hráefni og vinnum gjarnan með litlum söluaðilum.
Förum lítið í gegnum milliliði, við verslum meira
svona beint frá bónda,“ segir hann.
Mozzarella heillar fólkið
MAT BAR býður upp á hádegismatseðil en hentar
líka vel fyrir fólk sem vill kíkja eftir vinnu í einn kok-
teil og smárétt Fyrir þá sem vilja
fullan kvöldverð er vinsælt að velja
fimm rétta matseðil, en kokkurinn
velur mismunandi rétti daglega.
Einnig býður MAT BAR upp á gott
úrval af góðum vínum og kokteil-
um. Guðjón segir mozzarelluna
vera mjög vinsæla.
„Mozzarellan er orðin okkar ein-
kennisréttur. Við erum að vinna
þetta með ítölskum ostagerðar-
manni og fáum líka ricotta ost frá
honum. Svo sýrum við tómatana og
gerum okkar eigin basilolíu, þannig að þetta er klass-
ískur ítalskur réttur en gerður á annan hátt en
venjulega. Fólk kemur oft hingað bara til að fá
hann.“
Guðjón segir marga gestina koma aftur og aftur.
„Við erum með mikið af fastagestum og margir sem
búa hér í hverfinu koma til okkar,“ útskýrir Guðjón.
„Það er gaman að það er mjög blandaður aldurs-
hópur sem sækir staðinn, bæði yngra og eldra fólk.
Fólk sem hefur áhuga á mat. Þetta er mjög lifandi
veitingastaður, mikið fjör. Og eiginlega eru engin tvö
kvöld eins,“ segir Guðjón og brosir.
Ítalskt undir
norrænum áhrifum
’Þetta er í raun ekkiflókin eldamennskaen við erum að nota nor-rænar eldunaraðferðir til
að breyta ítalska eldhús-
inu og gera það að okkar.
Við erum að súrsa,
reykja og þurrka. Niður-
staðan verður matur
með okkar sérkennum.
Á MAT BAR á Hverfisgötu er notalegt og oft fjörugt andrúmsloft og er tilvalið
að kíkja inn og gera vel við sig í mat og drykk. Allir réttir eru hannaðir til að
deila og er því bragðlaukunum boðið í veislu þar sem gestir njóta þess að
smakka marga litla rétti. Mozzarella-osturinn er í uppáhaldi hjá fastagestum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017
MATUR
Parisienne Gnocchi,
ricotta og salvía
Fyrir 4
60 g vatn
15 g smjör
1 egg
30 g steinselja
30 g spínat
200 g hveiti
3 g salt
300 g kjúklingasoð eða 300 g
vatn og einn teningur af
kjúklingakrafti
100 g salvía
150 g ricotta
Sjóðið saman vatn og smjör.
Síðan er salti og hveiti bætt
saman við og hrært þar til allt
nær saman. Látið kólna að-
eins.
Bætið við egginu ásamt fínt
söxuðu spínati og steinselju
og blandað vel. Látið kólna og
formið síðan. Sjóðið þar til
bitarnir fljóta, sigtið vatnið
frá og setjið til hliðar.
Steikið gnocchi á pönnu og
síðan er soðinu bætt við og
látið sjóða aðeins niður. Að
lokum er salvíunni bætt við á
pönnuna og öllu blandað vel
saman. Skammtið á diska og
stráið ricotta yfir allt.