Morgunblaðið - 22.05.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.05.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017 Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Enn snjallara heyrnartæki Beltone Legend Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. ™ Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 Styrmir Gunnarsson telur aðkannski sé að rofa fyrir heið- glugga í stjórnmálalegu þykkni. Hann segir:    Það er ánægjulegtað fylgjast með því lífi, sem er að færast í sjálfstæð- isfélögin í Reykjavík í aðdraganda borgarstjórnar- kosninga að ári.    Á föstudag og í gær, laugardag,efndu félögin til svonefnds Reykjavíkurþings, sem var eins kon- ar málefnaþing til undirbúnings kosningabaráttunni.    Og enn ánægjulegra var að sjáþann fjölda sem sótti þingið eða um 250 manns.    Það sem á hefur skort í starfiSjálfstæðisflokksins, ekki bara seinni árin, heldur síðustu áratugi, er virkara félagsstarf i sjálfstæðis- félögunum í höfuðborginni. Þing- flokkur og borgarstjórnarflokkur sækja næringu í þá grasrót, sem þar er á ferð.    Í henni býr gífurlegur kraftur, efhún er virkjuð. Það vekur hinum almenna flokksmanni bjartsýni að sjá athafnasemi á borð við þessa í Valhöll.    Sterk staða í Reykjavík er for-senda fyrir sterkri stöðu Sjálf- stæðisflokksins á landsvísu.    Nái flokkurinn sér á strik íReykjavík er bjartari tíð í vændum.“    Ef ömurleg stjórn á borginnivirkjar menn ekki til dáða er illa komið. Styrmir Gunnarsson Vonarneisti? STAKSTEINAR Veður víða um heim 21.5., kl. 18.00 Reykjavík 16 skýjað Bolungarvík 8 léttskýjað Akureyri 19 léttskýjað Nuuk 1 heiðskírt Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 19 heiðskírt Brussel 19 heiðskírt Dublin 15 léttskýjað Glasgow 15 léttskýjað London 18 heiðskírt París 20 heiðskírt Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 19 heiðskírt Berlín 20 heiðskírt Vín 20 heiðskírt Moskva 12 heiðskírt Algarve 21 skýjað Madríd 25 heiðskírt Barcelona 22 heiðskírt Mallorca 23 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 22 skýjað Winnipeg 7 rigning Montreal 16 skýjað New York 17 léttskýjað Chicago 16 alskýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:50 23:00 ÍSAFJÖRÐUR 3:23 23:37 SIGLUFJÖRÐUR 3:04 23:21 DJÚPIVOGUR 3:12 22:37 Bæjarstjórn Vest- urbyggðar mót- mælir harðlega þeirri ákvörðun að taka Breiða- fjarðarferjuna Baldur úr áætlun yfir Breiðafjörð án þess að annað skip leysi ferjuna af. „Þetta kemur sér mjög illa fyrir okkur hér í Vest- urbyggð en einnig í Stykkishólmi,“ segir Friðbjörg Matthíasdóttir, bæj- arstjóri Vesturbyggðar. „Við finnum fyrir þessu t.d. í ferða- þjónustu á svæðinu en það fækkar gistinóttum erlendra ferðamanna bæði hjá okkur og í Stykkishólmi meðan við erum ferjulaus.“ Friðbjörg segir þetta einnig koma niður á framleiðslufyrirtækjum sem flytja vörur suður því þau treysti á ferjuna. „Þungaflutningar sem áður fóru með Baldri fara núna beint inn á þjóðveginn sem er víða slæmur á þessu svæði. Þá er þetta að koma nið- ur á eldra fólki sem vill spara sér aksturinn. Þetta kemur sér illa fyrir alla á svæðinu.“ Óánægja í Vestur- byggð  Brotthvarf Baldurs skaðar alla á svæðinu Friðbjörg Matthíasdóttir Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn vill að útsvar verði lækkað í áföngum og komið niður fyrir meðalútsvar á landsvísu á kjörtímabilinu. Markmið til lengri tíma er að útsvarið fari í lögbundið lágmark, þ.e. úr 14,52% í 12,44%, segir í ályktun Reykjavík- urþings flokksins. „Lækkun útsvars með þessum hætti þýðir milljarða kjarabót fyrir borgarbúa en til þess að það sé hægt verður að taka á rekstri borgarinnar og hætta óþarfa gælu- verkefnum á borð við þrengingu gatna,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og bætir því við að Reykjavík eigi að vera fyrsti kostur fyrir alla þá sem vilja búa á höfuðborgarsvæð- inu. Kjartan segir að víða sé pottur brotinn í rekstri borgarinnar og bendir á að innri leiga, t.d. rekstur skólabygginga, sé hærri í Reykja- vík en nágrannasveitarfélögunum. „Í þeim samanburði sem ég hef séð frá öðrum ríkjum Norðurlanda er Reykjavík yfir meðaltali og því þarf að breyta.“ Reykjavíkurþingið ályktaði einn- ig að tryggja þyrfti nægt framboð lóða til sölu og að byggingarrétt- argjald yrði fellt niður. Vilja lágmarksútsvar í Reykjavík  Reykjavíkurþing Sjálfstæðisflokksins vill lækka útsvar og nægt lóðaframboð Morgunblaðið/RAX Fasteignir Auka þarf framboð lóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.