Freyr - 01.11.2006, Side 5
HROSSARÆKT
Sami raki aukinn hiti Sama rúmmál
(rúmmálsaukning) aukinn raki
Mynd 3. Tilgangur loftræstingar er að koma raka út ásamt fúlu lofti.
Tafla 2. Breytingar sem hesthúsaeigend-
ur vilja helst gera á sínum húsum.
Breytingar Hlutfall aðspurða
Fjölga eins hests stíum 30%
Auðvelda útmokstur 28%
Auka annað rými 23%
Stækka stíurnar 23%
Betri stíur fyrir hestana 20%
Smíða/stækka haughús 20%
Bæta vinnuaðstöðu 13%
Breyta öllu í stíur 13%
Auðvelda fóðrun 8%
Bæta loftræstingu 5%
Stækka gerði 3%
Leggja hitaveitu í húsið 3%
Setja hita í stíurnar 3%
Bættar brunavarnir 3%
aðbúnað og heilbrigðiseftirlit hrossa (nr.
132/1999) segir til um. í eldri húsum, þar
sem innréttingum hafði verið breytt eftir
árið 2000, voru 50% húsanna með stíur
sem voru minni en áðurgreind reglugerð
segir til um.
Hæð veggja á milli stía með rimlum var
að meðaltali 1,62 m sem gerir hestum
erfitt fyrir að bíta hvor annan en í leiðinni
minnkar það möguleika þeirra á jákvæðum
samskiptum.
Hestar í eins hesta stíum höfðu flesta fer-
metra (sjá töflu 1) fyrirsig en á móti kemur
að stíurnar voru oft þröngar.
27% eins hesta stíanna voru með aðra
hlið styttri en 142 sm, sem var meðal-
bollengd sýndra hrossa árið 2005. Þá
kom í Ijós að í 81 % eins hests stíanna var
styttri hliðin innan við 180 sm, sem er lág-
marksmál í nýrri reglugerð um aðbúnað,
umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa (nr.
160/2006) sem tók gildi síðastliðinn vetur.
LOFTRÆSTING
Algengasta loftræstikerfið var undirþrýst-
ingskerfi og var það í 55% húsanna. Undir-
þrýstingskerfi á að virka þannig að fúlu lofti
er blásið út sem gerir kröfur um að loftinn-
tök séu nægjanlega stór og dreifð svo allir
hestar í húsi fái notið hreins lofts. Flest
hesthúsin voru opin upp á gátt þegar komið
var að þeim, væntanlega ( þeim tilgangi að
lofta út. Þrátt fyrir það var bætt loftræsting
ekki ofarlega í huga hesthúsaeigenda, þar
sem aðeins 5% höfðu áhuga á að bæta
loftræstingu. Sú staðreynd að notast var
við opnanleg fög líkt og (íbúðarhúsum og
að dreifing loftinntaka var mjög ójöfn gefur
vísbendingar um að skortur sé á þekkingu
hins almenna hesthúsaeiganda á loftræst-
ingu hesthúsa.
UNDIRBURÐUR
( 80% húsanna var sag notað sem undir-
burður, aðrir notuðust við hálm og pappír.
Þeir sem notuðu sag notuðu allt upp í 4,2
kg á hest á dag. Sagnotkun í safnstíum var
mismikil (sjá mynd 4) og að meðaltali 2,1
kg/dag á móti 0,7 kg/dag hjá þeim sem
mokuðu allt út daglega. Athygli vekur að
notkunin jókst ekki samfara aukinni stíu-
stærð.
Þegar skoðað var samband hreinleika
hestanna við aðra þætti kom í Ijós að hrein-
leiki þeirra jókst einungis marktækt með
aukinni sagnotkun. Það sem ekki hafði áhrif
á hreinleika hestanna var tíðni útmoksturs,
gólfgerð, hreinleiki húsa eða lengd útiveru.
Mynd 4. Sagnotkun í safnstíum.
BREYTINGAR
Eins og sést í töflu 2 var efst í huga
aðspurða, þegar spurt var um breytingar,
að auka fjölda af eins hests stíum. Athygli
vekur að vinnusparandi þættir, s.s. að auð-
velda fóðrun, voru ekki ofarlega á lista.
Þá voru atriði eins og eldvarnir og bætt
loftræsting ekki ofarlega í huga manna.
Rúmlega þriðjungur þeirra sem voru með
bása vildi breyta öllu í stíur en meirihluti vildi
halda eftir einhverjum básum.
ÖNNUR ATRIÐI SEM VORU SKOÐUÐ
Við aðeins fimmtung húsanna voru fleiri
en eitt gerði, og var meðalfjöldi hesta í
hverju gerði 12 hestar en fór alveg frá 4
upp í 27.
í 83% tilfella var gefið tvisvar sinnum yfir
sólarhringinn en annars var gefið þrisvar
sinnum. Saltsteinaaðgangur var aðeins i
68% húsanna þrátt fyrir að það eigi ekki
að vera erfitt eða dýrt að koma honum
fyrir. Jafnalgengt var að gefa á stíugólfið
og fram á fóðurgang eða í 20% tilfella, en
algengast var að gefið væri í stalia.
í 78% tilfella voru engin slökkvitæki eða
brunaboðar og þó voru aðeins 2,5% við-
mælenda sem fannst það vera atriði sem
mætti betur fara. Þetta vekur verulega
athygli í Ijós þess hve verðmæti hesta hefur
aukist mikið á undanförnum érum.
NIÐURLAG
Greinileg breyting er í þá átt að hestamenn
hugsa meira um velferð hestanna sinna,
því í yngri húsunum voru stíurnar mark-
tækt stærri en í eldri húsunum. Hins vegar
vildu flestir breyta í eins hests stíur. Þetta
atriði þarf að rannsaka vel enda eru hestar
hjarðdýr og sækja í það að vera saman.
Hýsing hesta á húsi þarf að vera heppilegt
samspil á milli dýravelferðar og vinnuhag-
ræðis og í því sambandi þarf að skoða vel
hvort það henti frekar íslenskum hestum
að vera einir í stíu eða fleiri saman.
Sagnotkun er mikil samkvæmt þessari
athugun og þörf er á því að finna út hvort
önnur efni henti betur. Mór er t.d. efni
sem þarf að gera athuganir á við íslenskar
aðstæður, því hann brotnar hratt niður eftir
FREYR 11 2006
5