Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Qupperneq 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Qupperneq 45
14.5. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 SJÓNVARP American Gods, nýir þættir byggðir á verð- launaskáldsögu Neil Gaiman, hafa mælst vel fyrir en sýningar hófust í Bandaríkjunum og Bretlandi á dög- unum. Sérstaklega hefur verið rætt og ritað um atriði, þar sem ástargyðjan Bilquis lokkar til sín mann nokk- urn, fær hann til að samþykkja að tilbiðja sig kynferðis- lega og gleypir hann í framhaldinu í heilu lagi – gegnum leggöngin. Nígeríska leikkonan Yetide Badaki, sem fer með hlutverk Bilquis, segir téð atriði hafa verið mikla lífsreynslu fyrir sig enda sé hún forfallinn aðdáandi sög- unnar. „Ég var tvítug þegar ég las bókina og þegar ég kom að þessu hugsaði ég með mér: Bíddu nú aðeins hæg! Hvað í ósköpunum átti sér stað?“ segir Badaki í samtali við breska blaðið The Guardian. Át mann – með leginu Yetide Badaki í hlutverki Bilquis. Starz ROKK Orðrómur þess efnis að eftirlifandi meðlimir Led Zeppelin muni koma saman og troða upp á Desert Trip-tónlistarhátíðinni í Bandaríkjunum í haust mun vera úr lausu lofti gripinn, að sögn tónlistartímaritsins Billboard. Einhverjir aðdáendur sveitarinnar töldu að Robert Plant söngvari væri að gefa þetta í skyn á heimasíðu sinni með orðunum „það styttist í þetta“ en Billboard telur víst að um auglýsingabrellu vegna nýrrar sóló- skífu Plants sé að ræða. Robert Plant, Jimmy Page og John Paul Jones komu síðast saman fyrir áratug ásamt Jason, syni Johns heitins Bonhams, sem upprunalega var í bandinu. Endurkoma Zeppelin ekki í kortunum Led Zeppelin á tónleikum í Laugardalshöll. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Það er hlutverk áskriftarblaða í þessum heimi að reyna á lesendur sína, ögra þeim og brýna. Nú verður til dæmis látið reyna á sjónvarpsminni þitt, lesandi góð- ur, með eftirfarandi spurningu: Manstu eftir Edda skóþveng? Já, var það ekki! Eddi skóþveng- ur, eða Eddie Shoestring, eins og hann hét á frummálinu, var lunk- inn einkaspæjari í samnefndum sjónvarpsþáttum sem gengu í tvo vetur í Bretlandi, frá 1979 til 1980, og skiluðu sér síðar hingað upp á Íslandsstrendur. Sú leið var þó talsvert lengri á þeim tíma en hún er nú á öld tækninnar. Talandi um tækni þá var Eddi tölvunarfræðingur að mennt en sagði starfi sínu lausu eftir að hafa fengið taugaáfall. Og hvað gera menn þegar þeir eru skriðnir sam- an eftir slíkt áfall? Jú, gerast einka- spæjarar. Eddi var að vísu enginn venjulegur einkaspæjari, bak við rykfallið borð á drungalegri skrif- stofu; kúnnarnir sóttu að honum á öldum ljósvakans. Eddi skóþveng- ur stjórnaði sumsé útvarpsþætti í þeirri ágætu borg Bristol og kúnn- arnir hringdu inn þyrftu þeir á að- stoð hans að halda; svo sem ef gömul frænka var horfin eða grun- ur lék á því að makinn væri farinn að líta í kringum sig. Einn á Skúlagötunni? Á ýmsu gekk hjá Edda blessuðum og alvaran ef til vill ekki alltaf í fyr- irrúmi. Alltént var einhver tónn í pistli í ljósvakadálki Þjóðviljans snemma árs 1982: „Blessuð kempan hún Eddi Sjústring er á dagskránni í kvöld kl. 21.50. Eins og allir aðdáendur Vest-sjónvarpsstöðvarinnar vita er þetta hinn liprasti piltur og býsna glöggur á að verða sér úti um vandræði. Eddi er vænsti pilt- ur og vill hvurs manns vanda leysa. Væri raunar ekki ónýtt ef vér mör- landar hefðum einn slíkan á Skúla- götunni til að stytta okkur stundir í skammdeginu. Þeir hjá Sjónvarp- inu kalla þetta „sakamálamynda- flokk“ en okkur finnst allt það sem Eddi skóþvengur tekur sér fyrir hendur, þvert á móti, vera græskulaust gaman. Eða hefur nokkur vegið mann og annan hingað til?“ Það var breski skapgerðarleik- arinn Trevor Eve sem fór með hlutverk Edda. Hann viðurkenndi raunar löngu seinna að hann hefði hlegið upphátt fyrst þegar honum bauðst hlutverkið enda vanur maður úr leikhúsi og kvikmyndum og sjónvarpsþættir þóttu alla jafna slíku fagfólki ekki samboðnir á þessum tíma. Eins og dæmin sanna hefur það gjörbreyst. Eftir að hafa lesið handritið ákvað Eve hins vegar að slá til og entist í tvær seríur og 21 þátt. Þá fékk hann nóg og vildi snúa aftur í leikhúsið. Það varð til þess að framleiðslu á Edda skóþveng var hætt. Trevor Eve hefur margoft komið við sögu sjónvarps síðan, svo sem í BBC-þáttunum Waking the Dead. Þessa dagana er hann á skjáum landsmanna í öðrum saka- málaþáttum, Unforgotten eða Grafin leyndarmál. Eddi skóþvengur var býsna glöggur á að verða sér úti um vandræði. MANSTU EFTIR EDDA SKÓÞVENG? Vildi hvurs manns vanda leysa Trevor Eve, eins og hann er í dag. MÁLMUR Konur hafa ekki verið sérlega fyrirferðarmiklar í málm- heimum gegnum tíðina; hvað þá bönd sem eingöngu eru skipuð konum. Þess vegna sætir spánný hljómsveit með stóreflisnafn, We Start Wars, talsverðum tíðindum. Hana skipa sex harðsnúnar konur en þær eru Nita Strauss gítarleik- ari, sem leikið hefur með Alice Cooper, Alicia Vigil bassaleikari sem áður var í Vigil of War, söng- konan Seana (eða Shauna Lisse), gítaristinn Nicole Papastavrou, hljómboðsleikarinn Katt Scarlett, sem áður var í Femme Fatale og Lindsay Martin á trommur. Fyrsta lag sveitarinnar, The Ani- mal Inside, er þegar komið út og fyrstu tónleikarnir eru áformaðir í hinum goðsagnakennda málm- klúbbi Whisky A Go Go í Los Ang- eles á uppstigningardag. Er það vel við hæfi. Í samtali við tímaritið Guitar World segist Nita Strauss lengi hafa alið þann draum í brjósti að setja saman málmband skipað konum. Nú sé hún loksins komin með einstaka blöndu tónlistar- kvenna og andinn og getan í band- inu sé framar vonum. Ofurmelódískur málmur Í sama viðtali nota þær Nicole Pa- pastavrou orðið „ofurmelódískt“ til að lýsa tónlist We Start Wars en þó sé sitt lítið af hverju þar að finna; einnig þyngri áhrif, einkum frá þeim tveimur. Spurð um nafnið á bandinu svarar Strauss: „Ég heyrði það fyr- ir margt löngu og get ekki gleymt því. Mörg helstu stríð mannskyns- sögunnar voru háð vegna fallegra kvenna.“ Þá vitum við það. Valin kona er í hverju rúmi í hinu flunkunýja málmbandi We Start Wars. MÁLMBAND SKIPAÐ KONUM Mörg helstu stríðin voru háð vegna fallegra kvenna! Svefntr g Sef betur alla nóttina, vakna úthvíld og er laus við fótaóeirðina. Elsa Ásgeirsdóttir Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is – töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og vakna endurnærð/ur l Náttúruvara hönnuð til að stuðla að góðum nætursvefni l Engin sljóvgandi áhrif l Sítrónumelis (Lemon balm) notað í gegnum aldirnar af jurtalæknum l Magnesíum, L-theanine, Kamilla og B vítamínblanda 2 töflur fyrir svefn - náttúruleg leið til að sofa betur uflanir úr sö unn Melissa Dream

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.