Morgunblaðið - 22.05.2017, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017
Smáauglýsingar 569 1100
Heimilistæki
Til sölu
Whirlpool þvottavél tekur 6 kíló
1400 snúninga stjórnborð á íslensku.
Verð aðeins 20 þúsund.
Upplýsingar í síma 698-2598
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Ýmislegt Vélar & tæki
Vinnulyftur ehf
Eigum á lager nýjar skæralyftur frá
Skyjack og bómulyftur frá Niftylift.
eyvindur@simnet.is, sími 774 2501
www.skyjack.is.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, botsía
kl. 10, félagsvist kl. 13, útskurður kl. 13, myndlist kl. 13.
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 8.30-16. Botsía með Þóreyju kl. 9.30-
10.10, handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.30, félagsvist með
vinningum kl. 13, myndlist með Elsu kl. 16.
Boðinn Félagsvist kl. 13, spjallhópur kl. 15.
Borgum Minnum á ferðafund Korpúlfa í dag vegna 3 daga ferðar um
suðausturland 29. maí 2017, nauðsynlegt að allir þátttakendur mæti
kl. 10 í Borgum, m.a. verður dregið um rútusæti og skipulag ferðar-
innar kynnt nánar. Góða ferð.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.15, botsía kl. 13.30,
kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Nánari upplýsingar í síma 411-2550.
Verið öll velkomin.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8-12, postulínsmálun kl. 9-
12, frjáls spil kl. 13-16.30, bókband kl. 13-17. Verið velkomin á Vitatorg
Lindargötu 59, síminn er 411-9450.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45, vatnsleik-
fimi kl. 8 og 15, kvennaleikfimi kl. 9.10, stólaleikfimi kl. 10 og kvenna-
leikfimi í Ásgarði kl. 11, brids í Jónshúsi kl. 13. Zumba fyrir félags-
menn FEBG í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-16. Línudans kl. 13-14, kóræfing kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15
kanasta.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Gönguhópur kl.
10.30 – þegar veður leyfir. Hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl.
14. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Það koma fjórar stúlkur úr Réttarholtsskóla í
Hæðargarð þessa viku, þær halda úti dagskrá. Nánari upplýsingar í
síma 4112790. Félagsmiðstöðin opnar kl.8.50, við hringborðið kl. 8.50,
ganga kl. 10, botsía kl. 10.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist
kl.13.15. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu.
Selið Sléttuvegi Selið er opið í dag kl. 10-16, helgistund hjá séra
Ólafi er kl. 10.10, hádegisverður kl. 11.30-12.30, félagsvist kl. 13.15 og
kaffi og meðlæti selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega
velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Billjard Selinu kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30,
vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Vegna uppsetningar handverks-
sýningarinnar þá fellur niður öll dagskrá félagsstarfsins sem vanalega
er í salnum, en handverkssýningin verður opnuð fimmtudaginn 25.
maí á degi eldri borgara - uppstigningadag kl. 15. Sýningin verður
svo opin föstudag og laugardag frá kl. frá kl. 14-18.
Stangarhylur 4 Zumba Gold námskeið kl. 10.30, leiðbeinandiTanya.
Skapandi skrif, námskeið kl. 14, leiðbeinandi Þórður Helgason. Ferð í
Reykjanes við Ísafjarðardjúp 26.– 28. júní, 3ja daga ferð þar sem
náttúruperlur Vestfjarða verða skoðaðar m.a. Vatnsfjörður, Snæfjalla-
strönd, Unaðsdalur o.fl. Gisting á Hótel Reykjanesi. Uppl. og skráning
í s. 588-2111.
✝ Katrín Eiríks-dóttir fæddist
2. apríl 1925 að
Þórormstungu í
Vatnsdal. Hún lést
á Dvalar- og
hjúkrunarheim-
ilinu Grund 12.
maí 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Kristín
Gísladóttir, f. 25.
mars 1910, d. 23.
des. 1968, og Eiríkur Erlends-
son, f. 12. sept. 1906, d. 16.
sept. 1987. Eiginkona hans var
Björg Jónsdóttir, f. 6. apríl
1906, d. 3. des. 1991. Systir
Katrínar er Sigurbjörg Erla
Eiríksdóttir, f. 19. júní 1945,
maki hennar er Pjetur Már
Helgason, f. 5. jan. 1945.
Hinn 24. júlí 1948 giftist
hún Sveini Guðlaugssyni,
verslunar- og kaupmanni, f. 9.
okt. 1921, d. 14. des. 2006.
Foreldrar hans voru Elín
Benediktsdóttir, f. 4. feb. 1895,
Erik Christianson Chaillot,
maki Elsa Jóhannsdóttir og b)
Einar Sveinn Másson.
Katrín ólst upp hjá ömmu
sinni og afa, Katrínu Gríms-
dóttur og Gísla Jónssyni í
Saurbæ í Vatnsdal. Fimmtán
ára gömul flutti hún til
Reykjavíkur og réði sig í vist
þar. Hún stundaði nám í
Námsflokkum Reykjavíkur,
Samvinnuskólanum í Reykja-
vík og síðar í Húsmæðraskól-
anum. Katrín starfaði sem
verslunarmaður og vann m.a. í
bókabúðinni Helgafelli. Árið
1950 stofnuðu þau Katrín og
Sveinn matvöruverslunina
Sveinsbúð, sem var lengst af á
Laugarásvegi 1 og ráku þau
hana til ársins 1975. Eftir að
þau hjónin hættu störfum sem
kaupmenn hóf Katrín störf á
skrifstofu Ríkisspítalanna þar
sem hún vann þar til hún lét af
störfum vegna aldurs. Katrín
var mjög virk í félagsstarfi og
var m.a. um áratuga skeið í
Oddfellow-stúkunni Sigríði.
Útför Katrínar fer fram frá
Áskirkju í dag, 22. maí 2017,
og hefst athöfnin kl. 13.
d. 31. mars 1970,
og Guðlaugur
Kristjánsson, f. 3.
ág. 1894, d. 8.
sept. 1974.
Katrín og
Sveinn eignuðust
þrjár dætur: 1)
Kristín, f. 12. maí
1951, maki Pétur
Árni Carlsson, f.
12. apríl 1949.
Dóttir þeirra er
Arna, maki Björn Þór Þor-
steinsson.
2) Elín Árdís, f. 17. okt.
1955. Börn hennar og Garðars
Björgvinssonar eru a) Katrín
Ósk, maki Sævar Ström. Börn
þeirra eru Birta Sól, Viktor
Hrafn og Eva. b) Hrafn. Dóttir
hans er Júníana Tinna. c)
Tinna, maki Konráð R. Sveins-
son. Synir þeirra eru Sveinn
og Garðar Logi. 3) Sólveig
Katrín, f. 29. júlí 1961, maki
Már Grétar Pálsson, f. 31. maí
1961. Synir Sólveigar eru a)
Til ástkærrar móður okkar.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Hvíl í friði.
Kristín, Elín og Sólveig.
Mig langar að birta hér viðtal
sem ég tók við Dadí ömmu fyrir 2
árum. Þá var ég 11 ára og átti að
taka viðtal í skólanum við ein-
hvern sem var mér góð fyrirmynd.
„Ég valdi að skrifa um ömmu
mína Katrínu Eiríksdóttur af því
að hún er skemmtileg og alltaf góð
við mig.
Katrín Eiríksdóttir fæddist í
Þórormstungu í Austur-Húna-
vatnssýslu 2. apríl árið 1925. For-
eldrar hennar hétu Eiríkur Er-
lendsson og Kristín Gísladóttir.
Systir hennar heitir Sigurbjörg
Eiríksdóttir. Amma ólst upp á
sveitabænum Saurbæ í Vatnsdal
hjá ömmu sinni og afa. Amma fór
fyrst í barnaskóla í Vatnsdal, svo í
Námsflokka Reykjavíkur og í
Samvinnuskólann í Reykjavík.
Amma var þæg sem krakki en ólst
upp á ströngu heimili en var mjög
glöð þar. Helstu áhugamál hennar
voru hestar og önnur dýr í sveit-
inni. Bestu vinkonur hennar voru
bekkjarsystur hennar og móður-
systur. Þegar hún var lítil ætlaði
hún að verða bóndi í sveit.
Amma byrjaði að vinna 15 ára
sem heimilishjálp í Reykjavík og
var líka í skóla á sama tíma. Hún
vann sem kaupmaður og vann líka
við skrifstofustörf. Mikilvægustu
atburðir í lífi hennar voru að gift-
ast og eignast börn og barnabörn.
Amma giftist Sveini Guðlaugs-
syni. Hún býr í Reykjavík og á
þrjár dætur sem heita Sólveig
Katrín, Elín Árdís og Kristín.
Mér finnst merkilegt hvað
amma er alltaf í góðu skapi. Ég
mundi vilja líkjast henni í skapi.“
Hvíl í friði, elsku amma mín. Ég
mun sakna þín.
Þinn
Einar Sveinn.
Þegar við hugsum til baka um
Dadí ömmu þá kemur upp í hug-
ann mikil hlýja og notalegheit.
Það eru margar minningar um
freyðiböð, gæðastundir og hreint
rúm. Amma sá til þess að við
fengjum nóg að borða, hún átti
alltaf ömmukex, pönnukökur eða
pening fyrir nammi. Bestu minn-
ingar okkar frændsystkinanna
eru í Skálagerðinu hjá ömmu og
afa þar sem við gátum dundað
okkur tímunum saman. Við barna-
börnin kepptumst í raun um að
gista hjá þeim um helgar því þar
fengum við besta mat í heimi, alls-
konar sögur og svo skemmdi ekki
að þau höfðu Stöð tvö.
Amma hafði þann einstaka eig-
inleika að setja fjölskylduna og
hennar hagsmuni fram fyrir sjálfa
sig, sem setti fordæmi fyrir okkur
öll. Ekkert var henni mikilvægara
en hamingja og hagsmunir fjöl-
skyldunnar. Amma var alltaf svo
hlý og góð en stríðnin var sjaldan
langt undan þar sem hún purraði
hálsakotið við hvert tækifæri.
Hún hafði einnig góðan húmor,
kom oft með skemmtilegar at-
hugasemdir um aðra og gerði
óspart grín að sjálfri sér.
Dadí amma var einnig glæsileg
kona og fagurkeri mikill. Hún var
alltaf vel til höfð og átti einstak-
lega fallegt heimili. Hún var hrein-
skilin og tók eftir minnstu breyt-
ingum, hvort sem það var ný
hárgreiðsla eða breyting á þyngd
hafði hún tekið eftir því og bent á
það.
Amma varð meiri vinkona með
hverju árinu og vorum við alltaf
velkomin til hennar. Hún hafði
mikinn áhuga á að vita hvað var í
gangi hjá okkur og alltaf fyrst
með fréttirnar. Við gátum setið
hjá henni og spjallað saman um
allt og ekkert tímunum saman, að
sjálfsögðu yfir gæðaveitingum.
Ástarþakkir til þín, elsku Dadí
amma, fyrir allar dýrmætu
stundirnar, við munum geyma
minninguna um þig í hjörtum okk-
ar og hlýjum okkur við þá tilhugs-
un að nú taki afi vel á móti þér.
Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.
(B.H.)Þín barnabörn,
Arna, Erik og Tinna.
Elsku Dadí amma.
Ég er svo þakklát fyrir tímann
sem ég fékk með ömmu og ótal
minningar koma upp í hugann.
Mest koma upp stundirnar þegar
ég er lítil stelpa og kem til ömmu
og afa í Lundarbrekku. Alltaf var
rólegt og notalegt andrúmsloft.
Freyðibað, náttföt og svo upp í
rúm í hrein sængurfötin. Hjá
ömmu og afa var ég alltaf velkom-
in og ég vissi að þar var ást og um-
hyggja. Amma var glaðlynd kona
og þegar hún fékk hláturskast þá
grét hún úr hlátri svo tárin láku
niður kinnarnar. Hláturinn henn-
ar smitaði alla í kringum hana og
það endaði alltaf þannig að dætur
hennar þrjár grétu líka úr hlátri
og ætluðu aldrei að geta hætt.
Þannig stundir voru algengar
þegar þær mæðgur komu saman.
Þegar árin liðu varð samband
okkar ömmu nánara, við hittumst
oft tvær og sátum saman tímunum
saman og ræddum allt milli him-
ins og jarðar. Ég er svo þakklát
fyrir þessar stundir sem við áttum
alveg fram að hinstu stundu. Þeg-
ar ég hugsa til þess að hún sé far-
in, þá finn ég fyrir mikilli sorg og
söknuði. Hún var ekki aðeins
amma mín heldur var hún mér
mikil og góð vinkona.
Hvíl í friði, elsku amma.
Þín
Katrín.
Amma engill það ert þú, einu
sinni meðal manna en nú meðal
engla. Ef það ætti að sameina allt
það góða í heiminum og setja í eina
manneskju þá væri útkoman þú.
Hljóðlega þá kenndir þú okkur svo
margt. Að hugsa um fjölskylduna
er það sem öllu skiptir, forréttindi
sem gleði fylgir. Fjölskylduást er
eilíf ást og engin bönd eru sterkari
en okkar bönd. Að gefa öðrum
tíma sinn er dýrmætasta gjöfin og
hamingjan er dæmi sem deilist í
samverustundir.
Eftir skilur þú sterka fjöl-
skyldu með boðskap þinn í fyrir-
rúmi.
Takk fyrir allar stundirnar,
amma mín.
Þú verður alltaf mín helsta fyr-
irmynd.
Hrafn Garðarsson.
Elsku amma, ég sakna þín svo
mikið og það var svo gaman að
vera með þér.
Þegar ég kom í heimsókn til þín
þá vorum við að spjalla mjög mik-
ið saman og þú gafst okkur mjög
gott að borða. Það var gaman að
leika með dótið þitt og hafa kósí að
horfa á sjónvarpið.
Þinn langömmustrákur,
Sveinn.
Katrín Eiríksdóttir