Freyr - 01.11.2006, Blaðsíða 12
BYGGINGAR
Hversu lengi duga
steyptu gólfbitarnir?
Feðgarnir Kristian og Alf Vinning-
land í bænum Time á vesturströnd
Noregs hafa misjafna reynslu af
gæðum steyptra gólfbita. Gæði
steypunnar voru svo lítil að ammon-
íak smeygði sér inn að járnabinding-
unni sem ryðgaði í sundur. Afleiðing-
arnar voru þær að skipta þurfti um
gólfbita með ærnum tilkostnaði.
„Við vissum ekki að ástandið væri svona
slæmt fyrr en við byrjuðum að háþrýstiþvo
gólfbitana því vatnsgeislinn fór beint í gegn-
um gólfið! Því var ekkert annað að gera en
að henda gólfinu út áður en illa færi og
skepnurnardyttu niður um það. Steyptir gólf-
bitar hafa fallið niður í haughús í mörgum
fjósum," segja Alf og Kristian.
Bitarnir hjá þeim feðgum voru á stnum tíma
keyptir í Árdal Betong og dugðu vel í 20 ár
áður en þeir skiptu þeim út. Feðgarnir segja
að miðað við ástandið hefði átt að skipta fyrir
nokkrum árum. Þeir benda einnig á að gæði
gólfbitanna hafi verið lítil hjá fleiri framleið-
endum á sjöunda og áttunda áratug síðustu
aldar. Steyptur gólfbiti frá O.C. Ostrátt sem
þeir prófuðu dugði til að mynda M 5 ár.
TOPPGÆÐI FRÁ SPENNBETONG
Alf og Kristian urðu sér úti um notaða,
steypta gólfbita fyrir meira en 20 árum. Þeir
voru framleiddir í kringum 1960 og geymdir
Traust steypa í gólfbita frá Spennbetong
sem er alveg þétt. Hér smýgur ammoníakið
ekki inn að járnabindingunni. Þegar bitinn
var sagaður í tvennt kom í Ijós að
járnabindingin var heil.
á bænum eftir að hafa verið í notkun í 10
ár á bænum Kvernelands Fabrikk. í gegn-
um árin hafa Alf og Kristian notað þá til
að skipta út fyrir ónýta gólfbita. Allt önnur
gæði voru í þessum gólfbitum en í þeim
nýrri. Kristian og Alf sýna einn steyptan gólf-
bita af þessari tegund sem þeir hafa sagað
í tvennt. Eftir rúm 40 ár eru bæði steypa og
járnabinding jafngóð og þegar gólfbitinn
var nýr. Kristian hellir vatni yfir gólfið sem
fer ekki inn í steypuna. Því næst hellir hann
vatni yfir ónýta steypugólfið frá Árdal sem
drekkur í sig vatnið eins og svampur. Þetta
sýnir að mati Kristians hina miklu gjá sem er
í steypugæðum.
HVERNIG ERU GÆÐIN l' DAG?
„Gólfbitarnir sem við kaupum í dag eru
innfluttir frá Danmörku og Hollandi. Hvað
vitum við um gæðin á þeim? Hversu lengi
munu hinir nýju gólfbitar duga?" spyr
Kristian. „Við fáum uppgefið hversu mikinn
þunga nýr steyptur gólfbiti þolir. En við vit-
um ekkert hversu mikinn þunga hann þolir
eftir nokkur ár," segir hann einnig. Kristian
finnst jafnframt að það eigi að innleiða
einskonar gæðaeftirlit og tryggingu fyrir
kaupendur.
Alf Vinningland með rúmlega 40 ára
gamlan, steyptan gólfbita frá Spennebetong
í Foss Eikeland í Sandnes. Þessi er útbúinn úr
traustri steypu og dregur ekki í sig vatn
Höfundur frumtexta: Odd Magne Nordmark
á norska bændablaðinu Bondevennen.
Steypti gólfbitinn frá Árdal er langt frá því að vera þéttur. Ammoníak hefur smeygt sér inn
í járnabindinguna sem er ryðguð í gegn eftir 20 ára notkun.
Það hefði átt að skipta um fyrir mörgum árum.
FREYR 11 2006