Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2006, Blaðsíða 16

Freyr - 01.11.2006, Blaðsíða 16
BYGGINGAR Bogahús - sveigjanleg, ódýr og dýravæn Ný tegund gripahúsa í Hollandi Bóndinn Harrie Houben, sem býr með kýr og kindur í Hollandi, hefur reist nýtt gripahús sem byggt er í boga og hefur ýmsa kosti í för með sér að hans mati. Eftir að hafa ráðfært sig við byggingarráð- gjafa hjá DLV (hollensku landbúnaðarráð- gjöfinni) um nýja, sveigjanlega og ódýra byggingaraðferð, ákvað Harrie Houben að byggja nýtt gripahús með bogaþaki. Nýja húsið, sem er tilraunaverkefni, rúmar 80 mjólkurkýr og 65 kálfa. Auk þess er mögu- legt að hafa undir sama þaki 200 kindur í vetrarfóðrun. Þegar gripahúsið var opnað í byrjun október komu um 2.500 áhugasamir gestir í heimsókn. Það sýnir hversu mikill áhugi er fyrir óhefðbundnum en ódýrum byggingarlausnum hjá bændum í Hollandi. ÓDÝR BYGGING OG VEL BORGUÐ TÍMAVINNA „Ég hræðist það ekki að vinna en ég vil fá góð laun fyrir vinnuna," segir Harrie. Þess vegna vill Harrie spara byggingar- kostnaðinn eins og mögulegt er. Það voru mikilvægustu rökin hans fyrir því að velja bogafjós og hann óttaðist það ekki að vera fyrstur til þess að ríða á vaðið. Aðalástæður þess að ódýrara er að byggja bogahús en hefðbundin hús með gegnheil- um stálrömmum eru þessar: • Stálrammarnir eru byggðir upp af eining- um með þremur rörum sem eru samtengd meðþvertré. Rammarnirinnihaldahelmingi minna stál en gegnheilir stálrammar en eru jafnsterkir. Þess vegna verður kostnað- urinn mun lægri, sérstaklega vegna hás stálverðs um þessar mundir. • Bogarnir ná alveg niður að jörðu og eru festir é sökkul eða á steinbita. Það leiðir til minni stálnota því húsbyggjandinn sleppur við aukaefni til að treysta undirstöður frá þaki til veggs með styrktarstííum. • Tveggja laga þakdúkur í stað hefðbundinna þakplatna. Loftræsting og lofteinangrun á milli laga. Ekki aðeins ódýrara í innkaupum heldur einnig í flutningi vegna minna rúm- máls. • Auðvelt er að flytja bygginguna og taka í sundur. HAUGSÖFNUN í MYKJUTANK OG FAST GÓLF Mikið er rætt um það í Hollandi hvort bændur eigi að vera með haugsöfnun úti fyrir eða f kjallara. Harrie valdi að vera með mykjutank úti við en 100 m3 haug- kjallara við enda hússins. Harrie keypti verksmiðjuframleidda gólfeiningalausn úr steypu með raufum langsum og skálaga. Flórskafa skefur mykjuna sem berst um rauf- arnar ofan í haugkjallarann. Tvisvar sinnum í mánuði er mykjunni dælt í mykjutankinn. Vegna verksmiðjuframleiddra vegg- og gólf- eininga, kaupa á innréttingu sem hægt Hollenski bóndinn Harrie Houben telur að bogahús hafi ýmsa kosti í för með sér. Hann er fyrsti bóndinn sem reisir hús af þessari gerð. Tafla 1. Kostnaður borinn saman á hefðbundnu fjósi fyrir 100 mjólkandi kýr (1.000 m2) og bogafjósi (áætlaðar tölur samkvæmt gengi norskrar krónu í nóvember 2006). Hefðbundið fjós ísl. kr. Bogafjós ísl. kr. Bygging 10.500.000 Bygging 7.600.000 Gólf og haughús 15.200.000 Verksmiðjuframleitt gólf 5.700.000 Mykjutankur 4.700.000 Samtals 25.700.000 Samtals 18.000.000 Einn aðalkostur bogahúsa er lágur byggingarkostnaður vegna verksmiðjuframleidds byggingarefnis. Stálrammarnir eru byggðir upp af einingum með þremur rörum sem eru samtengd með þvertré. H FrEYR 11 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.