Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Page 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017 F alsaðar fréttir, ekki fréttir, heilaspuna- fréttir, og fleira í þeim dúr taka rúm í umræðu núna. Stundum er látið eins og fyrirbærin séu þau fyrstu þessarar teg- undar og því glæný undir sólinni. Það er af og frá. Smámunir núna Fréttafalsanir og spuni eru til frá öllum skráðum tímum. Þeir sem hafa verið handhafar opinbers valds, misvel fengins stundum, hafa beitt þessum vopnum óspart. Dæmin úr nútímanum eru mýmörg og þekkt og ekki síður frá nýliðnum tíma. Í sumum ríkjum hafa fjölmenn ráðuneyti haft þennan starfa með höndum. Þegar starfsemin er í skjóli alræðis- valds verður hún að lokum hömlulaus og um leið einn mikilvægasti hlekkur í keðju kerfisins. Sovétríkin gömlu eyddu mikilli orku og mannafla í verkefnið og framan af með furðu góðum árangri. KGB rak umfangsmikla starfsemi erlendis til að sjá um „disinformasjon“. Fjölmennir sjálfboðaliðahópar í vestrænum ríkjum lögðu henni lið. Jarðvegurinn í vestrænum ríkjum var oft góður, ekki síst framan af í framhaldi heimskrepp- unnar 1930. Valinkunnir listamenn bárust með þessum straumum sem var í raun stríður blóðstraumur í fyrir- heitna landinu sjálfu. Þeir listamenn sem ekki spiluðu með þrifust illa eða ekki austan tjalds og svo merkilega sem það hljómar áttu þeir iðulega erfitt uppdráttar vest- an megin eins og mörg dæmi sönnuðu. Sumir voru nytsamir sakleysingjar sem töldu sig hafa eygt brautina til betra og réttlátara lífs. Þeir voru fórn- arlömb gervifrétta og óskammfeilins áróðurs. Þeir sem sáu í gegnum lygavefina og tóku að andæfa eins og hér á landi sættu árásum. En þeir voru til sem höfðu alla burði til að vita betur og viðurkenndu síðar að þeir vissu allan tímann betur en þögðu þó. Og þeir gengu reyndar miklu lengra því gegn betri vitund lögðu þeir lyginni lið með snilld sinni og hæfileikum og drógu margan að mál- staðnum sem aldrei hefði fallið fyrir honum annars. Listamennirnir færðu það sumir fram sem afsökun síðar að stundum væri óhjákvæmilegt að standa með lyginni um hríð, í baráttunni við öfl afturhalds og kyrrstöðu til að tryggja að lokamarkmiðin næðust. Þegar þeim yrði náð sprytti sannleikurinn sjálfkrafa til sögunnar og sett- ist í öndvegi við hliðina á réttlæti, jöfnuði og mannúð. En nú er vitað að söguþráðurinn og sögulokin urðu önnur. „Upplýsingaráðuneytin“ voru skuggaleg Joseph Goebbels, áróðurssnillingur foringjans óskeik- ula, sem sjálfur var áhrifaríkur múgsefjari, er enn ein helsta táknmynd svívirðilegs lygavaðals sem sullað var yfir eina helstu menningarþjóð veraldar. Flestir virtust gleypa fegnir við. Síðar hefur verið reynt að finna skýr- ingar á þeirri ógæfu og niðurlægingu. Á það er réttilega bent að ógnarstjórn hafði náð alræðisvaldi sem enginn mátt sín neins gegn. Það var ekki fyrr en allur heimur- inn í sjálfsvörn sinni tók loks á móti að taflið snerist við. En hildarleiknum lauk ekki í Þýskalandi fyrr en allt var orðið ein rjúkandi rúst. Fyrstu árin eftir að „foringinn“ komst til valda með sínar svartstakkasveitir, virtist margt færast til betri vegar á yfirborðinu. Atvinnuleysið hvarf, óeirðir voru úr sögunni (miskunnarlaust barðar niður) og ótrúlegir hernaðarsigrar unnust. Goebbels-iðnaðurinn komst langt með þessa glansmynd. Allt hitt hvarf sjónum: Per- sónufrelsi, málfrelsi og lagaskjól einstaklinganna hafði horfið eins og dögg fyrir sólu. Milljónir myrtar, og enn fleiri fangelsaðir og þrælkaðir, undirokaðir og pyntaðir. Og enginn virtist sjá neitt fyrr en eftir lok þessa ömur- lega stríðs þegar dyr að þessu sýnishorni af helvíti á jörð luktist upp um stund. Vondar fréttir þykja betri en góðar Lýðræðisþjóðirnar, komnar í stríð upp á líf og dauða, komust ekki hjá því að stýra upplýsingagjöf með all- harðri hendi í þágu baráttunnar. Það var gert í nauðvörn og allir töldu sig mega trúa því að frá slíku yrði horfið þegar fært væri. Og sú varð raunin. Við hljótum að kannast við, þótt vont sé, að við erum flest dálítið glámskyggn gagnvart ólíkindafréttum. Þá er ekki átt við frásagnir af geimverum með óstjórnlegan áhuga á þeim sem tilheyra fyrirferðarmestu dýrategund þessarar jarðar. Þó er ekki langt síðan að Orson Wells og félagar hræddu líftóruna úr milljónatugum manna með tilkynningum um innrás frá Mars. En aðeins minni ólíkindafréttir en þetta fá fljótt vængi, ekki síst á svo- kölluðum samfélagsmiðlum þar sem dómgreindarleysi virðist sameiginlegt lykilorð tölvum margra. En óneitanlega virðast „vondar“ fréttir eftirsóknar- verðari fréttir en góðar. Auðvitað segja menn ekki af því fréttir þótt rúta hafi farið í miklum strekkingi frá Reykjavík til Hornafjarðar og komist þangað klakk- laust. Hefði hún oltið væri mikið um hana fjallað. Þkæmuað er ekki bara af því að fréttin sé „vond“. Hundruð langferðabifreiða fara um þjóðvegina og á áfangastað. Örfáar velta. Menn vilja góðar fréttir af sín- um nánustu en eftirspurn er að öðru leyti mest eftir slæmum fréttum sagði reyndur blaðasnápur. Kjörsonur Don Corleone og conciliatore hans sagði ólánsömum kvikmyndajöfri í Hollywood að sinn húsbóndi vildi fá fréttir fljótt, einkum þó vondar fréttir. Það var þó af öðr- um ástæðum en eru undirrót þorsta almennings eftir slíkum fréttum. Misjafnar sögur um náungann eiga líka of greiða leið að eyrum annarra og það vill gleymast að láta heilbrigða skynsemi sigta mesta ruglið frá. Allir þeir sem kynnast fjölmiðlum skynja að vondum fréttum, frá- sögnum um dapurleg örlög eða um meinta glæpsamlega hegðun af einhverju tagi taka margir á móti með litlum fyrirvörum. Og það líka þótt fréttirnar beri það með sér að vera vafasamar. Og allir þeir sem eru í stjórnunarstöðum á fjölmiðlum verða fyrir áreitni við að koma inn á fjölmiðla „fréttum“ í misgóðum tilgangi. Reyndir menn eru því vel á verði. En enginn sér við öllum. Fari illa leitast skárri fjölmiðlar við að leiðrétta það sem missagt var. En leiðréttingin fær aldrei sama uppslátt og athygli og „fréttin“ sjálf fékk. En hitt er líka til, að efnislega röng frétt lifir lengi í mörgum fjölmiðlum sem hver og einn telur sig í skjóli hinna. Oft kemur á daginn að þeim fréttum er haldið á lífi. Það eru keyptir undir þær menn. Slíkar fréttir reyna flestir einnig að leiðrétta. En leiðrétting er lítil miðað við það sem á undan var gengið. Hún verður eins og Tumi þumall við hliðina á Jóhanni risa. Aldrei er hamrað á leiðréttingu dag eftir dag. Hún fær ekki sama uppslátt og ásökunin, grunsemdin og rangfærslan. Skýringarnar á þeirri ósanngirni eru í sjálfu sér réttar. Fyrirfram greiddar refsingar Það er ekki mjög langt síðan að hér á landi var hægt að fá grunaða menn úrskurðaða í langt gæsluvarðhald þótt rannsókn máls væri enn í molum. Gæslan fólst iðulega í nær samfelldri einangrun. Veruleg breyting hefur orðið til batnaðar. Vel rökstuddur ótti við hryðjuverk á Vesturlöndum hefur leitt til þess að þing lýðræðisríkja hafa veitt rúmar heimildir til að handtaka menn og halda þeim mánuðum saman í gæslu án þess að aðgerðin lúti þeim almennu reglum sem frelsissvipting verður að lúta í lýðfrjálsu landi. Ekki væri sanngjarnt að segja að hryðjuverkamál fengju sérstaka meðferð sem eins konar „tískubóla“. Enn eru þjóðirnar í nauðvörn. En árvekni er þörf því veruleg hætta er á misnotkun valds í þessum tilvikum. Það er þekkt að málaflokkar sem áður þóttu fá of litla athygli í réttarkerfinu hafa smám saman fengið vand- aðri meðferð en áður. Þrátt fyrir það liggur í loftinu krafa um að slík mál megi lúta minni og óljósari kröfum um sönnun en önnur mál sem varða menn refsingum. Allstór hópur löglærðra manna lætur nú eins og eðlilegt sé að gera minni kröfur um sönnun í tilteknum málum en alla jafna hljóti að gilda. Rökin eru oft þau að sönn- unarfærsla sé óaðgengilegri við tiltekin brot vegna eðlis þeirra en önnur. Orð kæranda standi gegn orði þess sem kærður er og fá áþreifanleg gögn önnur. Aðeins ein leið sé fær. Hún er sú að gera fullyrðingar annars aðilans, oftans kærandans (þolandans) þyngri á metum. Megi þá styðjast við mat á trúverðugleika. Slík leið er galopin við réttarfar þar sem kviðdómar ráða úrslitum um sök eða sakleysi. Vísbendingar eru um það að allmörg mál af framan- Glæpir og refsing, leiktjöld og önnur tjöld ’ En á hinn bóginn er með öllu óbæri- legt að menn hafi stöðu sakbornings árum saman og allan þann tíma séu litlar eða engar skýringar gefnar á þeirri stöðu eða hversu lengi sé líklegt að hún standi. Það væri ekki fullnægjandi svar að yfir- völdin væru upp fyrir haus í öðrum mál- um og kæmu þessu ekki að. Reykjavíkurbréf12.05.17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.